Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Ég er sannfærður um að í framtíðinni verður farið í rannsóknir þar norður frá og kannaðir möguleikar, m.a. á því hvort þarna muni vera olía í jörðu. Hins vegar tel ég að þetta mál þurfi að undirbúa betur en gert hefur verið, kynna það, og ég mun að þessu sinni ekki treysta mér til að standa að fjárveitingu til verkefnisins og segi því nei.