Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Það kom að vísu fram hjá hv. frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. að frv. þetta hafi fengið mjög stutta yfirferð í Nd. Alþingis og raunar var ekki annað hægt að gera. Því var vísað til nefndarinnar seint að kvöldi í fyrrakvöld og haldinn var fundur í nefndinni í um það bil einn og hálfan klukkutíma í gær á meðan Sþ. var hér á fullri ferð. Þetta er látið nægja í sambandi við meðferð á stórmáli eins og frv. til lánsfjárlaga. Og það sem verra er, það er varla hægt að eyða þessum stutta tíma fyrir miklum óróa í mönnum sem hafa tekið að sér móðurhlutverk og föðurhlutverk ríkisstjórnarinnar eins og formaður fjh.- og viðskn. því að hann situr í stól sínum fyrir enda borðsins eins og hann sitji á nálaroddum eftir að 10 mínútur eru liðnar af fundinum. Og það eru boðaðir til fundar nokkrir aðilar og sagt við þá þegar búið er að spyrja þá nokkurra spurninga: Þakka ykkur fyrir og nú megið þið fara. En svo kom rúsínan í pylsuendanum. Það er ákveðið að hlusta ekkert á þetta fólk sem verið var að kalla hingað ,,því að við ætlum að afgreiða þetta frv. alveg óbreytt`` og þess vegna var enginn tilgangur í raun og veru með fundinum. Það var alveg eins hægt að kalla nefndarmenn, eins og oft er gert í smámálum, hérna inn í stigaherbergið og segja: Er þetta ekki allt í lagi, drengir? Þetta er nú meðferð Alþingis Íslendinga á lánsfjárlögum á síðustu dögum ársins 1989.
Ég hef mjög margt við frv. að athuga. Ég ætla ekki að koma í veg fyrir að það fái afgreiðslu, en það er á ábyrgð þessa stjórnarliðs sem hér situr. Það tekur í raun og veru enga ábyrgð á sig. Það flanar áfram án þess að vita nokkurn skapaðan hlut hvað það er að gera. Það er sannleikur málsins. Og þeir sem sýna sanngirni, eins og hv. síðasti ræðumaður sýndi fram á, og það er raunalegt að það skuli koma fyrir kirkjuyfirvöld í landinu þegar þau sýna sanngirni að muna ekki eftir því sem þau eru að boða almenningi, að rétta
aldrei ónefndri persónu litla fingurinn því að þá gleypi hann ekki alla hendina, heldur allan manninn eða viðkomandi persónu. Og það er það sem gert var í þessu máli. Við skulum segja að kirkjan hafi fengið of mikið með þeirri skattkerfisbreytingu sem átti sér stað. Það hafi komið í ljós. Þá eiga kirkjuyfirvöld að leggja til við Alþingi að breyta þeim tekjustofni, lækka hann ef það er of mikið, en ekki klípa af með þessum hætti og þessum vinnubrögðum sem eru óheiðarleg og ekki samboðin ríkisstjórn og Alþingi að viðhafa.
