Hjörleifur Guttormsson:
    Virðulegur forseti. Það hefur verið sagt að við stöndum hér á vissum tímamótum í þeim málum sem kennd hafa verið við Evrópu, Evrópumálunum, og sem tengjast könnunarviðræðum og nú undirbúnings- og samningaviðræðum um evrópskt efnahagssvæði.
    Frá því 15. mars hefur sem kunnugt er farið fram mikið starf að þessum málum og hæstv. utanrrh. lagði fram skýrslu þann 20. nóv. og mælti fyrir henni 23. nóv. Síðan hefur mál þetta verið til umræðu hér í Sþ. á mörgum fundum. Því miður hefur sú umræða verið mjög sundurslitin. Er ég ekki að ásaka neinn af þeim sökum en hlýt að benda á að það er mjög óheppilegt í svo stóru og þýðingarmiklu máli að ekki skuli hafa tekist að ná meiri samfellu í umræðuna og fá fram fyrir þjóðina skýrari mynd af afstöðu flokka og einstakra þingmanna hér á hv. Alþingi. Ég heyri það að ekki sé ráðgert að ljúka þessari umræðu fyrir jólahlé þingsins þannig að ljóst er að hún mun dragast fram á næsta ár. Mál þetta verður að sjálfsögðu, eins og á því hefur verið haldið, eitt meginmál í þjóðmálaumræðunni, hlýtur að verða það á komandi ári, og ég dreg enga dul á það að ég tel að hér stefni í mjög verulegt óefni eins og á þessu máli hefur verið haldið af hæstv. utanrrh. og eins og ríkisstjórnin hefur markað stefnu um það með bókun sinni 29. nóv. sl. Ég segi þetta af þeim sökum að sú framvinda mála, sem könnunarviðræðurnar hafa tekið, og sú
niðurstaða, sem liggur nú fyrir eftir sameiginlegan fund málsvara Evrópubandalagsins og EFTA, tekur stefnu á sameiginlegt evrópskt efnahagssvæði og sá sem heldur á þessum málum fyrir Íslands hönd, hæstv. utanrrh., fer ekkert dult með þá skoðun sína að hann telji að það eigi að ná landi í þessum samningum út frá þeim forsendum sem lagðar hafa verið í könnunarviðræðunum.
    Ég fullyrði að stefnan á evrópskt efnahagssvæði eftir þeim siglingaljósum sem fyrir liggja er í raun stefna á inngöngu Íslands í Evrópubandalagið sjálft fyrr eða seinna. Menn eru hér í rauninni að ganga í samflot, rugla saman reytunum við Evrópubandalagið í þýðingarmesta þætti Rómarsamningsins, það sem snýr að hinum innra markaði sem settur var á flugferð með ákvörðunum Evrópubandalagsins nú á síðustu árum.
    Hvernig halda menn að það verði í raun kleift fyrir ríki innan Fríverslunarsamtaka Evrópu, jafnsundurleit og þau eru og hafa aðeins innan sinna vébanda 1 / 10 hluta af íbúafjölda Evrópubandalagsins, að ætla að halda óhæði sínu gagnvart þessu stóra bandalagi, halda í horfinu sem ein af tveimur meginstoðum í togstreitu við þetta stóra Evrópubandalag þegar fram líða stundir eftir að búið verður að rugla reytunum í sambandi við ákvarðanatöku, eftirlit og dómstóla eins og hlýtur að verða að gera og eins og að er stefnt samkvæmt þeim yfirlýsingum sem fyrir liggja? Ég er satt að segja afar undrandi á því hve fáir hér á hv. Alþingi Íslendinga hafa áttað sig á þessum staðreyndum. Eða er ástæðan kannski sú að þeir vilja ekki koma úr kafinu, þeir

kjósa að draga fjöður yfir þá staðreynd hvert verið er að stefna, þeir telja sér henta að sigla áfram í þoku gagnvart alþjóð og kveða ekki upp úr um það í reynd hvaða land þeir sjá fyrir stafni?
    Ég hefði kosið, virðulegur forseti, að hæstv. forsrh. gæti séð sér fært að vera viðstaddur þessa umræðu hér í kvöld. Ég segi það m.a. vegna þess og ber fram þá ósk vegna þess að hæstv. forsrh. ber að sjálfsögðu ábyrgð á siglingu ríkisstjórnarinnar í þessum málum á heildina litið. Hæstv. forsrh. stóð að Oslóaryfirlýsingunni 15. mars sl. og hæstv. utanrrh. er hér ekki viðlátinn þótt ég geri á engan hátt lítið úr viðveru hæstv. viðskrh. sem gegnir störfum hans hér. ( Forseti: Ég hef gert ráðstafanir til þess að tala við forsrh. og gá hvernig stendur á.) Já, ég þakka, virðulegur forseti, og vænti að það beri árangur.
    Ég mun koma nánar að því síðar í ræðu minni, virðulegur forseti, hvernig horfir í sambandi við það atriði sem hæstv. forsrh. gerði sérstakan fyrirvara við á Oslóarfundinum í marsmánuði og hér á Alþingi Íslendinga, --- var það ekki 9. mars? Það var í öllu falli fáum dögum fyrir fundinn í Osló þegar mál þessi voru rædd hér utan dagskrár.
    En ég vil þá víkja nokkrum orðum að málsmeðferðinni á þessum tíma könnunarviðræðnanna. Ég vil andmæla þeim fullyrðingum sem fram hafa komið hjá þeim sem bera ábyrgð á þessari málsmeðferð, sérstaklega hæstv. utanrrh., að hún hafi verið vönduð og það hafi farið hér fram mikið samráð, jafnvel meira samráð en gerst hefur í öðrum málum. Ég tel þetta vera ranga fullyrðingu, e.t.v. fram setta, því miður, til þess að blekkja, til að villa um fyrir þeim sem ekki hafa átt að vera þátttakendur í þessu samráðsferli.
    Ég tel ljósasta vottinn um samráðsleysið í þessu stóra máli vera það sem snýr að utanrmn. Alþingis. Ég á sæti í þeirri nefnd og það er sá vettvangur sem lögboðið er að hæstv. utanrrh. hafi samráð á við Alþingi, beri fram álitamál til þess að ráðfæra sig við nefndina og til þess að leita álits hennar í málum. Þetta hefur gerst á mjög ófullkoinn hátt og í mjög mörgum tilvikum og raunar flestum tilvikum þannig að nefndinni hefur verið greint
eftir á frá því sem gert hefur verið en hún hefur ekki átt kost á því að vera þátttakandi, hvað þá ráðgjafi, fyrir fram varðandi þau álitaefni sem legið hafa fyrir hverju sinni. Það hefur líka gerst og það má segja að fyrir því eru skiljanlegar ástæður í ýmsum tilvikum að hæstv. utanrrh. hefur ekki sótt fundi nefndarinnar. En það hefur líka gerst að hæstv. ráðherra hefur verið hér í borg viðstaddur þegar um er að ræða fyrir fram ákveðna fundi utanrmn. og hefur ekki látið sjá sig vegna þess að hann hefur talið önnur mál vera þýðingarmeiri og látið sig vanta. Þetta gerðist m.a. í nóvembermánuði í aðdraganda þess að fram var lögð skýrsla hans hér. Og frá því 29. nóv. hefur hæstv. utanrrh. ekki setið fundi utanrmn., enda hefur ekki verið um fundahöld að ræða af hálfu nefndarinnar á þeim tíma, og þó hefur hæstv. utanrrh. staðið að tveimur veigamiklum yfirlýsingum fyrir Íslands hönd

