Flugmálaáætlun 1990--1993
Mánudaginn 22. janúar 1990


     Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (um þingsköp) :
    Hæstv. forseti. Þannig tókst til að umræðu þessari lauk og hún varð síðan ekki hafin að nýju eins og þó stóð til vegna fjarveru hv. 2. þm. Norðurl. e., og hef ég ekki um það þau orð sem mér komu þó í hug. En til mín hafði verið beint spurningu sem mér hafði láðst að svara og ég hafði hugsað mér að svara ef umræðan hæfist á nýjan leik. Ég vil leyfa mér að svara hv. þm. Eiði Guðnasyni í einni setningu. Hann spurði hvað liði skýrslu um Hvalfjarðargöng og láta menn sér nú ekki nægja að ræða bara samgöngur á landi heldur jafnvel samgöngur undir hafsbotni þó flugmálaáætlun sé á dagskrá.
    Skýrsla barst til samgrh. í síðustu viku um það mál. Hún verður kynnt í ríkisstjórninni í fyrramálið og verður send í framhaldi af því hv. þm.