Þorsteinn Pálsson:
Frú forseti. Ég saknaði þess að hæstv. forsrh. skyldi ekki svara þeirri fsp. sem til hans var beint og ég vona að honum verði gefinn kostur á að gera það. Ég vil svo draga það hér fram að í þessu máli eins og ýmsum öðrum virðist vera alvarlegur ágreiningur innan hæstv. ríkisstjórnar. Ég tek undir það með hæstv. forsrh. að auðvitað er það kórrétt eins og sakir standa að það verður ekki gerður greinarmunur á formanni Sjálfstfl. og Þorsteini Pálssyni en hitt er svo annað mál að stundum er óhjákvæmilegt að gera greinarmun á Steingrími Hermannssyni og forsrh. Íslands.