á þessum tíma, á vettvangi ráðherra EFTA þann 11. des. og síðar og ekki síður í aðdraganda fundarins í París þann 19. des. þar sem hæstv. ráðherra stendur að yfirlýsingu og bindur Ísland inn í undirbúningsviðræður a.m.k. og í rauninni túlkar það sjálfur svo að þar sé undirbúningur að samningaviðræðum og hefur knúið fram sér til handa af ríkisstjórn Íslands umboð til þess að vera þátttakandi í þeim samningaviðræðum.
    Ég hlýt að vekja athygli á þessum alvarlega bresti í málsmeðferðinni sem fyrir liggur. Það er þeim mun alvarlegra sem hér er verið að leggja upp í ferð sem mér sýnist ekki aðeins vísa á evrópskt efnahagssvæði heldur í reynd á inngöngu Íslands í Evrópubandalagið ef við látum teyma okkur inn í fordyrið, inn í hið evrópska efnahagssvæði sem er yfirlýst markmið utanrrh. a.m.k. Ég vona að það séu ekki fleiri í því neti enn sem komið er heldur en Alþfl. af þeim sem sitja við ríkisstjórnarborðið og veit þó sáralítið hvað Borgfl. er að hugsa sem nýlega hefur verið dreginn að því borði.
    Ég vil líka vekja athygli á því, virðulegur forseti, að það var með mjög sérkennilegum hætti sem hæstv. utanrrh. Íslands varð sér úti um umboð af hálfu ríkisstjórnar Íslands til þess að eiga hlut að undirbúnings- og samningaviðræðunum. Vegna þess þáttar í mínu máli óska ég eftir því að kannað verði, virðulegur forseti, hvort hv. 1. þm. Suðurl., formaður Sjálfstfl., er staddur í húsinu vegna þess að ég kýs að hafa hann nærstaddan þar sem hann kemur nokkuð við sögu þessa máls. ( Forseti: Ég vil upplýsa að Þorsteinn Pálsson er ekki staddur hér í húsinu.) Þá hlýt ég, virðulegur forseti, að una við það. Ég sé ekki ástæðu til þess þó ég hefði síst á móti því að honum yrði gert viðvart að að honum sé vikið hér í þessari umræðu, en hér eru fulltrúar Sjálfstfl. viðstaddir, þó að ég hefði sannarlega kosið að hv. 1. þm. Suðurl. væri hér nærstaddur því að hann á verulegan hlut í forleik þessa, að umboðs var aflað til handa utanrrh. Íslands.
    Það gerðist nefnilega að morgni þess 28. nóv. sl. að þeir áttu tal saman, hæstv. utanrrh. og hv. 1. þm. Suðurl. Hver frumkvæði átti að því samtali skal ég ekki fullyrða, en ég hygg að það hafi verið hæstv. utanrrh. sem það gerði. Og tilefnið var það að leita eftir því við formann Sjálfstfl. hvort hann gæti ekki orðið stuðningsaðili við sig í þessu máli, hvort ekki væri hugsanlegt að Sjálfstfl. og Alþfl. næðu saman um málsmeðferðina hér á Alþingi. Formaður Sjálfstfl. mun ekki hafa tekið fjarri að athuga það mál og reyndar hefur síðar komið fram af hans hálfu að hann mat það eftir þetta samtal að bilið væri ekki breitt sem brúa þyrfti. Það væri helst að eitthvað skorti á orðalag varðandi hinar títt nefndu tvíhliða viðræður við Evrópubandalagið. Hann óskaði eftir því að fá hugmynd eða drög að texta frá hæstv. utanrrh. og þessi textadrög bárust formanni Sjálfstfl. þann sama dag frá utanrrh. sem hafði lýst því yfir á Alþingi þegar hann kynnti skýrslu sína að hann teldi enga nauðsyn á því að ganga frá neinu formlegu umboði á

Alþingi sér til handa þar sem ríkisstjórnin væri samstæð í þessu máli. Samt fer hæstv. utanrrh. í baktjaldamakk við Sjálfstfl. um þetta mál án þess að greina samstarfsaðilum sínum í ríkisstjórn frá því, a.m.k. ekki ríkisstjórninni í heild. Ég hygg hins vegar að hann hafi greint einstökum ráðherrum frá þessu, þeim ráðherrum sem hann taldi sér henta að láta vita af því að hann ætti nú hauka í horni í garði stjórnarandstöðunnar. Svo mikið er víst að það voru ekki litlir brestir og ramakvein sem upphófust þegar Sjálfstfl. var ljóst og formanni hans að utanrrh. var genginn honum úr greipum í þessu máli, í bili a.m.k., og utanrrh. hafði tekist að afla sér umboðs ríkisstjórnar Íslands til undirbúnings- og samningaviðræðna.
    Margt í tengslum við þetta mál, virðulegur forseti, væri sannarlega þörf á að rekja svolítið hér á hv. Alþingi og ég held að ég leyfi mér að taka í það örfáar mínútur. Það liggur nefnilega nokkuð vel skjalfest fyrir í blöðum formanns Alþfl. og í málgagni Sjálfstfl., Morgunblaðinu, hvernig þessi mál gengu fyrir sig. Þann 30. nóv. gefur að líta á forsíðu Alþýðublaðsins undir fyrirsögninni ,,Hættulegur og óábyrgur leikur`` viðtalsbrot við formann Alþfl. og er orðrétt eftir honum haft vegna málflutnings Sjálfstfl.: ,,Nú velur Sjálfstfl. þennan tíma til að snúa við blaðinu í stað þess að leita eftir samstöðu lýðræðisflokkanna eins og hann gerði hér áður í þýðingarmiklum
alþjóðamálum,,, sagði Jón Baldvin Hannibalsson, ,,samstöðu lýðræðisflokkanna`` --- og það er ákveðinn saknaðartónn í formanni Alþfl.
    Og það stóð ekki á því að formaður Sjálfstfl. gæfi sig einnig fram í sambandi við þetta mál. Þessi vinslit, tímabundnu vinslit a.m.k., milli þeirra félaga sem skildu að skiptum haustið 1988 í ríkisstjórn með eftirminnilegum hætti og hafa ítrekað reynt að verma upp bólið síðan án þó teljandi árangurs fram til þessa.
    Í Morgunblaðinu laugardaginn 2. des. fjallar formaður Sjálfstfl. um þessar áþreifingar og lýsir sjónarmiðum sínum í því sambandi. Þar segir formaður Sjálfstfl. þar sem hann er að ræða um það að Alþingi ætti að marka stefnu í þessu máli:
    ,,Utanrrh. gat auðveldlega leitað eftir samstöðu á Alþingi um stefnumörkun í þessu mikilvæga hagsmunamáli. Reyndar verður að líta svo á að það sé skylda hans í máli sem þessu en í því efni brást honum algerlega bogalistin. Flest bendir til þess að hann hafi lagt meira upp úr setu Alþb. í ríkisstjórn en að ná breiðu samstarfi þeirra flokka sem um langan aldur hafa staðið saman að veigamestu ákvörðunum sem teknar hafa verið í utanríkismálum. Utanrrh. vissi að ég var tilbúinn til samninga en hann kaus að rjúfa samstöðu lýðræðisflokkanna af ótta við Alþýðubandalagið.``
    Það fellur saman hér hugtakanotkunin hjá þessum fyrrv. lagsbræðrum í ríkisstjórn. (Gripið fram í.) Hvað segir hæstv. menntmrh.? (Gripið fram í.) Já, þetta er nokkuð gamalkunnugt. Síðan geta menn farið yfir þessi efni með því að lesa allsérstætt viðtal við

