Kristín Einarsdóttir:
Virðulegur forseti. Ég má til að koma hér upp og lýsa furðu minni á ummælum hæstv. sitjandi utanrrh., iðnrh., um leið og ég fagna þeirri skoðun sem hér hefur komið fram bæði af hálfu hæstv. forsrh. og hæstv. fjmrh. Mér þykir merkilegt að halda því fram að persónulegt viðtal við sendiherra Bandaríkjanna skipti engu máli. Hvenær er það persónulegt viðtal og hvenær er hann þá í einhverju öðru hlutverki? Það er verið að tala við sendiherra Bandaríkjanna í því hlutverki sem hann er og í viðtalinu kemur mjög greinilega fram að hann er þar með íhlutun í íslensk innanríkismál. Það þarf ekki að fara í neinar grafgötur með það. Persónulegt og ekki persónulegt. Auðvitað er ekki hægt að hafa viðtal við sendiherra Bandaríkjanna öðruvísi en persónulegt. Hann er sendiherra Bandaríkjanna hér á Íslandi.
En kannski í tengslum við þetta þó það komi ekki akkúrat þessu máli við þá langar mig af þessu tilefni til þess að inna hæstv. forsrh. eftir því hvort ríkisstjórnin hafi formlega mótmælt innrás Bandaríkjanna í Panama.