Húsnæðismál lögreglunnar í Stykkishólmi
Mánudaginn 22. janúar 1990


     Eiður Guðnason:
    Virðulegi forseti. Ég hef kvatt mér hljóðs hér utan dagskrár til þess að beina fsp. til hæstv. dómsmrh. Fsp. mín er svohljóðandi:
    ,,Til hvaða ráða hyggst dómsmrn. grípa til að halda uppi eðlilegri starfsemi löggæslu í Stykkishólmi þegar lögreglustöðinni þar verður lokað nk. fimmtudag, 25. jan., að kröfu Vinnueftirlits ríkisins?``
    Nokkur orð af þessu tilefni: Frá upphafi hefur lögreglan í Stykkishólmi starfað í ófullkomnu húsnæði. Við það hafa verið gerðar athugasemdir af hálfu Vinnueftirlits ríkisins allar götur frá því í janúar 1985. Þá voru gerðar eftirfarandi athugasemdir:
    1. Raki er í útveggjum og leki.
    2. Fatageymslur vantar.
    3. Kaffistofa er engin.
    4. Þar sem kaffið er lagað er enginn vaskur eða rennandi vatn og það sótt fram á salerni.
    5. Húsgögn úr sér gengin.
    6. Loftræsting ófullnægjandi.
    7. Stólar lélegir.
    8. Neyðarlýsing þyrfti að vera og varaafl fyrir fjarskiptabúnað.
    9. Aðkoma að húsinu er mjög slæm, brattur stigi, illa farin gangstétt og grýttir bakkar til hliðar við stigann.
    Í skýrslu Vinnueftirlitsins frá því 15. sept. 1988 segir, með leyfi forseta:
    ,,Vinnueftirlit ríkisins gerði 17. janúar 1985 athugasemdir við húsnæði lögreglunnar í Stykkishólmi. Þrátt fyrir ítrekanir hafa engar úrbætur verið gerðar.`` Staðan er nákvæmlega sú enn þann dag í dag að það hafa engar úrbætur verið gerðar og nú liggur fyrir að Vinnueftirlitið mun loka þessari
lögreglustöð, ef lögreglustöð skyldi kalla, vegna þess að húsnæðið er ekki með þeim hætti að það standi undir því nafni. Raunar er þetta svo sérstaks eðlis að það er svo komið að ferðamenn sem til Stykkishólms koma gera sér gjarnan sérstaka ferð til að taka myndir af þessu fyrirbæri, þessu húsi sem gengur undir nafninu Lögreglustöð í Stykkishólmi.
    Hér er auðvitað um óviðunandi ástand að ræða og því er spurt: Til hvaða ráðstafana verður gripið til þess að halda uppi eðlilegri starfsemi lögreglunnar í Stykkishólmi þegar Vinnueftirlitið lokar þessum húsakynnum nk. fimmtudag?