Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
    Virðulegi forseti. Hv. þm. hefur látið mig fá þær átta spurningar sem hann lagði hér fram áðan. Áður en ég kem að þeim vil ég segja það að það sem haft er eftir mér í Morgunblaðinu er rétt. Það sem hann las úr Tímanum veit ég ekkert um og veit ekki hvaðan það er komið. Og ég hygg að hv. þm. muni vera eins vel ljóst og mér að fjárhagserfiðleikar eins allra stærsta viðskiptavinar Landsbankans mundu vitanlega valda Landsbankanum gífurlega miklum erfiðleikum. Ég held að það fari ekkert á milli mála. Hv. þm. er bankaráðsmaður í Landsbankanum og þekkir það mál vitanlega betur en flestir aðrir hér inni þó að hann hafi setið þar stutt. Ef ég veit rétt eru skuldir Sambandsins erlendis allmiklar, líklega 9--10 milljarðar a.m.k., og það mundi vitanlega hafa áhrif á, má segja, lántökumöguleika Íslendinga erlendis ef eitthvað af þessum skuldum glatast.
    Eftir því sem ég best veit stefnir nú ekki í slíkt. Eignir munu nægja fyrir skuldum, og mér er tjáð að þetta horfi til betri vegar, bæði með reksturinn, alveg sérstaklega, og samninga við skuldheimtumenn svo að ég hygg að þessi möguleiki sem blaðamaður Morgunblaðsins spurði um sé ekki fyrir hendi, sem betur fer.
    Svo ég komi þá að spurningunum:
    1. Ætlar ríkisstjórnin að aðstoða SÍS með sérstökum fjárhagslegum aðgerðum?
    Svarið er nei. Engin beiðni hefur um það komið og ekkert slíkt verið á borðum ríkisstjórnarinnar.
    2. Hefur SÍS óskað eftir einhvers konar afskiptum ríkisvaldsins af losun eigna?
    Þann 6. jan. gengu nokkrir fulltrúar stjórnar Sambandsins á minn fund, og þar voru þá einnig fjmrh. og viðskrh., og tjáðu sig vilja ganga til viðræðna við ríkisvaldið um sölu á hluta sínum í Íslenskum aðalverktökum, annaðhvort
öllum eða að hluta. Þar var jafnframt vísað til þess sem þeim var kunnugt um, eftir viðræður m.a. við hæstv. utanrrh., að áhugi væri á því hjá ríkisstjórninni að eignast meiri hluta í Íslenskum aðalverktökum. Reyndar hafði tillaga um það verið lögð fyrir ríkisstjórnina 19. des. og samþykkt.
    3. Hafa forystumenn SÍS beðið um ríkisábyrgð á erlendum skuldum?
    Svarið er nei, þeir hafa ekki gert það.
    4. Hvers vegna hefur ríkisstjórnin afskipti af sölu SÍS á hluta þeirra í Samvinnubanka?
    Ríkisstjórnin hafði engin afskipti af því. Hins vegar hefur að sjálfsögðu sá ráðherra sem fer með bankamál fylgst með því enda kemur slíkt til hans kasta að lokum. Hann þarf að athuga hvort það samræmist almennum hagsmunum í bankamálum að einn banki kaupi annan og hef ég ekki tíma til að fara fleiri orðum um það.
    5. Hvers vegna vill ríkisstjórnin kaupa meiri hluta í Íslenskum aðalverktökum?
    E.t.v. er réttara að hæstv. utanrrh. svari því en það er samkomulag um það í ríkisstjórninni að í þessu

fyrirtæki, þar sem um einkaleyfi er að ræða, mjög víðtækt, og með mikla hagnaðarvon, sé eðlilegt að ríkisvaldið eigi meiri hluta.
    6. Verður frv. um það lagt fyrir Alþingi?
    Ég er sammála formanni fjvn. Ég sé ekki að þess sé þörf nema um sé að ræða nauðsyn á að fá fjárveitingu til þess að kaupa þann hlut. Íslenskir aðalverktakar voru settir á fót á sínum tíma á grundvelli varnarsáttmálans. Engin sérstök lög voru sett um þá eftir því sem ég best veit, og reyndar hvílir sú skylda á utanrrh. að sjá fyrir því að einhver aðili annist framkvæmdir á vegum varnarliðsins. Þarna getur því verið um tilfærslu eigna að ræða innan fyrirtækisins, t.d. þannig að greitt sé fyrir með meiri útborgun til þeirra sem láta í staðinn eignarhlut. Hins vegar er rétt að vísa þessu nánar til hæstv. utanrrh.
    7. Hvaða ráðuneyti á að fara með hlut ríkisins í stjórn Aðalverktaka ef af samningi verður?
    Utanrrh. fer nú með þann hlut og ekki eru ráðgerðar breytingar á því.
    8. Á hvað eru eignir Aðalverktaka metnar?
    Það veit ég ekki á þessari stundu en e.t.v. hefur hæstv. utanrrh. svar við því.