Eggert Haukdal:
Virðulegur forseti. Í ágústmánuði 1988 boðaði þáv. fjmrh., Jón Baldvin Hannibalsson, þann vísdóm að fárlagahalli yrði aðeins 683 millj. á árinu. Fögnuðu menn þessum boðskap að vonum og trúðu. Þetta var aðeins forsmekkurinn. Síðan linnti ekki nýjum og nýjum tilkynningum um ríkissjóðshallann og við árslok var hann orðinn 7 milljarðar. Þá var fyrir nokkru kominn nýr fjmrh. til starfa sem lagði á nýja milljarðaskatta með fjárlögum ársins 1989. Skyldi nú snúið við blaði og fjárlög voru afgreidd með tekjuafgangi. En í dag stöndum við í svipuðum sporum og í fyrra hvað varðar fjárlagahalla. Tekjuafgangur hæstv. fjmrh. Ólafs Ragnars Grímssonar breyttist í svipaðan halla og á fyrra árs fjárlögum. Og þrátt fyrir nýjar stórfelldar álögur virðist nú eiga að afgreiða fjárlög með tæplega fjögurra milljarða halla.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar í tíð hinna ágætu fjmrh. Jóns Baldvins Hannibalssonar og Ólafs Ragnars Grímssonar. Hvorugur virðist eiga sinn líka í veröldinni og þó er starfstíminn stuttur. Hvað verður hægt að segja um feril þeirra við lok kjörtímabils með sömu stjórnvisku? Þrátt fyrir stórhækkandi fjárlög og skattahækkanir á þegnana er stöðugt dregið úr því fjármagni sem varið er til verklegra framkvæmda. Má í því sambandi benda á hvernig ríkisstjórnarliðið meðhöndlar vegamálin sem eru eitt brýnasta mál landsbyggðarinnar.
Sl. vor var gengið frá vegáætlun á Alþingi fyrir árið 1989--1992. Um hana varð samstaða og vonuðust alþm. til þess að tækist að vinna eftir henni. Ágreiningur varð þó gagnvart árinu 1989 en ríkisstjórnarliðið ákvað að taka 700 millj. sem lagðar voru á umferðina í ár beint í ríkissjóðshítina í stað þess að skila þeim í Vegasjóð. Að öðru leyti bar vegáætlun það með sér að þetta skyldi aðeins gert í ár og eftir það færu skattar af umferðinni til vegamála. Eftir atvikum mátti því una við framkvæmdir í vegamálum að samþykktri vegáætlun í apríl sl. fyrir árin 1990--1992 þótt vissulega hefði mátt betur. En skjótt skipast veður í lofti og þegar fjárlög fyrir árið 1990 birtust á Alþingi 11. okt. sl. er búið að skera vegafé niður um fimmtung eða liðlega einn milljarð á næsta ári miðað við samþykkta vegáætlun. Svo bjartsýnir höfðu menn verið sl. vor að öllu fjármagni sem varið skyldi til vegamála árið 1990 samkvæmt vegáætlun, 5250 millj. kr., var skipt niður á verkefni í öllum landshlutum og engu óráðstafað. Þegar menn vakna upp við vondan draum í dag og sjá hvernig ríkisstjórnarliðið virðir ekki samþykkta vegáætlun, er þá ekki von að spurt sé: Getur það verið að það sé ríkisstjórn jafnréttis og félagshyggju sem svona vinnur?
