Geir H. Haarde:
Herra forseti. Ég skal vera mjög stuttorður og ég mun ekki blanda mér í umræður þingmanna Vestfirðinga um Ríkisútvarpið né um aðrar tækifærissögur af því tilefni sem hér hafa komið fram. Ég ætla hins vegar aðeins að víkja að því sem hér er að gerast í sambandi við afgreiðslu þessa máls og varðar sóknargjöld og kirkjugarðsgjöld því að það minnir óneitanlega mjög á þá afgreiðslu sem hér var á Alþingi á síðasta vori þegar svikin voru öll fyrirheit í sambandi við hinn sérstaka skatt í Framkvæmdasjóð aldraðra sem þá var upp tekinn á nýjan leik. Og nú vill svo til, og ég bið hv. 5. þm. Vestf. að bera þau skilaboð til þingmanna Alþfl. því að hann er nú sá eini þeirra sem hér er staddur, að Alþfl. er búinn að svíkja hvert einasta loforð sem gefið var í tengslum við upptöku staðgreiðslukerfis skatta hér á árunum 1987 og 1988. Það stendur ekki steinn yfir steini í þessum áformum, þegar talað var um að leggja niður smágjöldin og bæta aðilum í staðinn tekjurnar með því fé sem innheimtist í staðgreiðslunni. Það var réttilega vakin athygli á því hér áðan af hv. 18. þm. Reykv. að í 30. gr. frv. til lánsfjárlaga er vikið að hinu nýja gjaldi í Framkvæmdasjóð aldraðra sem hér var upp tekið illu heilli á síðasta vori, og nú er byrjað að skerða það á nýjan leik og takmarka það við 160 millj. kr. Ég vil bara minna á það, án þess að ég ætli að lengja þessar umræður, herra forseti, að á síðasta þingi lýsti formaður Alþfl. því yfir að upptaka þessa skatts hér á nýjan leik væri slys. Og Alþfl. er ekki búinn að bíta úr nálinni með það á þessu þingi að standa við þau orð. Það liggur hér fyrir frv. í hv. fjh.- og viðskn. um að afnema þetta skattóféti og koma þessum málum í það form sem heitið var og sem gert var þegar staðgreiðsla skatta var upp tekin hér um árið. Þetta er ekki síðasta orðið í því máli og alþýðuflokksmenn munu þurfa að standa við stóru orðin í því efni. Ég ítreka það hins vegar að hér er ekki um það að ræða að skerða tekjur Framkvæmdasjóðs
aldraðra á einn eða neinn hátt, heldur eingöngu að koma í veg fyrir að almenningur í landinu sé tvískattaður í því skyni, bæði innan staðgreiðslunnar og með sérstökum nefskatti sem ríkið síðan hirðir að stórum hluta hvort eð er.
Ég vildi vekja athygli á þessu, herra forseti, því að nú er byrjað að fitja upp á þessu sama að því er varðar gjöldin til kirkjunnar, sóknargjöld og kirkjugarðsgjöld. Þar voru sérstakir skattar áður. Nú er verið að hirða hluta af þeim í ríkissjóð. Þetta ber allt að sama brunni. Það er engu að treysta þegar virðulegir ráðherrar Alþfl. eiga í hlut í þessum efnum, að ég tali nú ekki um félaga þeirra í ríkisstjórninni.