Hjörleifur Guttormsson:
Virðulegur forseti. Ég kem hér sem staðgengill formanns samvn. samgöngumála, hv. 3. þm. Vestf., til að flytja þá framsögu fyrir nefndarinnar hönd sem hann hafði undirbúið, en hann er nú væntanlega kominn til síns heima. Það vildu fleiri gert hafa sem hér eru bundnir við störf á Alþingi og eiga langt heim að sækja. En ég ætla hér að flytja það mál með ánægju sem hann hafði undirbúið fyrir okkar hönd.
Ég mæli hér fyrir brtt. samvn. samgöngumála við frv. til fjárlaga fyrir árið 1990. Brtt. er að finna á þskj. 411. Samvn. samgöngumála hefur að venju fjallað um erindi þau sem Alþingi hafa borist um framlög á fjárlögum til stuðnings við rekstur flóabáta vegna vöru- og fólksflutninga á einstökum svæðum. Farsvæði þessara báta er á Faxaflóa, á Breiðafirði, á Ísafjarðardjúpi og á leiðinni frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja. Enn fremur eru flutningar styrktir á Eyjafirði og á milli Mjóafjarðar og Neskaupstaðar. Jafnframt hefur nefndin tekið fyrir og rætt erindi sem borist hafa vegna flutninga á landi, svo sem til reksturs snjóbifreiða eða vegna mikils snjómoksturs þar sem erfitt reynist fyrir viðkomandi byggðarlög að standa straum af þeim kostnaði sem þau verða að bera samkvæmt snjómokstursreglum Vegagerðar ríkisins. Enda þótt reglurnar hafi verið rýmkaðar á síðustu árum verða íbúar í snjóþungum héruðum fyrir verulegum kostnaði umfram aðra þegna þjóðfélagsins við að halda uppi nauðsynlegum samgöngum. Til að minnka eitthvað þennan aðstöðumun hafa verið veitt á fjárlögum hvers árs framlög til þeirra aðila sem að dómi nefndarinnar eru verst settir að þessu leyti.
Halldór S. Kristjánsson, skrifstofustjóri í samgrn., og Guðmundur Einarsson, forstjóri Skipaútgerðar ríkisins, mættu sem fyrr á fundi nefndarinnar og veittu henni margvíslegar upplýsingar sem komu nefndinni að miklu gagni. Færir nefndin þeim sérstakar þakkir fyrir störf þeirra í hennar þágu.
Á undanförnum árum hefur í framsögu fyrir tillögum nefndarinnar verið gerð nákvæm grein fyrir einstökum þáttum þeirra, sérstaklega varðandi hin stærri verkefni, þ.e. flutninga á sjó. Þar sem þessum þáttum eru skilmerkilega gerð skil í áliti nefndarinnar sé ég ekki ástæðu til að fara mörgum orðum um einstaka flóabáta heldur vísa til nál.
Ég vil taka fram að með flestöllum umsóknunum fylgdu greinargóðar upplýsingar um viðkomandi verkefni og á þetta einkum við um flutninga á sjó. Enda þótt þeir aðilar sem styrks til landflutninga njóta hafi einnig sent nefndinni greinargóðar upplýsingar um rekstur og annað er umsóknina varðar er í nokkrum tilvikum misbrestur á því að reikningar fylgi umsókn og voru nefndarmenn nú sem áður sammála um að styrkur yrði ekki greiddur á næsta ári fyrr en reikningar bærust samgrn. fyrir yfirstandandi ár.
Enn fremur vill nefndin beina því enn á ný til samgrn. að þeim aðilum sem fá stofnstyrki undir liðnum Flutningar á landi verði kynnt sú meginregla nefndarinnar að stofnstyrkir vegna ákveðinna verkefna
verði eingöngu veittir í þrjú ár. Tekið skal fram til fróðleiks að nefndin hefur við úthlutun stofnstyrkja að jafnaði miðað við að þeir verði ekki hærri samtals en helmingur kostnaðar við kaup á vélum og tækjum.
Ég mun nú víkja að tillögunum og þeim breytingum sem nefndin er sammála um að gera á fjárframlagi til þessa málaflokks á fjárlögum fyrir árið 1990.
Nefndin leggur til að framlag til flóabáta og vöruflutninga verði 131 millj. 100 þús. kr. á næsta ári. Samsvarandi upphæð á fjárlögum yfirstandandi árs er 109 millj. 609 þús. kr. Hér er um að ræða 19,6% hækkun milli ára.
Til flutninga á landi er lagt til að verja 21 millj. 415 þús. kr. en í ár er til þessa liðar varið 16 millj. 49 þús. kr. Hækkunin nemur 33,4%.
Til reksturs flóabáta og skyldra verkefna leggur nefndin til að framlagið verði 109 millj. 685 þús. kr. en samsvarandi framlag í ár er 93 millj. 560 þús. kr. og nemur hækkunin 17%.
