Friðrik Sophusson (um þingsköp):
    Virðulegi forseti. Ég er á mælendaskrá í málinu sjálfu og skal þess vegna halda mig eingöngu við þá umræðu sem hér hefur verið hafin um þingsköp. Ég vil láta það koma fram viðvíkjandi því sem þar hefur verið sagt að ég er tilbúinn til þess í góðri samvinnu við hv. 2. þm. Vestf. að beita mér fyrir því að hér verði tekin upp lengri umræða um þetta mál. Vænti ég þess að hv. 2. þm. Vestf. standi þá við sín orð og óski eftir því að slík umræða fari hér af stað og taki lengri tíma en þennan hálftíma sem hér var til ráðstöfunar.
    Ég taldi að nóg væri að hafa hálftíma í þessa umræðu og mun að sjálfsögðu ræða málið efnislega þegar aftur verður tekið til við það mál sem er hér rætt utan dagskrár. Ég vil eingöngu láta það koma fram hér að ég styð tillögu hv. 2. þm. Vestf. um að þetta mál verði tekið upp síðar, enda sé hann þá fyrsti beiðandi þess. ( ÓÞÞ: Þetta er móðgun við hv. 14. þm. Reykv., hrein móðgun.) Sé þetta móðgun við hv. 14. þm. Reykv. skal ég gjarnan bæta því við til hv. 2. þm. Vestf. að ég styð tillögur þeirra beggja og vil þá þakka það mikla og frábæra liðsinni sem við hv. 14. þm. Reykv. höfum fengið með þessari skeleggu, skýru og greinargóðu ræðu sem hér var flutt nú um þingsköp.