Matthías Bjarnason:
Virðulegi forseti. Ég tel öfugt farið við þann rökstuðning sem hv. þm. Jón Bragi Bjarnason hafði. Ég tel að sú breyting sem Alþingi gerði á frv. um veiðieftirlit hafi verið skynsamleg, að samfélagið taki að sér helming af þessum kostnaði á móti atvinnugreininni, og það gerði það að verkum að ég get stutt þessa tillögu fyrir mitt leyti. Það var of þungur biti að leggja á atvinnugreinina að standa að öllu leyti undir veiðileyfisgjaldinu, enda var það ekki ofverk ríkisvaldsins að gera það a.m.k. að hálfu og því segi ég já við þessari tillögu.