Jólakveðjur
Föstudaginn 22. desember 1989


     Halldór Blöndal:
    Herra forseti. Ég vil fyrir hönd þingmanna þakka góðar óskir og hlý orð í okkar garð um leið og ég þakka hæstv. forseta fyrir góða og röggsama fundarstjórn og góða stillingu þegar á þarf að halda og vil óska honum gleðilegra jóla, góðrar heimferðar og heimkomu og óska þess að við megum hittast heil aftur að jólaleyfi loknu.
    Ég vil þakka skrifstofustjóra Alþingis og starfsfólki fyrir góð störf og mikla þolinmæði þingmönnum til handa þegar á þarf að halda, óska þeim gleðilegra jóla og góðs árs. Ég vil biðja þingdeildarmenn að rísa úr sætum og taka undir þetta. --- [Þingmenn risu úr sætum.]