Fjárlög 1990
Föstudaginn 22. desember 1989


     Ólafur Þ. Þórðarson:
    Herra forseti. Við lestur þess sem hér stóð komst ég að sömu niðurstöðu og hv. 1. þm. Vestf. Hann er nú aldraður en ungur maður í liði sjálfstæðismanna, reikningsglöggur og settur í fjh.- og viðskn. og í erfið mál fyrir þá og fyrrv. starfsmaður í fjmrn., hefur túlkað þetta á allt annan veg miðað við þær upphæðir sem hann gaf upp og því segi ég já.