Fjárlög 1990
Föstudaginn 22. desember 1989


     Ólafur Þ. Þórðarson:
    Herra forseti. Ég hef undirgengist það, eins og aðrir fjárveitinganefndarmenn, stjórnarsinnar, að hækka ekki útgjöld fjárlaga frá því sem hér hefur verið lagt til. En ég vil undirstrika það að þá væri heldur betur misskipt fjármunum frá Byggðastofnun til atvinnuuppbyggingar ef konur ættu að hafa þar 40 millj. en karlmenn þá afganginn, kannski yfir milljarð á næsta ári. Það vekur undrun mína ef menn leggja til að andi jafnréttislaganna sé brotinn við atkvæðagreiðslu hér á þinginu. Ég segi því nei.