Friðjón Þórðarson:
Virðulegi forseti. Fangahúsið í Stykkishólmi er gamalt og lélegt. Það er ófullkomin vistarvera fyrir lögreglumenn á vakt. Sem betur fer þarf sjaldan að nota þá fangaklefa sem þar eru. Vinnueftirlitið telur þetta húsnæði ónothæft. Hæstv. dómsmrh. reyndi að fá fjárveitingaheimild, 10 millj. kr., inn á fjárlög þessa árs til þess að undirbúa byggingu nýs húss í Stykkishólmi yfir sýslumannsembættið í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu, þar á meðal lögreglustöðvar. Það tókst ekki en mundi væntanlega þurfa a.m.k. 2--3 ár til að byggja hús af þessu tagi þó að lóð sé tilbúin á besta stað í bænum og heimamenn fúsir til að greiða götu þessa máls á allan hátt. Þess vegna þarf að útvega húsnæði til bráðabirgða sem dugað gæti allra næstu ár. Að því er nú unnið af hálfu dómsmrn. og vonandi í nánu samstarfi við heimamenn, ekki síst sýslumann. Mér er kunnugt um að bæjaryfirvöld hafa boðið fram húsnæði í þessu skyni við Aðalgötu beint á móti sýsluskrifstofunni. Þar hefur tannlæknir haft aðsetur en er nú að flytja í hús heilsugæslustöðvar. Fleiri möguleikar eru vafalaust fyrir hendi.
Að lokum verð ég að fagna áhuga félaga míns, hv. 3. þm. Vesturl., á löggæslumálum, sem nú virðist nývakinn. Og öllum hv. alþm. leyfi ég mér að benda á hversu miklu, miklu farsælla það er að gera allt sem unnt er til þess að hlynna að sýslumanns- og bæjarfógetaembættum landsins en að rífa þau niður. Svo dýrmæta og mikilvæga þjónustu hafa þessi embætti veitt fólkinu í landinu á liðnum árum og veita enn ef vel er að þeim búið.