Árni Gunnarsson:
    Virðulegi forseti. Ég minnist þess á undanförnum árum að hafa lesið viðtöl við sendiherra Sovétríkjanna á Íslandi, sendiherra Kínverja á Íslandi, þar sem þeir hafa lýst miklum áhuga á auknum samskiptum við Íslendinga á ýmsum sviðum. Þessi viðtöl hafa ekki orðið tilefni utandagskrárumræðu á Alþingi. Það sem sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi gerir skakkt í þessu viðtali er að ræða um viðkvæm mál sem snerta utanríkispólitík Íslendinga, varnarmál t.d. Það hefði hann mátt láta ógert. Hins vegar er enginn vafi á því, eins og hefur komið fram hér í umræðunni, að þessi sendiherra nefnir ákaflega mörg mál sem ég tel jákvæð fyrir samskipti þessara tveggja þjóða, m.a. samvinnu á sviði menningarmála, samvinnu á sviði mengunarmála og var ég sérstaklega ánægður með það að sendiherrann skyldi koma inn á mál, tillögu sem ég fékk samþykkta á fundi Vestnorræna þingmannaráðsins um alþjóðlega vísindastöð sem fylgdist með mengun Norður-Atlantshafsins. Þetta er sérstakt áhugamál þessa sendiherra og því fagna ég mjög.
    Ég hygg að það megi, ef menn gera það með jákvæðu hugarfari, líta á þetta viðtal við sendiherrann sem svona nokkurs konar yfirlýsingu af hans hálfu í þeim málum sem hann hefur sérstakan áhuga á. Hann fór að vísu offari í þessu viðtali, ég játa það, en að þetta viðtal, sem nú er orðið viku gamalt, skuli vera umfjöllunarefni í utandagskrárumræðu næstsíðasta dag þingsins fyrir jólaleyfi er nokkuð sem ég fæ ekki vel skilið.