formann Alþfl. sem birtist í Alþýðublaðinu þann 5. des. þar sem farið er allítarlega út í þessi efni, þetta tilhugalíf formanns Sjálfstfl. og Alþfl., og þar sem menn fá staðfest í rauninni vonbrigðin á báðum bæjum, má segja, ( Fjmrh.: Þú ættir nú að ræða tillöguna ...) í sambandi við þessi efni. Og hæstv. fjmrh. er kominn hér og er beðinn um að það verði farið að ræða um samskipti þeirra formanna, hinna svokölluðu A-flokka, en það var ekki hugmynd mín að taka það hér sérstaklega upp í kvöld.
    Þessi efni eru líka samantekin í Morgunblaðinu þann 12. des. í frásögn sem Agnes Bragadóttir blaðamaður rekur í sambandi við samskipti formanns Sjálfstfl. og Alþfl. í þessum efnum.
    Ég rek þetta hér, virðulegur forseti, til þess að draga fram þá hræsni og hráskinnaleik sem í raun á sér stað í málflutningi formanns Alþfl. og Sjálfstfl. í þessum efnum. Það er verið að reyna að sýna fram á að milli þessara aðila sé einhver teljandi ágreiningur í sambandi við Evrópubandalagsmálið og evrópska efnahagssvæðið. En í reynd var --- og ég fullyrði er --- ágreiningurinn ekki meiri en svo að það skorti ekki mikið á að þessir aðilar næðu að krækja saman um síðustu mánaðamót og gerðu tilraunir til þess eins og fyrir liggur. En þar með var ekki sögunni lokið.
    Hæstv. utanrrh. gaf ítrekað yfirlýsingar um það að hann teldi að ekki þyrfti neitt umboð frá Alþingi Íslendinga þvert ofan í það sem hann sagði bæði í utanrmn. og við fjölmiðla í septembermánuði sl. Hæstv. utanrrh. fjargviðraðist um það þegar hann mælti fyrir skýrslu sinni hér á Alþingi hversu fávísir þeir menn væru sem létu sér detta í hug að það ætti að afla umboðs frá Alþingi í þessu stóra máli. Hann hafði mörg orð um það og dró fram lærða lögfræðinga og stjórnmálafræðinga, m.a. Ólaf Jóhannesson, fyrrv. hæstv. forsrh. og lagaprófessor, til þess að sýna fram á hversu fáránlegt það væri að afla slíks umboðs, þrátt fyrir það að sjálfur hafði hann verið á þeirri skoðun nokkrum vikum fyrr. Og staðgengill hans hér á Alþingi, hæstv. núv. viðskrh., eyddi skammdegisdögunum fyrri hluta aðventunnar í það að reyna að ná samkomulagi við Sjálfstfl., ekki alla stjórnarandstöðuna heldur við Sjálfstfl. sérstaklega, um framgang mála hér á Alþingi. ( Viðskrh.: Alla stjórnarandstöðuna.) Alla stjórnarandstöðuna, segir hæstv. viðskrh. Það er ágætt, hann rekur það væntanlega hér í máli sínu.
    Það liggja fyrir drög að þáltill., tillögu til rökstuddrar dagskrár réttara sagt, í málinu ,,könnunarviðræður EFTA-ríkjanna við Evrópubandalagið`` og það er fróðlegt fyrir menn að kynna sér þau drög, m.a. þá hv. sjálfstæðismenn sem hafa verið að reyna að láta líta svo út að það væri einhver gjá á milli þeirra og hæstv. utanrrh. í þessu máli. ( GHG: Það er það hjá sumum.) Það er það hjá sumum, segir hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson og ég ætla út af fyrir sig ekki að gera lítið úr sjónarmiðum sem komið hafa frá einstökum talsmönnum Sjálfstfl. eins og hv. þm. Guðmundi H. Garðarssyni og Þorvaldi Garðari Kristjánssyni í þessu

máli. Væri þess virði að rekja kafla úr þeirra ræðum til þess að menn áttuðu sig á hvað ég á við. En því miður, það eru ekki þessir hv. þm. sem ráða ferðinni í Sjálfstfl. Það eru ekki þessir hv. þm. sem hafa mótað það samkomulag sem í raun lá fyrir við Sjálfstfl. í sambandi við hugmyndina um að ljúka þessari umræðu hér á Alþingi með tillögu til rökstuddrar dagskrár.
    Virðulegur forseti. Ég sá ástæðu til að draga þessi atriði hér fram á Alþingi til þess að menn átti sig á því betur en hægt hefur verið af almennum fréttum í þessu máli og betur en ástæða hefur verið til í ljósi þeirra umræðna sem hér hafa farið fram því að mikið af þessum atriðum hafa farið fram í
bakherbergjum og í rauninni átt að fara leynt og ekki komið fram í dagsljósið. Það er nefnilega nauðsynlegt fyrir íslenska þjóð, sem þarf að gera það upp við sig fyrr en seinna hverjum hún ætlar að fylgja í þessu stóra máli, að átta sig á því að á milli forustu Alþfl. og forustu Sjálfstfl. skilur í reynd sáralítið í þessu máli. Það er svo annað mál hvernig þeim hentar að haga siglingu hverju sinni og það er alveg ljóst að hæstv. utanrrh. er ósköp hamingjusamur og sæll með það umboð sem hann nú hefur í höndunum frá ríkisstjórn Íslands. Og ef hann fær að halda því eins lengi og hann kysi, ég tala nú ekki um til þess að ganga frá samningum eins og hann er að boða að séu fyrir stafni, þá er von að hann haldi gleði sinni svo lengi sem honum tekst það. En mér þykir satt að segja ólíklegt að hann eigi þar samfylgd annarra flokka sem hann nú á samstarf með í ríkisstjórn til þess að fylgja fram þeim áformum sínum, en það verður að koma betur í ljós á komandi vikum og mánuðum.
    Þá vil ég víkja að öðum þætti sem snertir þróun mála á undanförnum vikum og tengist veigamiklum þáttum í þessu máli, og hefði ég kosið að hæstv. forsrh. hefði getað verið viðstaddur meðan ég minnist á þann þátt máls hér í umræðunni. ( Forseti: Ég vil tilkynna hv. ræðumanni að forsrh. tjáði það þegar hann kom hér áðan að hann gæti aðeins verið hér til kl. 10 og hefur nú horfið af vettvangi.) Virðulegur forseti. Það var bagalegt og mér ekki ljóst þar sem ég hafði óskað nærveru forsrh. hér við umræðuna. En hér er hæstv. sjútvrh. og ég mun ekki gera kröfu til þess að hæstv. forsrh. verði kvaddur hér til umræðunnar þó að ég verði að lýsa vonbrigðum mínum með það að hann sem slíkur ábyrgðaraðili sem hann er í þessu máli skuli ekki sjá ástæðu til að vera viðstaddur þessa urmæðu eða hafa ástæðu til þess.
    En ég ætla að leyfa mér að benda á rangar upplýsingar um stóran þátt í þessu máli og missagnir sem fram hafa komið varðandi veigamikil atriði sem snerta þetta mál og tengjast ákvörðun ríkisstjórnarinnar 29. nóv. sl.
    Þegar ríkisstjórnin ákvað að veita hæstv. utanrrh. umboð lá fyrir henni minnisblað frá hæstv. utanrrh. sem átti að draga saman meginefni máls varðandi stöðu þessara mála, fyrirvara Íslands og annað það sem réttlæta skyldi það að Ísland gengi til þessara

