Veiðieftirlitsgjald
Föstudaginn 22. desember 1989


     Eiður Guðnason:
    Herra forseti. Það er ánægjulegt að heyra áhuga hv. 8. þm. Reykv. á því að efla Landhelgisgæsluna. ( EKJ: Hann hefur alltaf verið fyrir hendi, það veit þingmaðurinn.) Vonandi ríkir þá sami áhugi hjá honum um að afla tekna til að standa undir þeim kostnaði sem hlýtur að vera því samfara. ( EKJ: Ég sagði það, ég vildi leggja til mikið.) Það er vissulega ánægjulegt að heyra það.
    En varðandi ummæli hv. 4. þm. Vesturl. og það sem hann sagði um það mál sem hér er til umræðu, þá hlýt ég að segja það, og lýsa mjög öndverðri skoðun, að sjávarútvegurinn hefur einkaleyfi til þess að nýta þá auðlind sem samkvæmt lögum er sameign allra landsmanna. Áreiðanlega greinir menn ekki á um það að eftirlit þurfi þar að koma til þannig að fylgt sé þeim leikreglum sem settar hafa verið. Og ég verð að lýsa þeirri skoðun minni að ég sé nákvæmlega ekkert óeðlilegt við það að þeir sem njóta þessara hlunninda greiði þann kostnað sem hlýst af því að líta eftir því að reglum sé fylgt. Mér finnst það afar eðlilegt og í rauninni eðli máls.