Lánsfjárlög 1990
Föstudaginn 22. desember 1989


     Eiður Guðnason:
    Herra forseti. Sú breyting sem gerð var í hv. neðri deild á frv. til lánsfjárlaga er fyrst og fremst til leiðréttingar. Skylt er að geta þess að það hefur ekki verið haldinn fundur í nefndinni hér til að fjalla sérstaklega um þetta mál. Ég hef hins vegar haft samband við einstaka nefndarmenn og meiri hl. nefndarinnar mælir með því að þetta verði samþykkt.