samningaviðræðna sem eiga að hefjast í framhaldi ákvörðunarinnar í París 19. des. sl. Í minnisblaði hæstv. utanrrh. um markmiðin fyrir stafni segir:
    ,,Í hinni sameiginlegu skýrslu stjórnarnefndar könnunarviðræðnanna frá 20. okt. sl. er því yfirlýst að nægilegur grundvöllur sé þegar fenginn til þess að halda viðræðum áfram. Í þessum könnunarviðræðum hefur samningsstaða Íslands verið skilgreind á sviði hvers starfshóps fyrir sig fyrir utan þær niðurstöður sem eru sameiginlegar öllum EFTA-ríkjunum.`` Og síðan kemur, með leyfi forseta, og ég bið hæstv. viðskrh. að leggja við hlustir og kannski fleiri hæstv. ráðherra: ,,Í skýrslu stjórnarnefndarinnar er kveðið á um nauðsyn undantekninga sem réttlætast með vísan til lífshagsmuna einstakra þjóða og eru ekki samningsatriði,,, segir hæstv. utanrrh. í minnisblaði sínu. Jafnframt er vikið að nauðsyn tímabundinna sérákvæða sem verða samningsatriði.
    Hvað er hér á ferðinni? Ég hrökk við þegar ég heyrði það í máli hæstv. viðskrh. hér á Alþingi í umræðu um þetta mál þar sem hann er að fjalla um fyrirvara af Íslands hálfu, og segir orðrétt:
    ,,Hér er m.a. um það að ræða sem oft eru nefndir fyrirvarar af Íslands hálfu, eða viðurkenning á sérstöðu Íslands. Ég vil leyfa mér að halda því fram að samningsstaða Íslendinga sé nú góð, einmitt vegna þess að þeir hafa tekið virkan þátt í könnunarviðræðunum. Ég ætla að nefna nokkur atriði til að skýra þetta. Fyrst er þess að geta að í þessum viðræðum er samkomulag um að nokkrar varanlegar undantekningar frá samningnum um fullkomið frelsi á hinum fjórum sviðum, sem oftast eru nefnd, verði ætíð nauðsynlegar vegna lífshagsmuna einstakra ríkja. Slíkir fyrirvarar eða undantekningar verða þá í sjálfu sér ekki samningsatriði,,, segir hæstv. viðskrh. úr þessum ræðustól 4. des. Og þar segir hann í framhaldinu: ,,Hér nefni ég kröfu Íslendinga um óskoruð yfirráð yfir auðlindum sjávar innan fiskveiðilögsögunnar. Þá eru einnig almennar yfirlýsingar um nauðsyn tímabundinna sérákvæða sem verða að sjálfsögðu samningsatriði. Undir þetta ákvæði fellur margt sem varðar tímasetningu og forgangsröð á breytingum t.d. að því er varðar aukið frelsi til fjármagnshreyfinga.`` --- Ég hrökk við. Ég hafði fyrir mínum þingflokki túlkað þetta mál með öðrum hætti þegar ég varaði þingflokkinn við því að stíga nokkur þau skref sem leitt gætu til þess að Alþb. afhenti utanrrh. umboð til samningsviðræðna. En þingflokkurinn hafði fyrir framan sig sérstakt minnisblað hæstv. utanrrh. um það að grundvallarhagsmunir, atriði sem snerta grundvallarhagsmuni væru ekki samningsatriði, þar á meðal fiskveiðiréttindi, aðgangur að auðlindum og annað þess háttar. Enda stendur það heima þegar ég fer svo að kanna þetta frekar í þeim gögnum sem ég hef og það sem ég byggði á, það er skýrsla utanrrh. Og þar stendur allt annað heldur en hann sjálfur viku seinna leggur fyrir ríkisstjórn og heldur en staðgengill hans, hæstv. viðskrh. segir úr þessum ræðustól 4. des. þar sem þessir ráðherrar báðir bera það á borð

skriflega og munnlega hér á Alþingi og við ríkisstjórnina að atriði sem
snerta grundvallarhagsmuni og Ísland hafi gert fyrirvara um séu ekki samningsatriði. En í samþykkt stjórnunarnefndarinnar svokölluðu, High Level Steering Group, frá 20. okt. sl. stendur þetta svart á hvítu eins og utanrrh. eða hans starfsmenn draga inn í skýrslu ráðherrans sem fram er lögð hér á Alþingi 20. nóv. svohljóðandi og meira að segja feitletrað: ,,Undantekningar sem réttlættust með hliðsjón af grundvallarhagsmunum, svo og tilhögun á aðlögunartíma, ættu að vera samningsatriði.`` --- Ættu að vera samningsatriði. ( Viðskrh.: Gætu orðið samningsatriði.) Síðan er kominn textinn frá París og þar er þetta líka í viðtengingarhætti ,,gætu verið samningsatriði``, segir hæstv. utanrrh. Ég hef þennan texta einhvers staðar. Og þetta er á enskunni ótvírætt. En ráðherrar bera hér fram á vettvangi ríkisstjórnar og Alþingis allt annað. Það kann að þykja gróft og ég treysti mér ekki til þess og ætla ekki að staðhæfa að þessi framburður hæstv. ráðherra sé ásetningur. Það væri alvarlegra heldur en svo að það sé hægt að fullyrða slíkt. En málið er háalvarlegt engu að síður þótt vonandi sé um mistök að ræða af hálfu hæstv. ráðherra sem fara með þetta mál.
    Á krossgötum í þessu máli þegar hæstv. utanrrh. er að afla sér umboðs, ekki aðeins til undirbúningsviðræðna heldur til samningsviðræðna af hálfu ríkisstjórnar, þá liggur fyrir staðhæfing um þetta efni sem setur að sjálfsögðu allt annan svip og gefur þeim fáu fyrirvörum sem Ísland þó hafði gert í könnunarviðræðunum allt annað inntak, allt aðra kjölfestu heldur en fyrir liggur í reynd í bókuðum textum.
    Ég hlýt að harma það að svona er staðið að verki í jafnafdrifaríku og örlagaríku máli, en það segir mönnum kannski dálítið um það hver alvara í reynd er hér á ferðum og hversu afdrifaríkt það er ef menn misstíga sig, einnig í samskiptum hér innan lands á vettvangi þeirra sem ákvarðanir taka. Þetta lýsir líka inn í stöðuna sem menn eru að fara út í. Menn eru að fara út í viðræður í samfloti fimm annarra ríkja sem ætla sér og hafa bundist samtökum um að tala einni röddu gagnvart hinum aðilanum við borðið, Evrópubandalaginu. Og þá eru málin þannig að engir grundvallarhagsmunir ríkja hafa verið teknir út af því samningsborði heldur er það allt inni á borðinu, allt samningsatriði við Evrópubandalagið.
    Ég hlýt í þessu sambandi að beina máli mínu til hæstv. sjútvrh. vegna þess að hann hefur tekið, svo sem rétt er og ágætt, þátt í þessum umræðum hér og sagt margt rétt í þeim efnum varðandi stöðuna í sjávarútvegsmálum. En einn er sá þáttur sem ég hlýt að benda á vegna málflutnings hans og þessarar stöðu sem tengist grundvallarhagsmunum Íslands, auðlindum sjávar og möguleikum okkar til að halda þeim utan við þetta samningsborð og utan við seilingu fjárfestinga útlendinga. Það hefur verið deilt á hæstv. sjútvrh. fyrir að vera ekki kominn í samningaviðræður við Evrópubandalagið, formlegar samningaviðræður

