Nýárskveðjur í neðri deild
Þriðjudaginn 23. janúar 1990


     Forseti (Árni Gunnarsson):
    Um leið og ég býð hv. þingdeildarmenn velkomna til starfa að loknu jólaleyfi vil ég leyfa mér að óska þeim farsældar og heilla á nýju ári og vænti þess að samstarf okkar megi verða gott.