Guðmundur G. Þórarinsson:
Virðulegi forseti. Það mál sem hér eru greidd atkvæði um snýst um að fella burt úr fjárlagafrv. heimild til að kaupa húseign í nágrenni Listasafns Íslands. Ég hygg að fjvn. hafi ekki haft á borði sínu allar upplýsingar þegar hún fjallaði um þetta mál. Sem formaður byggingarnefndar Listasafns hef ég í höndum samning sem Listasafn Íslands eða byggingarnefnd þess gerði við húseiganda þarna í grenndinni. Þar er sú kvöð lögð á Listasafnið að kaupa ákveðna húseign að tilskildu samþykki Alþingis. Samningur sá sem hér um ræðir er staðfestur af þáv. menntmrh. Ragnari Arnalds og fjmrn., Höskuldi Jónssyni þáv. ráðuneytisstjóra. Ég hygg að þar sem í þessum samningi eru ákvæði um að hann taki ekki gildi fyrr en 7 árum eftir undirskrift liggi sú skýring að fjvn. hefur ekki haft þessi gögn undir höndum og ekki borist þau við afgreiðslu málsins. Frá húseiganda liggur fyrir bréf, svo að menn geri sér grein fyrir stærð málsins, um verð á þessari húseign þegar bréfið er ritað sem er 10--11 millj. kr. Ég hef sjálfur undirritað þennan samning sem formaður byggingarnefndar og gerði mér vonir um að staðið yrði við hann, enda tel ég hann glettilega skýran. Viðræður mínar við fjmrh. um þetta mál hafa snúist á þann veg að ég hef orð hans fyrir því að þetta mál verði tekið upp eftir áramótin. Ég geri mér að sjálfsögðu vonir og enda kröfu um að staðið verði við þann samning sem gerður hefur verið. Í ljósi þess tel ég að um það sé að ræða að samningurinn haldi sínu gildi, við hann verði staðið. Þar af leiðandi hef ég ekkert við það að athuga sem slíkt að þessi liður falli niður og segi þess vegna já.