Í ræðum þeirra tveggja stjórnarandstæðinga sem hér hafa mælt fyrir nál. hefur verið komið nokkuð inn á að frv., eins og það liggur fyrir, sé illa unnið og þar skortir margar upplýsingar. Í frv., eins og það var lagt fyrir, segir um 14.--27. gr. --- það eru allar skýringarnar með 14 greinum frv., og þær eru svona vel úr garði gerðar:
,,Í samræmi við markaða stefnu í frv. til fjárlaga fyrir árið 1990, um skerðingu lögboðinna framlaga, er
með þessu frv. mælt fyrir breytingum ákvæða viðkomandi laga. Hér er um að ræða skerðingu á sjálfvirkum framlögum til ýmissa aðila sem eru bundin í sérlögum.`` Þetta eru nú allar skýringarnar með 14 greinum frv. Það er ekkert yfirlit yfir hverjar þessar skerðingar eru á hverjum lið fyrir sig. Það liggur ekki fyrir enn þann dag í dag. Það er heldur enginn tími til að spyrja því að stjórnarliðar eru búnir að vaða út í áður en þeir spyrja nokkurn skapaðan hlut, þeir sem eiga að stýra þessum málum. Ég spyr því núna formann hv. fjh.- og viðskn. Vill hann ekki gefa þingheimi skýringu á því hvað er skorið niður og hvað er hér um mörg hundruð milljónir að ræða. Til hvers er Alþingi að samþykkja þessi lög og önnur um að ætla þessi framlög til þessa máls og hins og hreykja sér af því hvað það taki myndarlega á málum? Síðan er komið ár eftir ár, og þar eru allir flokkar sekir, til að skera niður þessi sömu framlög. Er ekki kominn tími til þess, og það er búið að tala um það hér á undanförnum árum og alveg sérstaklega í fyrra við afgreiðslu þessa máls, að breyta heldur lögum og fara eftir þeim? Svo eru þingmenn og aðrir að furða sig á því að Alþingi sé að glata virðingu sinni. Vitaskuld er Alþingi búið að missa virðingu sína með því að haga sér með þessum hætti ár eftir ár, að samþykkja lög, brosa framan í landslýðinn og segja: Ja, þetta ætlum við að gera, svona ætlum við að hafa það, en meina svo ekkert með því. Svo kemur frv. til laga þar sem skorið er niður til tuga verkefna samkvæmt sérstökum lögum, bara eftir geðþótta Alþingis, og það hefst alltaf með orðunum ,,þrátt fyrir``. Er furða þó að þjóðin sé orðin þreytt á þessu Alþingi og þeim fulltrúum sem hér sitja sem ýmist gera sér enga grein fyrir hvað verið er að gera eða eru svo kærulausir fyrir því að þeim er alveg sama? Þeir þjóna bara þeirri ríkisstjórn sem þeir dingla aftan í hverju sinni. Flestir þingmenn eru meðvitundarlausir fyrir þessu og vita ekkert hvað þeir eru að gera í þessu máli frekar en mörgum öðrum. Þeir fara bara eftir því sem húsbændurnir, flokksforingjarnir, segja og láta sér það vel líka. Og svo er komið, þegar kemur að næstu kosningum, og sagt: Mikið höfum við staðið okkur vel.
Virðing Alþingis verður ekki endurheimt með því að kaupa Hótel Borg eða byggja nýja þinghöll. Hún verður ekki endurheimt fyrr en Alþingi sjálft tekur mark á sínum eigin gjörðum.
Meðal þeirra sem komu fyrir nefndina á þessum stutta tíma sem formaður nefndarinnar sat svona að mestu leyti, en ekki alveg, voru fulltrúar frá útvarpinu og skv. 26. gr. segir að þrátt fyrir ákvæði 22. og 23. gr. laga nr. 68/1985, útvarpslaga, skuli tekjur á árinu 1990 vegna aðflutningsgjalda af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum ásamt fylgihlutum renna í ríkissjóð. Með öðrum orðum, Alþingi hefur áður samþykkt lög, útvarpslög. Þar er samþykkt um framkvæmdasjóð sem á að standa undir framkvæmdum útvarpsins, standa undir því húsi sem byggt hefur verið, ljúka því, undir dreifikerfi sjónvarps og öllu því sem lýtur að útvarps- og sjónvarpsrekstri ríkisins. Síðan er ákveðið af
Alþingi að gera þessa fyrri samþykkt að engu ár eftir ár og stela öllum þessum aðflutningsgjöldum ríkissjóðs sem áður var búið að ákveða að færu í þetta tiltekna verkefni. Með öðrum orðum, það á að stela því núna rétt fyrir jólin einu sinni enn þá.
