Þorv. Garðar Kristjánsson (um þingsköp) :
Herra forseti. Mér finnst að hæstv. forseti ætti að taka af skarið um það hvað verður framhaldið hér í dag og ekki að fresta fundum svo eins og nú hefur verið í hátt í klukkutíma.
Auk þess sem hv. 2. þm. Norðurl. e. hefur sagt vil ég vekja athygli hæstv. forseta á því að hér er um alveg einstakt mál að ræða og sérstætt. Ég veit sjálfur hvaða vanda forseti, hver sem hann er, getur stundum lent í undir slíkum kringumstæðum sem þessum, sem hér hafa komið upp. En hér er um sérstakar aðstæður að ræða sem ég tel að eigi að taka sérstakt tillit til og á þann veg að fresta umræðum nú. Það sem ég á við er það að samtök allra raforkufyrirtækja í landinu og samtök allra hitaveitna í landinu hafa gert það sem er, mér liggur við að segja einsdæmi. Þessi samtök hafa skrifað hæstv. iðnrh. Jóni Sigurðssyni bréf þar sem farið er fram á að þetta frv. verði dregið til baka. Það er alveg óvenjulegt að svona skuli koma fyrir. Það kann að vera að hægt sé að finna einhver dæmi þess að slík almannasamtök sem hér um ræðir hafi farið fram á að stjfrv. verði dregið til baka, en ég fullyrði að það er mjög óvenjulegt.
Með því að málið liggur svona fyrir þá væri það mjög óeðlilegt að halda áfram umræðum um þetta mál fyrr en hæstv. iðnrh. getur sjálfur tjáð sig um þetta atriði sem er grundvallaratriði, hvort hann fyrir hönd ríkisstjórnarinnar hefur gert ráðstafanir til þess að frv. verði dregið til baka. Með tilliti til þessa vil ég eindregið leggja til að hæstv. forseti fresti þessu máli þar til hæstv. iðnrh. Jón Sigurðsson getur sjálfur greint frá stöðu þess hér.