Fjárlög 1990
Föstudaginn 22. desember 1989


     Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
    Hæstv. forseti. Með vísan til þeirrar brtt. sem kemur til atkvæða næst á eftir þessari, þ.e. brtt. á þskj. 423, 8. liður þeirrar brtt., þar sem framlög til Háskólans á Akureyri eru talsvert hækkuð frá því sem var í frv. upphaflega og með þeim skilningi að þannig sé þar með fyrir fjárveitingum til Háskólans á Akureyri séð að ákvörðun um að hefja þar nám á sjávarútvegsbraut nái fram að ganga, segi ég nei við þessari brtt.