Halldór Blöndal:
    Herra forseti. Það er eins og oft endranær þegar ráðherrar eru spurðir að þeir svara út úr. Í þeim texta sem ég las upp hér áðan var einmitt verið að fjalla um 10. áfanga byggingar Þjóðarbókhlöðu og skýrt frá afgreiðslu hans. Ég var að spyrja hæstv. menntmrh. um það hvernig útboðum og framkvæmdum yrði háttað á því ári sem nú er að hefjast.
    Ég vil í annan stað leggja áherslu á að samkvæmt fjárlögum hefur Endurbótasjóður menningarstofnana 342 millj. úr að spila og ég átta mig ekki á hvað hæstv. menntmrh. var hér að fara með þeim fjárveitingum sem hann ræddi um þar til viðbótar en mun að sjálfsögðu kynna mér það í nefndinni hvað það geti verið. Mér virðist að þar sé þá um eldri heimildir að tefla sem ekki koma inn í það mál sem ég er að tala um hér. (Gripið fram í.) Ja, ég mun athuga það en það stendur ekki hér. Hér er stafliður 22-978 Endurbótasjóður menningarstofnana og undir þeim fjárlagalið er ekki á það minnst sem ráðherrann fór með hér áðan fram yfir það sem ég hef sagt.
    Það er svo alveg rétt sem hæstv. menntmrh. sagði. Auðvitað hefur ríkisstjórnin klipið af þeim skatti sem ætlaður var til menningarmála og fært til almennrar eyðslu, alveg eins og ríkisstjórnin er búin að klípa af hafnafénu, alveg eins og ríkisstjórnin er búin að klípa af vegafénu, þó að hún ætli að reyna að gera meira, og eins og ríkisstjórnin hefur klipið af launum manna. Það fær ekkert að vera í friði fyrir þessari ríkisstjórn. Tekjuskatturinn er kominn upp í 40%. Þeir eru búnir að stela af sveitarfélögunum tæpum milljarði a.m.k., gegnum virðisaukaskattinn. Það á að reyna að stela --- ja, hvað eigum við að segja, einhvers staðar á bilinu 1--2 milljörðum með nýjum orkuskatti sem leggst á almenning í landinu. Það á að hækka bensínskattana um 350 millj. núna 1. mars. Það er alltaf verið að taka af fólki og sjóðum og öllum mögulegum hlutum.
    Ég hef áður rifjað það upp að þegar Hollendingar voru verst komnir bjuggu þeir til sérstakan skatt á gardínur. Við bíðum bara eftir því að hann verði tekinn upp hér á landi líka. ( Menntmrh.: Þetta er hugmynd.)