Nú ætla ég einu sinni enn að kalla þingmenn almennt og þá ekki síst þingmenn stjórnarliðsins til meðvitundar og biðja þá, nú þegar atkvæðagreiðsla fer fram um þetta atriði, að vera þá með nokkurn veginn fullri meðvitund og vita hvað þeir eru að gera. Ég held að kjósendur almennt ætlist til þess að þingmenn séu með fullri meðvitund þegar þeir eru að taka afdrifaríkar ákvarðanir. Hér er verið að svipta þessa menningarstofnun öllum tekjum --- ekki fyrsta árið eða eina, heldur mörg ár í röð --- án þess að tala eitt orð við forráðamenn Ríkisútvarpsins eða sjónvarpsins. Það eru skattamennirnir, það er Hagsýslan, og fjmrn., sem tekur ákvörðunina ein án þess að tala við neinn. Er hægt að skera allt þetta niður? Getum við komist að því að skera niður helminginn? Nei, það er ekkert sagt. Þessir menn sem stýra þessari stofnun eru hundsaðir, ekki talað eitt orð við þá. Það liggur ljóst fyrir að það þarf að gera aðkallandi framkvæmdir í dreifikerfi sjónvarpsins. M.a. lýstu þeir yfir að það þyrfti að gera framkvæmdir á Höfn í Hornafirði. Austfirðingar eiga hér þingmenn og ráðherra. Það eru framkvæmdir upp á 15 millj. Þær eiga að bíða. Það á að gera framkvæmdir á Þingeyri. Þar er búið að innheimta afnotagjöld ár eftir ár þó að menn sjái ekki sjónvarp nema með höppum og glöppum. Þar er snjókoma allt árið á sjónvarpsskerminum. Ekkert tillit tekið til þessa, ekki neitt, skorið niður bara. Það er Fjárlaga- og hagsýslustofnun sem ræður ferðinni og fjmrn. og fjmrh. Menntmrh. hefði gjarnan mátt vera viðstaddur þessa umræðu en hann hefur víst öðrum hneppum að hneppa.
Langlínustöðin á Vatnsenda er orðin gömul. Möstrin á Vatnsendahæð eru orðin 60 ára gömul. Póstur og sími, sem hefur eftirlit með þessu, hefur á undanförnum árum varað við því að þessi möstur þyldu ekki ofviðri og gæti svo farið að þau hryndu. Ég spyr þingmenn: Ætlið þið að taka ábyrgðina á því ef þessi 60 ára möstur hér á Vatnsendahæð hrynja í næsta stórviðri sem geisar og það geti valdið stórslysi? Þá eruð það þið sem hafið tekið ábyrgðina á því en ekki þessi stofnun. Það er kominn tími til að menn standi ábyrgir gerða sinna.
Ég skal taka fullt tillit til þess sem er að gerast í kringum okkur. Við vitum að ríkissjóður á við vandamál að stríða. Ríkissjóður á fáa vini, sagði formaður fjh.- og viðskn. En ég segi aftur: Það getur verið rétt, en hann á æðimörg handbendi. Og það hefur dugað ríkissjóði þó að vináttuna vanti við hann. (Gripið fram í.) Hann á handbendi en ekki að sama skapi vini. Það er rétt hjá formanni fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar. Við viljum því sýna fyllstu ábyrgð í 2. minni hl. nefndarinnar, við sjálfstæðismenn, hv. þm. Friðrik Sophusson og ég. Við viljum því leggja til og sú brtt. er að koma hér fram að aðflutningsgjöldin verði að hálfu látin renna
í ríkissjóð en að hálfu til þeirra stofnana sem alltaf fá þau öll lögum samkvæmt. Og nú viljum við lofa ykkur, hv. þm. og stjórnarliðar, að standa frammi fyrir þessu: Ætlið þið að forsmá með öllu endurbyggingu dreifikerfisins? Ætlið þið að forsmá með öllu endurnýjun mastranna á Vatnsenda og þar með að eiga á hættu að langbylgjusambandið verði að engu? Það næst þá ekki til skipa og annað slíkt. Ætlið þið að taka þessa ábyrgð á ykkur? Ætlið þið að axla þessa byrði? Og nú þýðir ekkert að fara undir pilsfaldinn hjá þeim í fjmrn. Þið eruð, hv. þm., sjálfstæðir einstaklingar sem hafið heitið því að láta ykkar skoðanir ráða ykkar gerðum hér á Alþingi en ekki vera handbendi einhverra ákveðinna kerfiskarla sem leggja þetta eða hitt til.
