Fjárlög 1990
Föstudaginn 22. desember 1989


     Hreggviður Jónsson:
    Hæstv. forseti. Hér er hin pólitíska spilling í hæsta gæðaflokki, ef maður getur sagt svo. Núverandi ríkisstjórn er að hygla sínum eigin blöðum, blöðum sem eru svo leiðinleg að fólkið í landinu les þau ekki, blöðum sem væri betur komin annars staðar en að troða þeim upp á sjúklinga. Ég segi nei.