Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Vegna þessara síðustu orða hæstv. forseta Nd. hlýtur forseti að svara því til að það er mjög sjaldgæft að ekki sé orðið við beiðni um hálftíma til utandagskrárumræðu og þess vegna þótti ekki ástæða til að hafna því frekar nú.
    Nú getur forseti tæplega sett fleiri á mælendaskrá tímans vegna en hér eru enn þá fjórir mælendur eftir og til máls tekur hv. 11. þm. Reykn.