Halldór Blöndal (um þingsköp):
Herra forseti. Það er algjörlega nýtt að hafa þann hátt á að fresta fundi í fimm mínútur og það eigi að verka svona á þingmenn eins og ef maður er einn á skrifstofu og bregður sér frá og setur miða á hurðina sem á stendur: Kem bráðum. Fimm mínúturnar verða fimm sinnum fimm mínútur og aftur fimm sinnum það. Maður veit ekki hvort fimm mínúturnar þýða fimm mínútur, tíu mínútur, fimm mínútur og fimm sekúndur eða hvað. Það er engin virðing fyrir okkur þingdeildarmönnum að þessu leyti. Farið upp í stólinn aftur og aftur sagt: Frestað í fimm mínútur. Og svo byrjar sami leikurinn. Kem bráðum í forsetastól. Og undir þessu verður stjórnarandstaðan að sitja á meðan hæstv. forseti ráðfærir sig við hæstv. ráðherra sem er frægur að því að svara ekki fyrirspurnum þingmanna, þannig að þýðingarlaust er að bera þær fram þegar hann er með mál og síðan ætlast hæstv. forseti til þess að umræðan haldi áfram eins og ekkert hafi í skorist.
Ég hef sagt hæstv. forseta frá því að ég þurfi að ræða efnislega við hæstv. iðnrh. um þessi mál, Jón Sigurðsson, Gautlending. Og mér dugir það ekki þótt þeir hafi verið börn saman á Ísafirði, þessir þrír, fjmrh., iðnrh. og iðnrh. sem nú er meðan hinn er erlendis. Ég vil fá að tala við þann mann sem gegnir því embætti þegar hann er á landinu að vera iðnrh. ( KP: Tveir í Ögri.) Báðir fjósamenn í Ögri. ( KP: Já.) Báðir gætt fjósa þar. Það er ekki kjarni málsins. Og nú skilst mér á hæstv. forseta að honum finnist þetta einhver ósvífni af stjórnarandstöðunni þegar verið er að tala um það að leggja á almenningsskatt, skattur kemur inn í allt verðlag í landinu, ýmist beint inn á heimilisreikninginn í sambandi við venjulegt rafmagn eða þá til húshitunar, þegar verið er að tala um að leggja sérstakan skatt á orkufyrirtæki sem þrengir samkeppnisstöðu þeirra iðnfyrirtækja íslenskra sem nota mikla orku.
Við getum tekið skipasmíðaiðnaðinn sem dæmi sem að mörgu leyti stendur mjög illa og er satt að segja ekki uppáhaldsatvinnugrein þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr. Við getum komið inn á fleiri slík atriði. Og ég spyr hæstv. forseta í fullri einlægni hvort hann telji það verða til þess að greiða fyrir málinu að við sjálfstæðismenn ræðum aðeins við fjmrh. fyrrv., núv. utanrrh., og gerum svolítið upp sakirnar við hann. Hæstv. fjmrh. gaf sérstakt tilefni til þess áðan þegar hann lagði lykkju á leið sína í frumræðu sinni með því að tala um samkeppnisstöðuna við Evrópubandalagið og auðvitað hafði ég hugsað mér að ræða þau mál sérstaklega við hæstv. iðnrh. Jón Sigurðsson. Ef hæstv. forseti telur að það greiði fyrir málinu að við ræðum þessi mál sérstaklega við báða iðnaðarráðherrana, Jón Baldvin Hannibalsson í dag og á fimmtudaginn og Jón Sigurðsson á þriðjudaginn í næstu viku, þá stendur ekki á mér að taka þátt í þeim umræðum af fullum krafti. En í fullri einlægni, herra forseti, við skulum ekki vera með þjösnaskap á fyrsta degi deildarinnar eftir að hún kemur saman eftir
áramótin, við skulum taka tillit til þeirra sjálfsögðu skoðana að einstakir þingmenn megi krefja hæstv. iðnrh. svara. Við vitum að hann hefur verið að afla upplýsinga í iðnrn. um það hvaða áhrif þetta frv. hefur ef það verður að lögum, og við vitum að einstakir kratar eru farnir að tala um það sín á milli að þetta sé mikil ósvífni í fjmrh. að halda þessu frv. til streitu, og við vitum að það er mikil andstaða innan verkalýðshreyfingarinnar gegn þessu frv.
Ég sem sagt ítreka þetta: Ég vænti þess að hæstv. forseti skilji að það er til þess að greiða fyrir málinu að sýna stjórnarandstöðunni þá kurteisi að hún megi ræða jafnþýðingarmikið mál og þetta við þann mann sem ber ábyrgð á málefnum orku og iðnaðar hér í landinu.