Fjárlög 1990
Fimmtudaginn 21. desember 1989


     Friðjón Þórðarson:
    Virðulegi forseti. Ég ætla að segja hér örfá orð við þessa lokaumræðu um fjárlagafrv. Ég vil fyrst þakka formanni fjvn., hv. 5. þm. Vestf., fyrir dugandi leiðsögn í störfum fjvn. Hann minntist á það í ræðu sinni hér síðdegis í dag að fulltrúar frá Þjóðhagsstofnun hefðu verið kvaddir á fund nefndarinnar nýlega til þess að láta þá spá um framtíðina. Þeir sögðu að þjóðhagsspáin hefði lítið haggast. Fram undan væri þriðja samdráttarárið í röð, eins og komist hefur verið að orði, lækkandi þjóðartekjur og líkur á einhverju atvinnuleysi, en atvinnuleysi, sem er eitt ægilegasta orð sem við tökum okkur í munn, hefur sem betur fer sneitt hér hjá garði í mörg undanfarin ár en þessa hættu, þessa vá, þurfa stjórnvöld að hafa í huga og bregðast hart við ef hún lætur á sér kræla.
    Hv. formaður fjvn. ræddi um það að skynsamlegir kjarasamningar þyrftu að nást og er það auðvitað hverju orði sannara þó að það sé hægara sagt en gert. Við verðum að muna það að verðbólgan lifir enn. Verðbólgan er enn tveggja stafa tala og hún er enn þá draugur sem við þurfum að glíma við.
    Að sjálfsögðu, segi ég, verða fjárlögin að þessu sinni afgreidd með verulegum halla sem við hefur blasað frá því að frv. var lagt fram í haust. Það er auðvitað í svo fjöldamörg horn að líta þegar fjárlög eru sett saman að þar þarf meira en orðin tóm. Við þurfum ekki annað en líta á þskj. 423 þar sem eru brtt. frá meiri hl. fjvn. við frv. nú fyrir 3. umr. til þess að sjá hvað mörgu þarf að gefa gaum. Eitt fyrir sig er það að sumar húseignir ríkisins eru að falli komnar. Þarf þá ekki að fara lengra en suður að Bessastöðum svo að við hrökkvum allt í einu upp við það að þar er mannvirkjagerð svo áfátt að það þarf að leggja í mikinn kostnað aðeins til þess að gera þau viðhlítandi. Og í fjvn. kom fram að nauðsynlegt væri að veita nokkuð fé til þess að lappa upp á eina af sundlaugum landsins sem er staðsett á íþróttasetri því að hún væri
orðin hættuleg baðgestum vegna þess að stykki gætu dottið úr loftinu þá og þegar ef menn voguðu sér að taka þar sundsprett. Í þessum brtt. er vikið að Háskólanum á Akureyri sem auðvitað verður að hlynna að fyrst horfið var að því að setja hann þar á fót. Og við þurfum ekki að fara lengra en hér upp á Hverfisgötuna til þess að rekast á Þjóðleikhúsið sem þarf stórfelldra endurbóta og aðgerða við og Þjóðarbókhlöðunni þurfum við svo sannarlega að hraða. Þannig mætti lengi upp telja en þess er enginn kostur nú að minnast á nema örfá atriði.
    Ég þakka hv. 2. þm. Norðurl. v. fyrir skýran og skörulegan málflutning fyrir hönd okkar sem skipum minni hl. í fjvn. Ég þarf ekki miklu að bæta við hans orð. En það á stundum vel við að einn af hásetunum á skútunni taki til máls og segi sínar skoðanir þó að eitt og annað sé komið fram í þessu máli.
    Hv. 2. þm. Norðurl. v. minntist á það að ríkisstjórnin hefði sent landsetum sínum kaldar kveðjur

