Salome Þorkelsdóttir:
    Hæstv. forseti. Aðeins örfá orð vegna þessarar till. til þál. sem hæstv. félmrh. mælti fyrir. Ég vil lýsa stuðningi mínum við þetta ágæta mál og þarf í sjálfu sér ekki að fjölyrða svo mjög um það. Ég get einnig tekið undir það sem kom fram í máli hv. 9. þm. Reykn. En það er þó einn þáttur sem mér finnst ástæða til að benda á í þessu sambandi.
    Hér kom fram að margt hefði áunnist og margt verið gert en það er líka margt ógert og ekki síst hvað varðar ferlimál fatlaðra. Það er ekki nóg að hafa atvinnutækifæri fyrir fatlaða og þjálfunaraðstöðu og annað slíkt sem er auðvitað mjög nauðsynlegt og sjálfsagt. Ég er ansi hrædd um að það séu fjölmargir staðir og ekki síst hjá opinberum aðilum, hvort sem við tölum um ríki eða sveitarfélög, þar sem fatlaðir hafa bókstaflega ekki möguleika á að ferðast um. Við þurfum ekki annað en að líta okkur nær sem er þessi vinnustaður sem heitir Alþingi Íslendinga, þau hús sem við höfum hér til umráða og þingmenn eiga að starfa í, þar sem þeir hafa sínar skrifstofur, þar sem nefndarfundir fara fram og annað slíkt, eða þetta hús hér. Hvernig ætli fötluðum manni sem léti sér nú detta í hug að fara í framboð til Alþingis og tæki sæti á Alþingi gengi að ferðast hér um og starfa á Alþingi eins og heilbrigður maður?
    Þetta finnst mér vera mál sem mætti gjarnan taka til umhugsunar og athugunar í tengslum við þessa tillögu þegar hún fær umfjöllun í félmn. Sþ. því ég held að þetta sé svo þýðingarmikill og stór þáttur í hagsmunamálum fatlaðra að ekki sé hægt að slíta hann úr tengslum við það sem þessi tillaga fjallar um.