jafnvel, og hann hefur verið að verja hendur sínar í þeim efnum. Hann sagði hér, líklega í fyrradag, í seinni ræðu sinni í þessari umræðu eitthvað á þá leið að hann teldi ekki rétt að ganga til formlegra viðræðna eða lenda inni í formlegum viðræðum við Evrópubandalagið á meðan hætta væri á því ... ( Sjútvrh.: Formlegum samningaviðræðum.) --- formlegum samningaviðræðum, á meðan hætta væri á því að sjálfar auðlindirnar yrðu dregnar inn í þá samninga. Á meðan hætta væri á því að fiskimiðin yrðu dregin inn í þá samninga. Ég skil hæstv. sjútvrh. vel í þeim efnum. Ég styð hann eindregið í því efni að menn eigi auðvitað aldrei að ljá máls á því að fara að ganga til samninga við Evrópubandalagið um hugsanlega hlutdeild þeirra í íslenskum sjávarauðlindum, undirstöðu mannlífs í þessu landi. En hvað liggur fyrir hinum megin? Hvað liggur fyrir hinum megin í EFTA-EB ferlinu? Hvað liggur þar fyrir þar sem menn ætla sér þó stóra vinninginn í sambandi við sjávarútvegsmálin og fríverslun með fisk? Eru sjávarauðlindirnar teknar út af borðinu þar? Ó nei. Þær eru samningsatriði við Evrópubandalagið inni á því borði samkvæmt fyrirliggjandi textum og samþykktum sem utanrrh. landsins hefur gerst aðili að fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands.
    Hvernig stendur á því að menn halda á málum með þessum hætti? Hvernig stendur á því að menn eru ekki samkvæmari sjálfum sér en þetta ber vott um? Hvernig í ósköpunum stendur á því að ráðamenn Íslands skuli láta teyma sig út í ferli með þeim hraða að þeir kunna ekki fótum sínum betri forráð en þetta ber vott um? Ég skil það ekki. Ég skil ekki hvað Íslendingum liggur á að ana út í samflot af því tagi með þau siglingaljós og vita sem utanrrh. landsins notar í sinni málsmeðferð að honum skuli takast að draga alla ríkisstjórnina með sér út í það ferli. Ég á bágt með að átta mig á því þó hann sé kappsmaður. Ég heyri að hæstv. sjútvrh. vill hafa hlutina í lagi. Honum hefur bara ekki verið það ljóst, út frá því sem ég er hér að segja, hvernig málin liggja varðandi sjávarútvegsmálefni okkar við borðið frá Osló og París.
    Það er rétt, virðulegur forseti, maður veit ekki hvar á að grípa niður í stórum þáttum þessa máls. En það er kannski rétt í þessu samhengi, líka af því að hæstv. sjútvrh. er hér viðstaddur umræðuna, að minnast á sjálft keppikeflið, sem ég hef nú leyft mér að kalla tálbeituna, sem notuð er af þeim
aðilum sem eru að draga okkur hálfa leið inn í Evrópubandalagið, þ.e. fríverslun með fisk. Ég segi tálbeituna vegna þess að þar hafa menn í raun ekki skoðað hlutina með þeirri gaumgæfni og alúð sem málefninu hæfir.
    Fríverslun með fisk getur vafalaust talist æskilegt langtímamarkmið frá sjónarhóli Íslands. En ég bið fyrir okkur ef það ætti að ljúkast upp á morgun að við stæðum hér uppi með einhverja formlega samþykkt um fríverslun með fisk og hefðum ekki möguleika á því að stjórna útflutningi á fiski frá Íslandsmiðum, frá Íslandi, unnum og óunnum. Það er

bara eins og menn hafi gleymt að skoða þennan þátt málsins og menn hafi látið draga sig út í samþykktir á svokölluðu fjórfrelsi í von um að uppskera stóra vinninginn í gegnum fríverslun með fisk. Sem svo allir viðurkenna núna, embættismenn og jafnvel stjórnmálamenn, að sé tómt mál um að tala. Ég á meira að segja eftir að sjá það og ég bið hæstv. viðskrh. um að upplýsa okkur hér í umræðunni um það hvernig málin horfi í sambandi við fríverslun með fisk innan EFTA, svo að við tölum nú ekki um sjálft Evrópubandalagið. Hvernig sér hann fyrir sér að Norðmenn standi við það ákvæði samkomulags frá Osló í marsmánuði sl. að innleiða fríverslun með fisk frá miðju ári 1990? Hvernig eru þeir tímabundnu, samningsbundnu áfangar, ef menn hafa ætlað að ná þessu í áföngum, á sama tíma og þær fréttir berast frá Osló við undirbúning fjárlaga fyrir 1990 að styrkjafarganið í Noregi gagnvart sjávarútvegi fari vaxandi en ekki minnkandi? Er sjálfsagt margt í þeim efnum ofur skiljanlegt út frá norskum sjónarhóli og byggðamálum í Noregi og erfiðleikum sem menn þar eiga við að fást. En þetta er nú einu sinni flaggið, fríverslun með fisk. Svona stendur hún völt, þessi stöng gagnvart EFTA, og segja menn þó: Þetta skiptir svo sem engu máli gagnvart EFTA, þetta er sóknaratriði gagnvart Evrópubandalaginu. En hvernig er það sóknarfæri, hæstv. viðskrh. og hæstv. sjútvrh., gagnvart Evrópubandalaginu? Hvernig er það sóknarfæri? Hæstv. sjútvrh. hefur náttúrlega enga trú á því. Hann þekkir allvel til þar. Hann er búinn að funda með sjávarútvegsráðherrum Evrópubandalagsins og hann veit að á dagskrá þessara aðila er ekki nein fríverslun með fisk. Það er eins og að berja í stein að nefna það á þeim bæ. Eitt er nú að fá niðurfellda tollana, en hvað með styrkjakerfið? Enda sagði hæstv. sjútvrh. í umræðunni hér um daginn, og sá þar ákveðið haldreipi, að á meðan þeir héldu í styrkjakerfið væri a.m.k. réttlætanlegt að Íslendingar hefðu stjórn á útflutningi á óunnum og hálfunnum fiski frá Íslandi. Ég tek undir með hæstv. ráðherra. En þetta sýnir okkur út frá hvers konar grunni menn eru að ræða þetta. Engin trú á því að þetta gangi upp, en þetta er notað, ég segi, þetta er notað af þeim aðilum --- og nú fullyrði ég: Vísvitandi. Þetta er vísvitandi notað af þeim aðilum sem vildu og vilja nota tækifærið til þess að komast inn í fordyri Evrópubandalagsins, inn í hið svokallaða evrópska efnahagssvæði og opna hér gáttirnar fyrir erlendu fjármagni, erlendum fjármagnshreyfingum og fjármagnsflutningum landa á milli og erlendri fjármálaþjónustu. Af þeim sem nú sitja í ríkisstjórn er það Alþfl. sem hefur þetta mál við hún og hefur tekist að draga samstarfsaðila sína í ríkisstjórn jafnlangt og raun ber vitni í þessu efni þegar þeir veittu formanni Alþfl. umboð til undirbúnings- og samningsviðræðna út á blekkinguna um fríverslun með fisk sem einhvern möguleika inni á þessu borði.
    Alþfl. er einkennilegt fyrirbæri í stjórnmálunum. Hann er einkennilegt fyrirbæri. Það var orðað hér, að mér fannst nokkuð vel, af talsmanni Kvennalistans í

útvarpsumræðum um vantraust á ríkisstjórnina um daginn, þar sem til þess var vísað að það væri eins og Alþfl. ætti ekkert föðurland. Hann léti spyrða sig saman, ef ég man rétt, með sósíaldemókratíinu út um gervalla Evrópu þegar svo byði við að horfa, eins og hann myndi ekkert eftir því fyrir hvaða fólk hann ætti að vera að tala, fyrir hvaða alþýðu hann ætti að vera að tala. En þetta á sér nokkuð djúpar rætur og langa sögu. Ég ætla að nefna hér, virðulegur forseti, aðeins einn lítinn þátt sem tengist þeirri sögu. Það er ræðustúfur fluttur af þáv. formanni Alþfl., þáv. viðskrh. árið 1963 í febrúarmánuði í Þjóðminjasafni Íslands. ( EG: Það var góð ræða.) Það var góð ræða, segir formaður þingflokks Alþfl. Aðeins svolítill bútur. Þar segir þáv. viðskrh., mig minnir formaður Alþfl. á þeirri tíð, Gylfi Þ. Gíslason ( EG: Hann var ekki formaður þá.) Hann var ekki formaður þá en hann var viðskrh. ef ég man rétt. Með leyfi forseta:
    ,,Einn mestur stjórnmálaskörungur á fyrri hluta þessarar aldar sagði ekki alls fyrir löngu að svo virtist nú komið að helsta ráðið til þess að efla sjálfstæði þjóðar væri að fórna sjálfstæði hennar. Þetta kann að hljóma sem öfugmæli, en orðið sjálfstæði er hér auðvitað notað í tvenns konar merkingu. Átt er við það að svo virðist sem ein tegund sjálfstæðis verði ekki efld nema á kostnað annarrar. 20. öldin er tími fjöldaframleiðslu, stórs markaðs, kjarnorku og geimferða. Tvö mestu stórveldi Vesturlanda, og þá um leið veraldar, eru orðin til við samruna þjóða og þjóðarbrota, jafnvel ríkja. Í Austurlöndum eru að rísa risaveldi sem eru ólíkari hið innra en Evrópa og greinist hún þó í sundurleitar þjóðir og mörg þjóðríki. Hvarvetna gætir viðleitni til að efla samvinnu, tengjast böndum, mynda bandalög. Hvers vegna?
Vegna þess að fjöldaframleiðsla og stór markaður, kjarnorka og geimferðir krefjast stórra átaka, sterkra afla, mikils valds. En fær það dulist mönnum að sérhver samningur milli þjóða, sérhver samtök ríkja, sérhvert bandalag bindur alla þá sem aðild eiga, takmarkar sjálfsforræði þeirra, skerðir sjálfstæði þeirra? Auðvitað vinnst annað. Hversu lengi varðveitir sú þjóð sjálfstæði sitt sem dregst aftur úr öllum og kemur ekki í hlutdeild``, --- ég vænti að hv. alþm. taki eftir --- ,,og kemur ekki í hlutdeild í auknu sjálfstæði og vaxandi öryggi voldugs bandalags í stað minnkandi sjálfsforræðis hvers einstaks.
    Ágreiningur getur varla verið um það að þetta er að gerast í heiminum um þessar mundir. Um hitt getur mönnum sýnist sitt hvað hvort hér stefni í rétta átt eða ranga. En ef menn á annað borð óska bættra lífskjara, ef menn keppa að auknu öryggi, þá virðist þetta leiðin í þá átt. Það sem er að gerast í kringum okkur er að stórveldi eflast, bandalög myndast, olnbogarúm hinna smáu minnkar, skilyrði þeirra til þess að tileinka sér hlutdeild í framförum skerðast, kæna smáríkis dregst aftur úr hafskipi stórveldis eða bandalags.``
    Þessi sérkennilegi þáttur er rifjaður hér upp, þessi ræðustúfur fluttur í Þjóðminjasafni Íslands á 100 ára afmæli þess, vegna þess að í rauninni stöndum við,