með því að tífalda eftirgjald ríkisjarða. Þetta er nú aðeins lítið dæmi af mörgum. Það mætti auðvitað lesa upp í löngu máli þau atriði þar sem hefði þurft að veita meira fé. Við skulum aðeins minnast á Jarðasjóð sem skilinn er eftir fjárvana og nú á allra síðustu dögum lækkar um eina milljón í fjárveitingu. Hér var minnst á vegamálin af hv. 1. þm. Vesturl. og fleirum en það er nú einu sinni svo að einhvern veginn finnst manni ekki sérstök þörf á að ræða vegamál um þetta leyti árs. Það er venjulega gert þegar daginn fer örlítið að lengja.
    Þá var minnst á ferðamálin. Nú eru fjárveitingar til ferðamála skertar að venju, eins og gert hefur verið mörg undanfarin ár, og lítt hlynnt að ferðaþjónustu bænda, t.d., eins og hér kom fram í máli manna áðan þó að full ástæða væri til. Og enn er spurt um skólasamningana svonefndu þar sem hæstv. fjmrh. og menntmrh. hafa undirritað samninga um fast ákveðið fjármagn til skólabygginga um landið á næstu árum og nú er sagt að þeir séu allir úr gildi fallnir. Ég er hræddur um að sveitarstjórnarmönnum bregði við að heyra þau tíðindi ef þarf nú að fara að endurnýja þá alla saman. Þarna þarf svo sannarlega að athuga málin að nýju. Og minnst var hér áðan á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Þar eru ekki öll kurl komin til grafar. Þar þarf að hyggja vel að því hvað kemur endanlega út úr þeim málum.
    Hv. 1. þm. Vesturl., sem er ekki hér í salnum frekar en aðrir --- það er orðið fátt um áheyrendur svo síðla dags --- talaði um það að stjórnarandstaðan hefði ekki sýnt nein viðbrögð, engin viðbrögð, aðeins hefðbundið nöldur, en ekki fannst mér nú mikill hugur fylgja máli, enda hætti félagi minn að vestan fljótlega að tala í þessum dúr. En hann er, sá ágæti maður, nýbúinn að afhenda mér rit frá efnahagsnefnd Framsfl. sem þeir fjórir félagar sem það settu saman binda miklar vonir við og láta ekkert tækifæri ónotað til þess að láta í það skína að þarna séu nú nýjungar og fagrar hugmyndir á ferðinni. (Gripið fram í.) Ja, a.m.k. hef ég þegar fengið það að gjöf, þakka þér fyrir, og mun nú reyna að rýna eitthvað í þær fersku hugmyndir í jólaleyfinu.
    Virðulegi forseti. Við ræðum hér, góðir alþm., um frv. til fjárlaga fyrir komandi ár á dimmasta degi ársins sem nú er að líða. Það eru vetrarsólhvörf
sem ég kýs að kalla svo í mótsetningu við sumarsólstöður þegar sólin getur ekki horfið né farið í felur án þess að sjást á næsta leiti.
    Hér hafa farið fram allsnarpar umræður á köldu dægri. Sumum hefur hitnað nokkuð í hamsi en aðrir hafa dottað í sætum sínum, hálfleiðir á löngum fundarsetum. Ágreiningsmálin eru mörg enda horfur ískyggilegar í mörgum efnum. ,,Margs þarf búið við,,, sagði Sighvatur Sturluson forðum og satt er það að svo örfámenn þjóð á veraldarvísu þarf margs að gæta og í mörg horn að líta. Fjvn. hefur því eins og oft áður orðið að hafna mörgum þörfum málum og vel rökstuddum erindum. Þau verða að bíða betri tíma.
    Ég hef starfað í fjvn. á þessu haustþingi. Ég vil nota tækifærið til þess að þakka gott samstarf í

nefndinni, bæði nefndarmönnum og starfsfólki öllu svo og öllum góðum gestum sem sótt hafa á fund nefndarinnar með erindi sín stór og smá hvaðanæva úr byggðum landsins. Það gleymist stundum að þakka þessu fólki sem heimsækir okkur á hverju haustþingi.
    Það eru margar sjónhverfingar sem hafa átt sér stað við þessa fjárlagagerð eins og raunar stundum áður. Nú er þau átök að baki og fjárlög senn afgreidd með álitlegum halla. Hvernig sem að er unnið og til er stofnað verðum við þó öll að vona að sæmilega rætist úr málum og eitthvað af vonunum rætist á komandi ári.