Jólakveðjur
Föstudaginn 22. desember 1989


     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
    Virðulegi forseti. Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:

    ,,Forseti Íslands gerir kunnugt:
    Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 112. löggjafarþings, frá 22. desember 1989 eða síðar ef henta þykir, enda verði þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 22. janúar 1990.

Gert í Reykjavík 29. desember 1989.

Vigdís Finnbogadóttir.

            
             Steingrímur Hermannsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``

    Samkvæmt þessu umboði og með tilvísun til samþykktar Alþingis lýsi ég því hér með yfir að þessu þingi, 112. löggjafarþingi, er frestað frá og með deginum í dag og verður kvatt til fundar eigi síðar en 22. janúar 1990.
    Ég vil jafnframt, virðulegi forseti, leyfa mér að nota tækifærið og óska öllum hv. þm., starfsliði og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.