Nefndin leggur til að veittir verði styrkir til 56 verkefna vegna flutninga á landi eða tveimur fleiri en er á fjárlögum í ár. Af þessum liðum leyfi ég mér að gera að umtalsefni nokkur atriði og nefni fyrst tvö verkefni sem lagt er til að fái stofnstyrk á næsta ári þrátt fyrir þá meginreglu nefndarinnar að veita einungis stofnstyrk til sama verkefnis í þrjú ár. Er hér um algjöra undantekningu að ræða og alls ekki til eftirbreytni. Hér er átt við stofnstyrki til vetrarsamgangna í Árneshreppi sem er liður 19 í brtt. nefndarinnar og til snjóbifreiðar í Oddsskarði og Fagradal sem er liður 49. Stofnstyrkir til þessara aðila eru veittir enn einu sinni vegna verulegrar greiðslubyrði af lánum sem tekin voru vegna kaupa á snjóbifreiðum á sínum tíma og skal á það lögð áhersla að hér er um lokastyrki að ræða.
Nefndin hefur farið fram á það við samgrn. að þessum aðilum verði ritað bréf og þeim tilkynnt að ekki verði um frekari stofnstyrkveitingar til þeirra að ræða að öllu óbreyttu.
Varðandi stofnstyrki vil ég geta um eina úthlutun sem er afbrigðileg en það
er styrkveiting vegna kaupa á snjóbifreið á Hólmavík, liður 22. Nefndin var sammála um að veita í eitt skipti fyrir öll eina fjárveitingu, 1 millj. kr., í stað þess að veita 500 þús. kr. í þrjú ár samkvæmt reglunni sem minnst var á hér að framan. Ég leyfi mér enn fremur að minnast á lið 56 Óráðstafað, en um hann er það að segja að hann er fyrst og fremst hugsaður sem sjóður sem hægt væri að grípa til í neyðartilvikum þegar samgöngur teppast og grípa þarf til dýrari flutningstækja. Slíkir flutningar yrðu síðan greiddir skv. reikningi og hefur verið farið fram á það við Halldór S. Kristjánsson, skrifstofustjóra í samgrn., að hann annist greiðslur slíkra reikninga í samráði við formenn samgn. Alþingis.
Að þessu sinni var fjárveiting samkvæmt þessum lið hækkuð verulega og er skýringin sú að nefndin taldi brýnt, samkvæmt ábendingu samgrh., að styrkja loftflutninga til einangraðra staða á Vestfjörðum og
samþykkti nefndin að verja allt að 2,5 millj. kr. í þessu skyni. Greiðslur verði inntar af hendi í samráði við formenn samgn. eins og aðrar greiðslur skv. þessum lið.
Til reksturs flóabáta og skyldra verkefna leggur nefndin til að styrkir verði veittir til átta verkefna sem er einu verkefni færra en á fjárlögum í ár. Fjárveiting til Dýrafjarðarbáts var sameinuð nýjum lið, til snjóbifreiðar í Dýrafirði sem er liður 8, enda um sama rekstraraðila að ræða. Ég vil geta þess, með vísan til þess sem segir í nál. þar sem rætt er um Hríseyjarferju og Grímseyjarflutninga, að ef af kaupum verður á ferju til siglinga á Eyjafjarðarsvæðinu og til Grímseyjar þarf að endurskoða útlutun styrkja sem veittir eru undir liðnum Eyjafjörður-Grímsey, en undanfarin ár hafa Flugfélag Norðurlands hf. og Skipaútgerð ríkisins fengið þessa fjárveitingu. Áður en ég segi skilið við málefni flóabáta og ferja er rétt að geta þess að fram komu í nefndinni ábendingar þess efnis að þar sem verulegar fjárveitingar hafa þegar verið ákveðnar og eru fyrirhugaðar til smíði og kaupa á ferjum og flóabátum, fjárfestingar sem skipta munu hundruðum millj. kr. væri tímabært að leiða hugann að því hvort ekki væri frekar á verksviði fjvn. Alþingis að veita fjármagn til reksturs og stofnkostnaðar ferja og flóabáta.
Virðulegur forseti. Ég hef hér gert grein fyrir meginatriðum í brtt. samvn. samgöngumála við frv. til fjárlaga fyrir komandi ár. Í brtt. er að finna sundurliðun á einstökum verkefnum. Ég sé ekki ástæðu til að lesa þá liði alla upp hér en vísa til þskj. 411 þar sem þessa sundurliðun um tilteknar fjárveitingar til flutninga á landi svo og til flóabáta er að finna og tiltekin upphæð sem óráðstafað er eins og verið hefur á undanförnum fjárlögum.
Ég sé ástæðu til að þakka öllum í samvn. samgöngumála fyrir ágætt samstarf við lausn þeirra álitamála sem lágu fyrir nefndinni en um niðurstöðuna varð full samstaða og standa allir nefndarmenn að þessum till. sem ég hef hér mælt fyrir.