sem samstarfsaðilar Alþfl. á Íslandi, nákvæmlega í þeim sporum sem viðskrh. úr þeim flokki, um skeið formaður hans, taldi sig standa í og þau viðhorf sem hann stóð fyrir á þessum tíma og reyndi að verja.
    Ég er að sjálfsögðu ekki að andmæla því að skoðanir af þessum toga komi fram eða sé fram haldið. Það verður að vera mönnum frjálst og á að vera öllum frjálst að berjast fyrir slíkum hugmyndum ef þeir eru sannfærðir um að þær séu hinar réttu. En ég hlýt að vekja athygli á því vegna þess að við erum einmitt nú í dag stödd á sömu slóðum með flokk sem nú fer með umboð í undirbúnings- og samningaviðræðum og stendur fyrir nákvæmlega sömu hugmyndum í öllum meginatriðum sem þarna voru túlkaðar fyrir nokkrum áratugum þegar það var umræðuefni á Íslandi hvort menn ættu að tengjast Evrópubandalagi.
    Kem ég nú að því, virðulegi forseti, sem ég ætlaði að nefna við hæstv. forsrh. en leyfi mér að hafa hér uppi samt að viðstöddum sjútvrh. Það er spurningin um hið yfirþjóðlega í þessum ferli, spurningin um sjálfræði og sjálfstæði sem þessum ferli mun tengjast ef áfram verður haldið. Hæstv. forsrh. sagði hér úr þessum ræðustóli í fyrri hluta marsmánaðar að ekki kæmi til greina að hans mati að Ísland afsalaði sér sjálfræði eða sjálfstæði í hendur yfirþjóðlegra stofnana. Þetta hefur verið endurtekið síðan og ég held að hæstv. forsrh. hafi flutt þennan boðskap í aðdraganda að Oslóaryfirlýsingunni á fundinum í Osló, held að þetta sé að finna í ræðu hans þar. Ég fagna slíkum yfirlýsingum. En ég bið menn um að hlaupa þá ekki frá þeim. Ég er ekki að gera því skóna að hæstv. forsrh. eða flokkur hans sé á þeirri leið. En þá segi ég við hv. framsóknarmenn, hæstv. ráðherra þess flokks: Ef þeir eru þeirrar skoðunar í reynd og ef þeir ætla að standa við þær yfirlýsingar er jafngott að snúa frá viðræðu- og samningaborðinu sem fram undan er vegna þess að þar er ekkert annað uppi, sem raunar er bókfært í yfirlýsingum frá Brussel og París og strax í Osló, annað en valdaafsal til yfirþjóðlegra stofnana í það ríkum mæli að með ólíkindum er. Er ég þá ekki að halda því fram að menn séu búnir að semja um eitthvað eða ganga frá einhverju. En menn eru farnir að leggja netin í þeim efnum og menn eru farnir að skilgreina möskvana. Það er deginum ljósara, hverjum manni skiljanlegt sem nennir að setja sig inn í þessa hluti, að þar er ekkert annað í boði en yfirþjóðlegt vald í sambandi við ákvarðanatöku og lagasetningu, í sambandi við eftirlit og síðast en ekki síst í sambandi við dómstóla. Ekkert annað en yfirþjóðlegt vald sem blasir við. Ætlar Alþingi Íslendinga, ætla alþm. hér að gerast þátttakendur í því að afsala þjóðþinginu því takmarkaða valdi sem það hefur hér? Ég segi takmarkaða vegna þess að það gerist nú í meira mæli en gott þykir, a.m.k. meira en mér gott þykir, að löggjafarvaldið tapi sínu yfir til framkvæmdarvaldsins hér innan lands. En látum nú vera þótt svo sé miðað við hin ósköpin sem við blasa í ljósi yfirlýsinganna frá París og Brussel um hinar yfirþjóðlegu stofnanir, hið yfirþjóðlega net.

    Ég bið hv. alþm. að hugleiða hvað fram undan er nú næstu missirin sem aðalviðfangsefni og verkefni ráðuneytanna á Íslandi og ráðherranna á Íslandi, hvert er meginverkefni þeirra ef þeir ætla að halda áfram samningaferlinu sem dregið var upp með yfirlýsingunni í París. Okkur er tjáð að fram undan sé að fara yfir um mannhæðarháan stafla af lagatextum, kallað ,,acquis communautaire``, gildandi reglur Evrópubandalagsins sem á að fara að kemba í gegnum á vegum ráðuneytanna og stjórnarskrifstofanna hér í Reykjavík. Og ef það gengur upp sem hæstv. utanrrh. lætur sig dreyma um, að hann teymi okkur inn í hið evrópska efnahagssvæði, þá verður það viðfangsefni Alþingis Íslendinga á árunum 1991 og 1992 að breyta löggjöfinni á Íslandi í hverjum lagabálkinum á fætur öðrum til samræmis við ,,acquis communautaire``, til samræmis við gildandi lög Evrópubandalagsins. Menn eiga ekkert val eftir að búið er að semja. Þar eiga menn ekkert val því að það er lagagrunnur þessa bandalags og það er réttur þessa bandalags sem menn eiga að gangast undir. Það
er sá grunnur sem lagður er og mönnum er boðið að ganga inn á. Haldið þið að mikill tími verði til að sinna hér þeim sparðatíningi, --- fyrirgefið þið, góðir alþingismenn, þeim sparðatíningi sem menn hafa verið að fást við hér á Alþingi síðustu vikur og mánuði miðað við það sem þarna bíður í ákvörðunum varðandi framtíð Íslands?
    Menn hafa verið að æsa sig hér í þingsölum út af fjárlögum og þrengingum á mörgum sviðum og vissulega er full ástæða til og eðlilegt. En ég segi: Allt eru þetta léttvæg atriði og lítilvæg miðað við það sem bíður þessarar samkomu, Alþingis Íslendinga, ef við verðum dregin inn í hið evrópska efnahagssvæði, inn á grundvöll Evrópubandalagsins í lögum og rétti. En þetta er það sem flokk utanrrh. dreymir um og þetta er það sem stærsti flokk þjóðarinnar, sem svo er stundum kallaður, Sjálfstfl., forusta hans, heitir fullri þátttöku í og vitna ég þá til þeirra þreifinga sem voru í gangi hér síðustu vikurnar á milli formanna þessara flokka. Ég hef ekki heyrt annað en að hv. 1. þm. Suðurl. Þorsteinn Pálsson ráði ferðinni í þeim flokki um þessar mundir. Og er raunar, --- eigum við að segja bakkaður upp, studdur af varaformanni Sjálfstfl., borgarstjóranum í Reykjavík, sem ég leyfi mér nú að nefna hér í þingsölum þrátt fyrir það sem á undan er gengið síðustu daga. Hann var formaður í nefnd sem kennd var við aldamótin og skilaði álitsgerð til landsfundar Sjálfstfl. Þar var lögð fram blá bók, svokölluð Aldamótaskýrsla, sem hefur að geyma draumsýn varaformanns Sjálfstfl., draumsýn þess flokks. Það er rétt, vegna þess að ég hef verið að vitna til Alþfl., að grípa niður á bls. 21 í þessu plaggi aldamótanefndar Sjálfstfl., hins rísandi formanns þess flokks sem stendur fyrir álitinu þar sem segir, með leyfi forseta:
    ,,Enn er nokkuð óljóst í hvaða átt Evrópubandalagið á eftir að þróast og hvort öllum væringum verði til hliðar bægt árið 1992 og hvort spár um að bandalagið taki á sig mynd

