Sighvatur Björgvinsson:
Virðulegi forseti. Hv. 1. þm. Vestf. flutti hér áðan mjög þarfa ádrepu þar sem hann hvatti þingmenn þessarar deildar, jafnt stjórnarliða sem aðra, til að vakna nú til meðvitundar um það hvað þeir væru að gera. Hann tók sem dæmi um það þá tillögu sem hér er lögð fyrir á þingskjali um að skerða tekjur Ríkisútvarpsins af aðflutningsgjöldum hljóðvarps- og sjónvarpstækja. Vissulega er nú farið að draga nokkuð af okkur fjárveitinganefndarmönnum eftir miklar vökur og mikla vinnu, en engu að síður vaknaði ég þó við þessa þörfu ræðu hv. 1. þm. Vestf. og ákvað þá, fyrst menn væru nú komnir með svona þokkalega meðvitund, að afla mér frekari upplýsinga um þetta mál. Niðurstaðan er sem hér segir:
Hér er um að ræða ákvæði laga nr. 68/1985 sem tryggja Ríkisútvarpinu tekjur vegna aðflutningsgjalda af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum. Menntmrh. þegar þessi lög voru sett mun hafa verið hv. núv. þm. Ragnhildur Helgadóttir og er þetta hið besta mál eins og fulltrúi fólksins í landinu mundi orða það í sjónvarpinu. Svo vill hins vegar til að strax næsta ár á eftir er flutt hér á Alþingi frv. til lánsfjárlaga á sérstöku þingskjali, lagt fram af þáv. ríkisstjórn. Og þá býður svo við að horfa að í 27. gr. eru ákvæði sem hljóða svo, með leyfi forseta:
,,Þrátt fyrir ákvæði 22. og 23. gr. laga nr. 68/1985, útvarpslaga, skulu tekjur á árunum 1986 og 1987 vegna aðflutningsgjalda af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum ásamt fylgihlutum renna í ríkissjóð.``
Með öðrum orðum, þetta er algjörlega óbreytt ákvæði sem hefur staðið í öllum lánsfjárlagafrv. síðan. Hver skyldi nú hafa verið menntmrh. þegar þessi ákvörðun var tekin? Að vísu var það ekki hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir því að hún mun hafa verið komin í annað starf. Það var hins vegar fyrrv. hv. þm. Sverrir Hermannsson. Fyrir menn sem ekki hafa náð kannski alveg fullri
meðvitund enn skal það upplýst að sá hv. þm. var og er, að ég held, enn þá í Sjálfstfl. En vera má að menn haldi að það hafi þá verið einhver vondur fjmrh. sem hafi troðið þessu inn í fjáraukalög gegn vilja hv. sjálfstæðismanna og þess ágæta hv. þm. sem talaði hér áðan og ég fór að sjálfsögðu einnig að gá að því hver hefði verið fjmrh. þegar þetta var gert. Það var hv. þm. Þorsteinn Pálsson, núv. formaður Sjálfstfl. Lögin voru því bæði sett og afnumin af Sjálfstfl.
Náttúrlega hefur hv. 1. þm. Vestf., sem talaði svo skörulega hér áðan, verið þá með fullri meðvitund og væntanlega ekki greitt atkvæði með þessari niðurfellingu á tekjum Ríkisútvarpsins. Ég fór nú líka að gá að því. En það var ekki aðeins, virðulegi forseti, að hv. þm. Matthías Bjarnason greiddi atkvæði með þessu ákvæði. Hann sat í ríkisstjórninni, herra forseti, sem lagði þetta frv. fram á Alþingi, þannig að hann stóð að þessari tillögugerð. Þetta er nú niðurstaðan sem mínar athuganir hafa leitt í ljós á þessu máli eftir að ég rumskaði við ábendingu hv. þm. Matthíasar Bjarnasonar. Í bridgeheiminum, sem ég
þekki svolítið, mundi svona vera kallað að ,,opna sér í óhag``. Annars má segja um þessi mál og vanda Ríkisútvarpsins og annarra þeirra sem um er fjallað þarna svona svipað eins og ég heyrði í gær, sögu af bónda norðan úr landi frá ágætum þm. Pálma Jónssyni. Sá bóndi átti kálf sem hann hugðist skera. Ætlar hann að leiða hann á blóðvöll úr fjósinu og fer að togast á. Kálfurinn vill ekki út og stimpist á móti og gengur bónda illa að koma kálfinum út úr fjósinu þangað til bónda verður að orði: ,,Æ, láttu ekki svona, kálfskratti, ég ætla svo sem ekkert að gera þér.`` Síðan tekst að koma kálfinum út og bóndi ætlar að fara að taka til að skera. Þá bítur kutinn illa og hann reynir nú mikið og lengi og gengur illa og ekki deyr kálfurinn. Þá segir bóndi: ,,Ja, hérna, kálfskratti. Á þessum bæ spyrjum við ekki að vopnaviðskiptum, heldur að leikslokum.``
Það má kannski segja það sama um þær fyrirætlanir sem menn eru hér með uppi og hafa verið með uppi í sambandi við málefni Ríkisútvarpsins allt frá því að hv. 1. þm. Vestf. lagði til á Alþingi að tekjustofnar Ríkisútvarpsins yrðu skertir og greiddi því síðan sjálfur atkvæði að menn hafa verið að vinna að niðurskurði en kannski ekki með nægilega beittum hníf. En við skulum spyrja að leikslokum en ekki vopnaviðskiptum, hæstv. forseti.