Hreggviður Jónsson:
Hæstv. forseti. Fyrir hönd okkar alþingismanna þakka ég hæstv. forseta fyrir hlý orð og góðar óskir okkur og fjölskyldum okkar til handa. Ég þakka honum sanngjarna og sérstaklega réttláta fundarstjórn og góða forustu um þingstörf. Fyrir hönd okkar allra óska ég honum og fjölskyldu hans gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Þá vil ég einnig þakka skrifstofustjóra og starfsfólki Alþingis öllu vel unnin störf og óska því og fjölskyldum þess gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Ég leyfi mér að vænta þess að við munum mæta heil til leiks á nýju ári með ljós jólanna í hjarta okkar hér á Alþingi að loknu þinghléi.
Ég vil biðja hv. alþm. að taka undir óskir mínar með því að rísa úr sætum.
[Þingmenn risu úr sætum.]