ómanneskjulegs skrifræðisbákns muni rætast og hvort aðildarlöndin séu jafnvel að falla þar í áður óþekkt ofríki opinberrar forsjár. Hvað sem slíkum vangaveltum líður er ljóst að við gætum notað tímann fram til 1992 og reyndar næstu árin þar á eftir til þess að skapa rétt skilyrði hér heima til annars tveggja, að leita inngöngu inn í Evrópubandalagið og/eða fríverslunarsamning við Bandaríkin og Kanada ellegar að ná hagfelldum samningum við báða þessa aðila. (Gripið fram í.) Við hljótum að vinna heimavinnuna með þeim hætti að laga eigið efnahagslíf og leikreglur þess að því sem viðgengst á Vesturlöndum.`` --- Þá vitum við það, hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson. ( GHG: Það er niðurlagið ...) Svo segir hér neðst á síðunni:
    ,,Hugsanlega verður þó skynsamlegast`` --- af því að hv. þm. vill fá meira --- ,,hugsanlega verður þó skynsamlegast að óska beinlínis eftir viðræðum um inngöngu Íslands í Evrópubandalagið þótt menn séu um leið reiðubúnir að láta inngönguna ráðast af því hvort þau skilyrði sem henni kunna að fylgja þyki aðgengileg eða ekki. Verði sú niðurstaðan að þau séu óaðgengileg talin hafa menn heldur engar brýr brotið að baki sér.``
    Þarna höfum við það. Þarna höfum við framtíðarsýn Sjálfstfl. í þessum málum og það er vissulega ekki ámælisvert, miklu frekar hægt að segja að það sé gott að menn komi til dyranna í réttum fötum eins og borgarstjórinn í Reykjavík, varaformaður Sjálfstfl., gerir í þessari skýrslu. En ég skil vel hrollinn í þeim fylgismönnum og talsmönnum Sjálfstfl. sem kunna að vera, og ég vænti að séu, annarrar skoðunar en þarna kemur fram. Hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson sagði m.a. úr þessum ræðustól í fyrradag, það er ekki lengra síðan, eitthvað á þá leið að menn ættu ekki að ýja að því að ganga í Evrópubandalagið. Þetta hefur vafalaust verið kveðja til varaformannsins, ekki aðeins ætluð okkur hér sem á hlýddum í þingsölum. Og ég gladdist að heyra þessi orð úr hans munni og ég vænti alltaf að innstæða sé að baki slíkum orðum um svo stórt mál.
    Virðulegur forseti. Ég hef hér leyft mér að taka á nokkrum þáttum varðandi þetta gífurlega stóra mál og hef þó aðeins sagt fátt eitt af því sem þörf væri á hér við þessa umræðu. Ég vil leyfa mér, vegna þess að ég vænti þess að svefnhöfgi ríki ekki hér yfir sölum svo snemma kvölds og fleiri eiga eftir að tala, að minnast nokkrum orðum á kjarnann í þeim samningi sem á að fara að undirbúa um hið evrópska efnahagssvæði, þ.e. hinar svokölluðu frjálsu fjármagnshreyfingar, um frjáls, óheft þjónustuviðskipti og um búsetu og atvinnurétt til handa útlendingum. Og hvar skyldu nú fyrirvararnir vera í þessum efnum af hálfu hæstv. utanrrh., kynntir ríkisstjórn Íslands og kynntir hér á Alþingi Íslendinga?
    Það er afskaplega dapurlegt að fara yfir niðurstöður stjórnarnefndarinnar frá 20. okt. í þessum efnum. Satt að segja ætlaði maður ekki að trúa sínum eigin augum þegar sá texti var fram borinn. Þeir eru afar takmarkaðir, fyrirvararnir sem þar voru nefndir af Íslands hálfu, t.d. eru engir sérstakir fyrirvarar

varðandi undirstöðuþátt í þessu máli, þ.e. fjármagnsflutninga, óhefta fjármagnsflutninga. Sama gildir í raun varðandi þjónustuviðskipti. Þar eru varnaglar ekki slegnir. Það eina sem segir er eitthvað á þá leið að bent hafi verið á og lýst hafi verið núverandi ástandi. Í minnisblöðum frá hæstv.
ráðherrum Alþfl. er reynt að láta líta svo út sem þar séu einhverjir fyrirvarar á ferðinni, í lýsingu á núverandi ástandi. Það sem fyrir liggur í þessu efni er með slíkum ólíkindum að ég hlýt að vekja á því alveg sérstaka athygli. En Sjálfstfl. er ekkert hissa á hugmyndum um þessi efni. Formaður hans hefur á norrænum vettvangi skrifað undir það að hér skuli allt opnað upp á gátt varðandi fjármagnsflutninga, varðandi þjónustu erlendra banka. Ekki í árslok 1992 eða byrjun 1993, nei, ó nei. Þegar á miðju næsta ári, segir í áliti Efnahagsnefndar Norðurlandaráðs sem hv. þm. Þorsteinn Pálsson lagði sérstaka áherslu á að skrifa undir og fá öllum fyrirvörum rutt úr vegi í þeirri yfirlýsingu þar sem ég setti að sjálfsögðu ákveðna og skýra varnagla. Þetta kemur fram með svo skýrum hætti, ekki bara í gögnum EFTA í þessum viðræðum, heldur að sjálfsögðu fram tekið með sérstökum fögnuði af hálfu Evrópubandalagsins, að á sviði fjármagnsflutninganna séu engin sýnileg vandkvæði. Og grundvallarþátturinn, prófið sem ríkisstjórnin var látin gangast undir fyrst af öllu þann 26. júní sl., var um búseturéttinn, var um flutning vinnuafls og alveg sérstaklega um búseturéttinn, en honum tengist rétturinn til að stofna fyrirtæki og rétturinn til þess að flytja fjármagnið milli landa. Það er lykilatriði. Þar liggur fyrir mjög almennur fyrirvari sem tengist tilvísun í norræna vinnusáttmálann, en í rauninni eru varnaglarnir varðandi stofnun fyrirtækja hér og varðandi rétt til fjármagnsflutninga í því samhengi það marklitlir að erfitt verður á þeim að standa þannig að eitthvert gagn sé að, enda efast ég satt að segja um að viljinn sé ríkur og vísa m.a. til orða hæstv. viðskrh. hér við umræðuna um þetta efni.
    Jú, menn segja: Við ætlum að halda sjávarútveginum og auðlindunum að öðru leyti, orkulindunum utan við seilingu útlendinga. Það er haft á orði. En á borði viðurkenna menn að það muni hvorki vera kleift í reynd og sumir telja það vissulega ekki æskilegt. Fulltrúar atvinnurekenda, sem komið hafa til viðtals við Evrópustefnunefnd, hafa hver um annan staðhæft aðspurðir að ekki muni takast í reynd að halda fyrirtækjum í fiskvinnslu og fiskveiðum utan við seilingu útlendinga ef hér verði opnað upp á gátt fyrir erlenda fjármagnsflutninga til og frá landinu. Þar fyrir utan er þetta ekki spor í eina átt, á því hljótum við að vekja athygli, heldur til beggja átta. Þetta tekur einnig til flutnings fjármagns úr landi, fyrir hann er opnað í þessu samhengi og auðvitað er mjög hætt við því að niðurstaðan úr þessu dæmi til lengri tíma litið horfi einmitt í þá átt að Ísland standi eftir fátækara, jafnvel þótt útlendingar fjárfesti hér í þeim rekstri sem arðbærastur teldist. Sú hætta blasir við að fjármagn streymi úr landi, þar á meðal fjármagn lífeyrissjóða þar sem menn hafa þegar í raun lýst áhuga sínum á

