Almannatryggingar
Föstudaginn 22. desember 1989


     Salome Þorkelsdóttir:
    Hæstv. forseti. Nú ríkir þetta hefðbundna jólaannríki hér á hv. Alþingi sem m.a. lýsir sér í meðferð þess máls sem hér er verið að afgreiða úr þessari hv. deild, en eins og fram kom hjá formanni hv. heilbr.- og trn. hefur nefndin ekki haft tækifæri til að fjalla efnislega um frv. Tókum hins vegar til greina þá meðferð sem það fékk í neðri deild. En eins og alþjóð veit þá vill stjórnarandstaðan gera allt sem hún getur til að tefja ekki fyrir þingstörfum hér rétt fyrir jól og hjálpa stjórnarliðum til að koma málum í gegn og þess vegna höfum við látið duga að skrifa undir þetta frv. með fyrirvara sem felst í því að við hv. 14. þm. Reykv., sem bæði eigum sæti í heilbr.- og trn., hefðum viljað skila nál. á sama hátt og gert var í neðri deild af hálfu þingmanna Sjálfstfl. sem sæti eiga þar í heilbr.- og trn. En eins og ég sagði: Vegna tímaskorts þá látum við duga að gera hér grein fyrir þessum fyrirvara sem felst í því að við munum sitja hjá við atkvæðagreiðslu þriggja fyrstu greina frv. en greiða hins vegar atkvæði með öðrum greinum sem brtt. voru samþykktar við í meðferð málsins í neðri deild.