Fjárlög 1990
Föstudaginn 22. desember 1989


     Eyjólfur Konráð Jónsson:
    Hæstv. forseti. Við 2. umr. málsins greiddi ég atkvæði gegn öllum styrkjum til blaða öðrum en blaðakaupum, 250 eintökum, einmitt til þess að þeim yrði dreift á sjúkrastofnanir og ég tel eðlilegt að það sé gert. En hér er allt of mikið í lagt að kaupa 500 blöð í viðbót (Gripið fram í.) nei, í viðbót, ég las það svo, það væru 750 í allt. Það kemur auðvitað ekki til greina og er bara viðbót við blaðastyrk. Þetta er sýnilega gert til þess að bjarga blöðum og kannski stjórnmálaflokkum. Þetta er einn af þessum pólitísku styrkjum sem eru alrangir og ég er algerlega á móti, þó að ég vilji að sjálfsögðu að sjúklingar fái blöðin, annaðhvort að stofnanirnar sjálfar kaupi þau eða ríkið og þar eru 250 blöð nægileg að ég hygg. Ég segi nei.