Gagnvart landsbyggðinni eru þetta mikil ótíðindi. Nú við 3. umr. fjárlaga sýnist vera skilað inn í vegáætlun þriðjung af því sem skorið var við framlagningu fjárlaga miðað við samþykkta vegáætlun þannig að niðurskurður frá henni er 675 millj. En þegar betur er að gáð blasir við að virðisaukaskattur
sem leggst á vegagerðina á næsta ári mun nema 300--400 millj. í auknum útgjöldum þannig að sú upphæð sem meiri hl. fjvn. er að leggja til með brtt. að varið verði til vega nú við 3. umr. mun kannski duga til að mæta hinum nýju
álögum sem af upptöku virðisaukaskattsins leiðir á útgjöld vegagerðarinnar. Það blasir því við niðurskurður í vegamálum upp á 1 milljarð sem þýðir að rífa þarf upp alla vegáætlunina sem samþykkt var samhljóða á Alþingi fyrir fáum mánuðum. Því er svo enn við að bæta um vegamál að framlög til sýsluvega eru skert um 40--50 millj. og þar með svikinn af hálfu ríkisins þáttur í verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga með því að rústa sýsluvegasjóði dreifbýlisins. Var þó nóg að gert í því að standa ekki við verkaskiptingu af hálfu ríkisins. En gagnvart vegamálunum má spyrja: Hvað eru landsbyggðarþingmenn hv. stjórnarliðs, þar á meðal hæstv. samgrh., að hugsa?
Hvernig eru horfur í kjaramálum og atvinnumálum nú við afgreiðslu fjárlaga rétt fyrir jól? Það var fróðlegt að lesa í Tímanum viðtal við Guðmund J. Guðmundsson, formann verkamannafélagsins Dagsbrúnar. Það var birt með stríðsletri þar sem hann segir einustu hugsanlegu kjarabætur felast í niðurfærsluleið. Fyrirsögnin var: ,,Annars fer þetta allt til andskotans.`` Með leyfi forseta vil ég vitna í orð Guðmundar J. Guðmundssonar. Hann segir m.a.:
,,Það er fyrir okkur með öllu vonlaust að reyna að hugsa um að gera samninga þar sem kaupmáttaraukning geti átt sér stað. Það sem gera þarf er að lækka verðlag og vexti og vexti verður að lækka. Vaxtalækkun ein sér mundi bjarga hundruðum heimila frá tortímingu og fjölda fyrirtækja frá fyrirsjáanlegu hruni. Næsta skref þarf síðan að verða það að ganga miklu lengra í niðurfærsluátt ef þetta á ekki allt að fara til andskotans.`` Og enn segir hann: ,,Við stöndum nú frammi fyrir því að verulega vaxandi hluti fyrirtækja steypist á hausinn. Það verður einnig veruleg aukning á því að fólk missi íbúðir sínar vegna --- ekki bara húsnæðislána --- heldur einnig bráðabirgðalána og víxla og fjöldi ungs fólks sér ekki út úr myrkviði skelfingarinnar. Það verður að lækka vexti. Þeir eru núna í kringum 30% og mættu fara niður í 15% undir eins. Bankarnir verða að taka á sig ákveðna
hluti. Ef þeir gera það ekki fara þeir sjálfir á hausinn vegna vanskila. Þeir fá einfaldlega ekki greitt frá fólki og fyrirtækjum sem eru nú þegar um það bil gjaldþrota.``
Svo mörg eru þessi orð og ekki falleg. En í framhaldi af orðum Guðmundar J. Guðmundssonar um vextina: Það er kunnara en frá þurfi að segja að nálega öll gjaldþrot og greiðslustöðvanir undangenginna ára eiga sér eina og sömu orsök, þ.e. fjallháan fjármagnskostnað í formi verðbótaþáttar, vaxta og raunvaxta sem eru samanlagt þrefalt hærri en almennt gerist erlendis. Útflutnings- og samkeppnisgreinarnar þola ekki slíkan mismun og því er hrun orðið og kreppan fram undan. Þetta veit og skilur svo að segja hvert mannsbarn í landinu nema
ráðamennirnir sem skella við skollaeyrum eða þykjast ekki skilja.
Þung vaxtabyrði af íbúðarlánum sem er stærsti liður fjölskylduútgjalda veldur búsifjum hjá launþegum. Þeir hafa verið sviptir kaupgjaldsvísitölu en lánskjaravísitalan leikur lausum hala. Meðan fjmrh. gortar af 17% raunvaxtagreiðslum og þar með yfir 40% nafnvaxtagreiðslum til kaupenda ríkisvíxla og ríkisskuldabréfa biðlar hann og ríkisstjórnin til verkamanna og annarra launþega um að þola kjaraskerðingu enn einu sinni. Kaup má ekki hækka um eina krónu. Fremur skal hafa atvinnuleysi og kreppu. Þeir ætlast með öðrum orðum til þess að lágtekjufólkið greiði niður verðbólguna fyrir þá svo að ráðamenn geti sagt: Sjáið, verðbólgan hefur lækkað og við getum lækkað vextina, þ.e. verðbótaþáttinn. Ekkert er látið uppi um raunvextina.