því að geta ávaxtað pundið erlendis.
    Um þetta mætti vissulega margt segja, virðulegur forseti. En eru þá engin varnaðarorð uppi? Þau heyrast, en þau eru of fá. Of fáir hafa tekið á þessum málum og sett sig inn í þessi efni. Ég hlýt þó að vekja sérstaka athygli á áliti sem borist hefur nýlega til Evrópustefnunefndar þingsins frá Bandalagi háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna, ég held samþykkt launamálaráðs BHMR, um miðjan þennan mánuð, líklega 13. des., þar sem er að finna að mínu mati mjög yfirvegaða og vandaða úttekt á þeim hættum sem við blasa í því samningaferli sem við erum hér að ræða um. Ég hvet hv. alþm. til þess að kynna sér þetta álit því það stendur upp úr að mínu mati í þeim álitsgerðum sem fram hafa komið varðandi þessi mál nú um stundir.
    Auðvitað væntum við þess að almannasamtök í landinu taki við sér og ég hlýt í þessu samhengi sérstaklega að nefna álit samstarfsnefndar atvinnurekenda í sjávarútvegi, álit sem hefur verið gert hér að umræðuefni í sölum Alþingis með verðskulduðum hætti og rakið í mörgum greinum. Ég tel sannarlega lofsvert framtak sem þar liggur fyrir hjá samtökum atvinnurekenda í sjávarútvegi. Ég vek jafnframt athygli á því með hversu ósmekklegum hætti brugðist hefur verið við af hæstv. utanrrh. varðandi þau varnaðarorð sem mælt hafa verið af hagsmunagæsluaðilum í íslenskum sjávarútvegi. Hef þá alveg sérstaklega í huga þau skeyti sem formaður Landssambands ísl. útvegsmanna fékk frá hæstv. utanrrh. vegna þeirra varnaðarorða sem Kristján Ragnarsson lét falla um samningaferlið byggt á Oslóaryfirlýsingunni. Þá lét hæstv. ráðherra sér sæma að senda þannig skeyti að ég kæri mig ekkert um að vitna til þess hér úr þessum ræðustól, það er nánast varla eftir hafandi.
    Ef þetta eiga að vera samskiptin, ef þetta á að vera samráðsformið af hálfu íslenskra stjórnvalda við þá aðila sem eru að reyna að setja sig inn í þessi efni hver á sínum bæ í íslenski samfélagi, þá líst mér sannarlega ekki á framhaldið. En ég vænti þess, því að auðvitað elur maður þá von í brjósti, að þjóðin fari að vakna og verða þess áskynja að hér er alvörumál á ferðinni. Hér er ekki hægt að láta sig berast með rómantískri draumsýn um Evrópusamstarf, nauðsyn menningartengsla og öðru af því tagi, almenn orð sem allir hljóta að taka undir, heldur þurfa menn að skoða veruleikann út frá íslenskum byggðum, út frá íslenskum sjónarhóli, lið fyrir lið, en þar hafa menn í rauninni tæpast byrjað á verkunum enn sem komið er. Það er hart að þurfa að segja það og
horfast í augu við það að þannig er ástandið um það leyti sem menn eru að setjast við samningaborð um grundvallarhagsmuni íslensks efnahagslífs og sjálfstæðis.
    Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að taka meiri tíma í þessari umræðu til þess að vekja athygli á mörgum þáttum þessa máls sem ég hef hér fyrir framan mig í málsgögnum og þörf hefði verið á að rekja hér á þessum tímamótum í þessum málum. Ég verð að láta

þá von í ljós að Alþingi Íslendinga og þjóðfélagið í heild, Íslendingar í heild, eigi eftir að taka sig á í þessum efnum, að þjóðinni verði gert kleift að átta sig á meginatriðum í þessu stóra máli sem varðar ekkert minna en sjálfstæði og framtíð þessarar þjóðar.
    Um leið og við hljótum að leggja áherslu á nauðsyn góðra tengsla við Evrópu alla og í aðrar áttir í viðskiptalegum og félagslegum efnum þurfum við að gera okkur ljóst að kannski var aldrei meiri þörf á því en einmitt nú fyrir lítið land, fámennt land eins og okkar, fámenna þjóð að nýta sér kosti smæðarinnar, að átta sig á því að því aðeins höldum við hér velli að við afsölum okkur ekki þeim stjórntækjum sem við náðum inn í landið á fyrri hluta þessarar aldar. Að menn losi sig við þá glýju sem sumir fá í augun þegar þeir líta til stórra bandalaga og sterks valds. Það er ekki með því að sogast inn í þá hringiðu og kasta frá sér árum og stýri sem mönnum tekst að halda uppi sjálfstæðu þjóðríki, síst af öllu þjóðríki við ystu höf sem byggir á mjög sérstæðri efnahagsstarfsemi og við mjög sérstæðar aðstæður í félagslegu tilliti og að ýmsu leyti við örðugar aðstæður. Samt ekki lakari en svo að vegna þess að við náðum hér sjálfstæði inn í landið, vegna þess að við náðum tökum á okkar málum hefur okkur tekist að byggja upp mannlíf í þessu landi, efnahagslíf í þessu landi, lífskjör í þessu landi sem þrátt fyrir allt eru ekki lakari en svo að þau teljast með því skásta, með því besta sem gerist í heiminum. Við eigum hér mikla og ríka möguleika og þá eigum við að rækta.
    Það ætti að vera verkefni okkar hér á Alþingi, fremur en vera að ganga inn á grundvöll Evrópubandalagsins, að átta okkur á þeim ríkulegu möguleikum sem Ísland býr yfir, íslensk fiskimið, íslensk mold, íslensk orka, íslenskt hugvit til þess að halda hér í horfinu og bæta hag manna þegar til framtíðar er litið. Það ætti að vera verkefnið og það verður umræðuefnið, vona ég, á komandi ári um leið og menn reyna að ýta frá sér fölskum draumsýnum og siglingaljósum sem því miður hafa villt um fyrir allt of mörgum nú hina síðustu mánuði. Reynum, góðir þm., hv. þm., að nota áramótin til þess að velta fyrir okkur þessum stóru þáttum sem varða framtíð og sjálfstæði Íslands og reynum að koma til starfa á Alþingi Íslendinga, helst betur búnir og betur væddir en nú er við lok ársins. Og umfram allt að vísa frá þeim röngu ákvörðunum sem stjórnvöld landsins hafa tekið stefnu á í stað þess að einbeita sér að því að takast á og ná fram hagsmunum Íslands sem sjálfstæðs ríkis með beinum hætti við Evrópubandalagið og við aðrar viðskiptaheildir, bandalög og einstök ríki hvarvetna í heiminum.