Ólafur Þ. Þórðarson (um þingsköp):
Herra forseti. Þess misskilnings hefur gætt hjá hv. 2. þm. Vestf. og forseta að ég hugði þann hálftíma búinn sem ætlaður var til almennrar umræðu um þetta mál. En þar sem þau stórtíðindi hafa gerst að sjálfstæðismenn hafa hafið hér umræðu af eintómum kærleika við Samband ísl. samvinnufélaga þá þykir mér mjög bagalegt að aðeins verði tekinn hálftími í þær ástarjátningar. Þetta er sögulegur atburður og hefur ekki almennt átt sér stað að bankaráðsmaður Landsbankans kveðji sér hljóðs til að ræða stöðu fyrirtækis sem er í viðskiptum við bankann. En margt eiga menn eftir að upplifa og kannski væri eðlilegt að maður spyrði hér og nú hvort forseti telji að það samrýmist störfum þeirra sem sitja í bankaráði Landsbankans að vera hluthafar í Íslandsbanka jafnframt. Ég hygg að það þurfi að taka til í þessum siðgæðismálum á ýmsum sviðum ef menn ætla að fara að gera það almennt og þá sé ekkert óeðlilegt að forseti geri sér grein fyrir því að það þarf meira en hálftíma til að ræða slík mál. En hafi hv. 1. þm. Reykv. aðeins óskað eftir hálftíma til umræðunnar bendir það eindregið til þess að hann hafi ekki hætt sér út í þá umræðu sem hér hefði e.t.v. getað skapast hefðu menn fengið tíma til að tala um þessi mál af fullri festu.