Tekjustofnar sveitarfélaga
Föstudaginn 22. desember 1989


     Frsm. félmn. (Rannveig Guðmundsdóttir):
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. félmn. um frv. til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 91/1989. Nefndin hefur fjallað um málið og leggur til að það verði samþykkt.
    Undir nál. rita allir nefndarmenn: Rannveig Guðmundsdóttir, Guðrún Helgadóttir, Alexander Stefánsson, Jón Kristjánsson, Geir H. Haarde, Anna Ólafsdóttir Björnsson og Eggert Haukdal.