Friðrik Sophusson:
    Virðulegur forseti. Ég vil fyrst af öllu segja að ástæðan fyrir því að beðið var um þessa umræðu var ekki upphlaup fyrir fjölmiðla né heldur til þess að taka hér þátt í einhverri lúsarleit á þjóðarlíkamanum. Ég læt aðra um það, þá sem hafa meiri æfingu í því en ég.
    Það sem vakti fyrir þeim sem hér stendur er fyrst og fremst það að hér hafa verið gefnar yfirlýsingar í fjölmiðlum mánuðum saman um erfiðleika eins stærsta fyrirtækis landsins. Það var nauðsynlegt vegna ríkissjóðs og vegna ríkisbankanna að fá hér staðfest hvernig skilja bæri þau ummæli hæstv. ráðherra sem þegar hefur verið lýst og hér fjallað um.
    Það kemur í ljós og hefur verið staðfest að a.m.k. tveir hæstv. ráðherrar hafa haft afskipti af málum Sambandsins og kaupum Landsbankans á hlut Sambandsins í Samvinnubankanum. Hæstv. forsrh. hefur sagt að það hafi þeir ekki gert á vegum hæstv. ríkisstjórnar, hvernig í ósköpunum sem hægt er að koma því saman, því að eins og allir vita, og Ólafur Jóhannesson klifaði margoft á, þá er ríkisstjórn Íslands ekki fjölskipað stjórnvald. Hver einstakur ráðherra hlýtur að gera það sem hann gerir í nafni hæstv. ríkisstjórnar. Sá skilningur af hálfu hæstv. forsrh. hefur samt sem áður verið staðfestur að hann og hæstv. ríkisstjórn hafi ekki staðið að baki því sem hæstv. fjmrh. og hæstv. viðskrh. hafi aðhafst í þessu máli. Fyrir mér vakti að fá heillega mynd af því hvernig aðstoð ríkisins við Sambandið ætti að vera ef um slíka aðstoð yrði að ræða. Það var nú allt.
    Loks þetta, virðulegur forseti. Það er tvímælalaust ljóst, og ég hef kannað það mál nokkuð, að verði af kaupum ríkisins á auknum hlut í Aðalverktökum sf. verður það mál að koma til kasta Alþingis. Það er rangt sem haft var eftir formanni fjvn., enda vissi hann ekki betur en Aðalverktakar væru hlutafélag.
Það er ekki hægt að taka peninga úr þessu fyrirtæki af hálfu ríkisins nema þeir fjármunir gangi til ríkissjóðs. Og ef ríkissjóður ætlar síðan að nota þá peninga til að kaupa hlut af einhverjum öðrum eigendum er það fjárveiting úr ríkissjóði og samkvæmt íslenskum lögum er það kristaltært að til kasta Alþingis þarf að koma með einum eða öðrum hætti. Að allra síðustu, virðulegi forseti, vil ég segja að ég tel að Samband ísl. samvinnufélaga eigi að fá nákvæmlega sams konar fyrirgreiðslu og önnur fyrirtæki. Það hefur komið fram í þessum umræðum að forráðamenn Sambandsins hafa ekki beðið um neina sérstaka fyrirgreiðslu og þess vegna verð ég að lýsa undrun minni á því að tveir hæstv. ráðherrar í núv. hæstv. ríkisstjórn hafi af eigin frumkvæði haft afskipti af málum sem hæstv. forsrh. virðist ekki hafa hugmynd um.