Það kemur fram hjá fulltrúum Ríkisútvarpsins að það eru um 6 þús. undanþágur frá afnotagjaldi til ellilífeyrisþega eða öryrkja. Vitaskuld er ekki hægt að leggja þetta á eina stofnun, að hún eigi að endurgreiða sín afnotagjöld með þessum hætti. Hitt er svo annað mál að það verða almannatryggingarnar sjálfar að gera, að endurgreiða þeim sem eiga þennan sjálfsagða rétt. Það er verið að láta saklausa stofnun standa undir útgjöldum sem tilheyra allt öðrum málaflokki.
Það kemur t.d. fram í frv. að settar eru hömlur á Fiskveiðasjóð til erlendrar lántöku þrátt fyrir það að Fiskveiðasjóður hefur minnt á að hann
ætti yfir höfuð ekki að eiga heima í lánsfjárlögum, a.m.k. ekki hvað varðar erlendar lántökur. Það má færa rök fyrir því að sjóðurinn nýtur ekki ríkisábyrgðar á beinum erlendum lántökum. Fiskveiðasjóður hefur tekið lán hjá Norræna fjárfestingarbankanum og hjá Sumitomo og í báðum tilfellum er tekið fram í lánsskjölum að lánin séu veitt án ábyrgðar íslenska ríkisins. Þess vegna á þessi grein ekki heima hér hvað varðar erlendar lántökur Fiskveiðasjóðs. Hins vegar get ég fallist á það og er brýn nauðsyn að undirstrika og samþykkja að allt sem lýtur að innlendri lánsfjáröflun á heima í lánsfjáráætlun. En til þess er ekki tekið tillit. Þeir sem matreiða þetta fyrir þingmenn þurfa ekkert að líta á þetta. Og þeir vita að þingmenn eru ekkert að skipta sér af svona smámunum. Þeir bara rétta upp hendina þegar kerfiskarlarnir segja að nú sé tíminn kominn. Fulltrúar þjóðarinnar, þeir eru nú svona stórbrotnir og skapmiklir og heiðarlegir.
Ég bendi líka á það að eigendur eða félög flóabátanna sem eru hérna inni í lánsfjáráætlun eru látin taka lánin. Þetta er auðvitað alveg sama og að pissa í skóinn sinn. Þessi félög geta ekki tekið þessi lán, það vita allir menn. Áður var hafður sá háttur á við uppbyggingu þessara skipa að ríkissjóður tók lán og lagði fram til þeirra. Svo er þusað yfir því að allt sé í vanskilum sem ríkisábyrgð sé á. Það er vitað fyrir fram að þetta lendir allt í vanskilum og þetta eru í raun og veru framlög sem ríkið á að leggja til en ekki með þessum hætti. En það gæti verið hættulegt að viðurkenna staðreyndir. Það er miklu betra að subba þessu af með þessum hætti sem menn kunna betur.
Ég bendi á skerðinguna á Hafnabótasjóðnum. Ég tel ekki vera hægt að skerða Hafnabótasjóð eins og ástand er víða í höfnum landsins. Það kom fram, og það mjög ákveðið, hjá a.m.k. einum stjórnarliða í fjh.- og viðskn. Nd. að það væri til skammar að stýfa með þessum hætti. En það er ekki nóg að það sé til skammar. Það þarf að leiðrétta það og átti að leiðrétta það.
Þrátt fyrir það að jólin séu á næsta leiti varð ég nú að eyða þessum dýrmæta tíma hv. deildar til þess að ræða þetta mál. Mér er ljóst eins og þeim öðrum í stjórnarandstöðu sem hafa tekið til máls í þessu máli að þessi lánsfjárlög eru ófullkomin og eiga eftir að taka miklum breytingum til hækkunar á árinu 1990. Þau eru algjörlega óunnin hér í Alþingi og Alþingi afgreiðir hér stórmál án þess að vita hvað það er að gera. En svo er það hvers og eins þingmanns að gera upp við sjálfan sig hvort hann telur að þannig eigi að vinna á Alþingi Íslendinga, og ef það er skoðun meiri hluta Alþingis vona ég að guð gefi að þjóðin hvíli þá frá þingstörfum í framtíðinni sem þannig hugsa.