Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
Virðulegi forseti. Ég vil vekja athygli þingheims á því að kjarninn í þeirri fréttatilkynningu sem hér barst nýlega frá utanrrn. er, og með leyfi hæstv. forseta ætla ég að lesa hann: ,,Íslensk stjórnvöld árétta þá stefnu að leysa beri alþjóðleg deilumál með friðsamlegum hætti í samræmi við sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Á grundvelli þessarar meginreglu þjóðaréttar er ástæða til að harma að bandarísk stjórnvöld hafa talið sig knúin til að beita vopnavaldi í samskiptum sínum við Panama.`` Þetta er boðskapurinn. Þetta er sá friðarboðskapur sem utanrrh. hefur látið frá sér fara nú rétt fyrir jólin en ekki það sem hv. 2. þm. Austurl. hélt hér fram áðan.