Danfríður Skarphéðinsdóttir:
Virðulegur forseti. Þar eð ég tók ekki til máls við 1. umr. málsins tel ég rétt að koma hér nú og gera grein fyrir sjónarmiðum Kvennalistans í þessu máli og taka reyndar við hamingjuóskum sem mér og okkur þingkonum Kvennalistans bárust hér frá hv. síðasta ræðumanni.
Ég vil leggja áherslu á það að við teljum eðlilegt að atvinnugreinin standi undir kostnaði við þetta eftirlit. Það kom reyndar fram í tillögum okkar við frv. til laga um stjórn fiskveiða að við teljum eðlilegt að atvinnugreinin standi undir mjög mörgum þáttum, t.d. fræðslumálum sem tengjast atvinnugreininni sjálfri. Fræðsla og vernd fiskstofna er mikið hagsmunamál þeirra sem veiðarnar stunda og því hljóta þeir að vera fúsir til þess að greiða fyrir nauðsynlegt eftirlit. Ég vil hins vegar vekja athygli á því að okkur þykja refsiákvæði við brotum vera heldur slök. Það reynist mönnum ódýrara að draga undan eða taka áhættu einstaka sinnum og borga frekar sektir en fara eftir settum reglum. Vona ég að refsiákvæði verði hert í nýjum lögum um stjórn fiskveiða sem væntanlega verða sett á næsta ári.
En varðandi orð hv. síðasta ræðumanns vil ég aðeins gera örfáar athugasemdir. Ég skil ekki hvaða mun hann sér á miðstýringunni sem hæstv. fjmrh. er afhent eða hæstv. sjútvrh. varðandi ákvörðun um gjald sem þetta.
Það hefur mikið verið rætt um valddreifingu í þjóðfélaginu á undanförnum árum og tel ég hana mjög til góðs. Ég skil valdreifingu svo að fyrstu skrefin séu að auka sjálfstæði og ábyrgð þeirra stofnana sem undir hin ýnsu ráðuneyti heyra. Fjármálaráðuneyti hafa í gegnum tíðina, eins og allir hv. þm., vita ráðstafað lögbundnum tekjustofnum að vild og ekki vílað fyrir sér að svipta þær stofnanir þeim framlögum sem þeim eru ætluð lögum samkvæmt. Ég legg áherslu á að það er nauðsynlegt að ganga enn þá lengra í valddreifingunni og stefna að því að auka sjálfstæði stofnana. Það er að mínu mati ekki verið að
svipta löggjafarsamkomuna öllum völdum í sambandi við ákvörðun um veiðieftirlitsgjald því að fram kemur að hámark veiðieftirlitsgjaldsins er lögbundið í 2. gr.
Það fer nú reyndar að verða spurning sem ég ætlaði aðeins að varpa fram hér eftir að hafa setið og hlustað á ræðuhöld hér í gærkvöldi þar sem hv. 2. þm. Austurl. fjallaði um viðræður íslenskra stjórnvalda við Evrópubandalagið og EFTA. Þar komu fram sjónarmið sem ég geri mér ekki grein fyrir hvort eru heildarsjónarmið Alþb. Það koma líka fram ný sjónarmið í þessu máli og ég ætla að skilja eftir hér spurninguna: Hvað eru mörg Alþýðubandalög á þingi?