En mun verðbólgan lækka þó að verkamenn fórni sínum hagsmunum? Ekkert bendir til þess. Þrátt fyrir mun minni halla á vöruskiptajöfnuði við útlönd sem stafar af þverrandi kaupgetu almennings og kreppu hafa erlendar skuldir landsins aukist í ár um nálega 12 milljarða kr. eða um einn milljarð á mánuði hverjum og fjárlög verða afgreidd með a.m.k. 3,5 milljarða halla sem margir telja þó of lágt áætlað. Hann gæti orðið tvöfalt eða jafnvel þrefalt meiri. Svipaðri skuldaaukningu er spáð næsta ár, 1990. Virðisaukaskatturinn mun auka stórlega byggingarkostnað, þar með lánskjaravísitölu og vexti, hvað svo sem niðurgreiðslum til íbúðabygginga líður. Sams konar áhrif munu húsbréfin hafa þótt afföll þeirra séu takmörkuð meðan Landsbankinn greiðir hálfan milljarð til innlausnar bréfunum. Hver verða afföllin eftir það? 20 eða 30--40%? Vísir menn spá því að íbúðaverð muni tvöfaldast á næstu tveimur til þremur árum.
Hver er staða skuldabréfa ríkissjóðs, hæstv. fjmrh.? Hver er árleg vaxtabyrði af þeim, verðbótaþáttur, raunvextir og afföll? Þarf ekki að upplýsa það? Einnig þyrfti að upplýsa hver vanskilin eru orðin í bankakerfinu vegna gjaldþrota og greiðslustöðvana. Í einu orði sagt: Vegna vaxta sem hvorki fyrirtæki né heimili geta borgað. Hvað þarf lengi ránvexti til að jafna þau töp? Og enn um vextina.
Miðvikudaginn 13. des. sl. birti Morgunblaðið viðtal við hæstv. forsrh. og með leyfi forseta vil ég hafa úr því eftirfarandi orð:
,,Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að í gærmorgun hefði ríkisstjórnin átt fund með bankastjóra Seðlabankans þar sem þessi mál, einkum vaxtamálin, hafi verið rædd. ,,Við höfum komið þessari afstöðu okkar fullkomlega til skila til Seðlabankans. Þessu var alls ekki illa tekið á fundinum en Seðlabankinn hefur þó engu lofað í þessum efnum``, sagði forsrh. ,,Við erum sammála ASÍ og VSÍ um nauðsyn þess að ná fram lækkun nafnvaxta. Því miður hækkar framfærsluvísitalan um 2,2% nú í desember sem er meira en við höfðum vonað``, sagði Steingrímur. ,,En því er spáð að verðbólga eigi að hjaðna mjög ört
strax í byrjun janúar.``"
Svo mörg voru þau orð hæstv. forsrh. í þessu viðtali. Já, sagði hann, þessu var ekki illa tekið á fundinum en Seðlabankinn hefur engu lofað. Ég endurtek: Seðlabankinn hefur engu lofað. Fram að þessu hef ég nú einhvern veginn haldið að forsrh. væri landsfaðir okkar á hverjum tíma. En í þessum orðum hæstv. forsrh. kemur fram að við eigum ekki bara pabba í Stjórnarráðinu heldur virðumst við eiga annan yfirpabba hér á jörðu niðri, í Seðlabankahúsinu.
Virðulegi forseti. Þyrfti ekki í ljósi orða forsrh. að fá úr því skorið hver er landsfaðir á Íslandi þannig að þjóðin velkist ekki í vafa um hver ræður?
Virðulegi forseti. Ég hef lokið máli mínu.