Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um ábyrgðadeild fiskeldis en með þessu frv. er gerð tillaga um að breyta þeirri skipan sem ríkt hefur á sviði eldislána. Um þetta efni eru í dag í gildi lög nr. 45 frá 16. apríl 1971, um Stofnlánadeild landbúnaðarins, með síðari breytingum. Þau lög gera í núverandi búningi ráð fyrir því að Tryggingasjóður fiskeldislána, sem er í vörslu Stofnlánadeildar landbúnaðarins, veiti greiðslutryggingar fyrir eldislánum sem lánastofnanir veita.
Eins og hv. alþm. muna eftir gera greiðslutryggingar Tryggingasjóðs fiskeldislána ráð fyrir einfaldri ríkisábyrgð. Í lögum um Tryggingasjóðinn eru ákvæði um að ekki skuli gripið til greiðslutryggingar nema tjónabætur dugi ekki til greiðslu á láni og fyrirtæki geti ekki greitt það með öðrum hætti. Þetta þýðir í raun að greiðsluábyrgð kemur ekki til fyrr en eftir að viðkomandi fyrirtæki hefur verið sett í gjaldþrot. Lánastofnanir hafa ekki talið greiðslutryggingar Tryggingasjóðsins nægjanlegar og hefur því verið gripið til þess ráðs að Framkvæmdasjóður veiti einnig sjálfskuldarábyrgðir fyrir þessum lánum.
Í núverandi skipan er gert ráð fyrir iðgjaldi fyrir veitingu ábyrgða í núgildandi lögum og hefur þetta fyrirkomulag hlotið heitið ,,ábyrgð eftirlifenda`` og er þá átt við þau fyrirtæki sem starfa áfram.
Þessi skipan felur það í sér að verði halli á sjóðnum eftir fjögur ár skuli hann greiddur a.m.k. að hluta af þeim fyrirtækjum sem þá verða starfandi í fiskeldi. Mikil óánægja hefur verið með þetta fyrirkomulag meðal fiskeldisfyrirtækja.
Í ljósi þeirrar reynslu, sem fengist hefur af því fyrirkomulagi sem ákveðið er í gildandi lögum og ég hef hér lýst í stórum dráttum, hefur verið ákveðið að gera breytingar á þessu kerfi til þess að stuðla að eðlilegum rekstri fiskeldisfyrirtækja og tryggja það að arðvænleg fiskeldisfyrirtæki geti þróast með eðlilegum hætti.
Í því frv. sem ég mæli hér fyrir er lagt til að stofnuð verði ábyrgðadeild fiskeldis og verði hún sérstök deild í Ríkisábyrgðasjóði. Þær breytingar, sem frv. felur í sér á núverandi fyrirkomulagi, eru:
1. Hin nýja ábyrgðadeild veitir sjálfskuldarábyrgðir ríkissjóðs fyrir allt að 37,5% af verðmæti eldisstofns til viðbótar við lán banka, en Tryggingasjóður fiskeldislána veitir aðeins einfalda ríkisábyrgð.
2. Horfið er frá því skilyrði að fyrirtæki hafi samningsbundin viðskipti við banka fyrir a.m.k. 37,5% af verðmæti eldisstofns. Í stað þess kemur almennt skilyrði um samningsbundin viðskipti við banka.
3. Gert er ráð fyrir svokölluðum ,,sólarlagsákvæðum``, en þau fela það í sér að ríkisábyrgðin fyrir lánum hvers fyrirtækis hverfi á sex árum.
4. Hin svonefnda ,,ábyrgð eftirlifenda`` sem ég lýsti áðan er felld niður.
5. Í samræmi við það að veittar eru beinar
sjálfskuldarábyrgðir ríkissjóðs fyrir lánum er þessi nýja deild vistuð í Ríkisábyrgðasjóði og þar með á forræði fjmrn. Um leið er lagt til að Tryggingasjóður fiskeldislána verði lagður niður, enda má segja að hlutverki hans verði lokið eftir að hin nýja skipan kemst á.
Virðulegi forseti. Með þessu fyrirkomulagi er fiskeldi tryggð lánsfyrirgreiðsla sem er allt að 75% af verðmæti eldisstofns. Þessi skipan felur því í raun í sér bústofnslán og er mikilvægt að árétta þetta eðli hins nýja skipulags. Fyrirtækjum í greininni er tryggð lánafyrirgreiðsla sem er ákveðið hlutfall af bústofni. Lánafyrirgreiðslan hverfur ekki, nema að stofninn hverfi, t.d. vegna þess að fyrirtækin hætta rekstri. Til samanburðar má geta þess að aðrar greinar fá yfirleitt afurðalán sem nemur 75% af birgðum. Þessar atvinnugreinar eru hins vegar annars eðlis þar sem þar er ekki um að ræða bústofn í sama skilningi og í fiskeldisfyrirtækjum. Lánin geta því farið niður í núll ef allar birgðir eru seldar jafnvel þótt viðkomandi fyrirtæki sé áfram í fullum rekstri. Sambærileg afurðalán í tilfelli fiskeldisins væru lán út á slátraðan fisk sem ekki hefur verið seldur. Því er litið svo á að bústofnslán séu hluti af eldislánakerfi því sem hér er gerð tillaga um að upp verði tekið. Í sérstöku ákvæði um stjórnarnefnd er gert ráð fyrir að hún þurfi að samþykkja kjör og form lána sem sjálfskuldarábyrgðin er veitt út á. Þetta er sjálfsagt ákvæði þar sem tryggja þarf að kjörin samrýmist ríkisábyrgð. Um leið opnar þetta ákvæði þann möguleika að lán verði með öðrum kjörum en á hefðbundnum afurðalánakjörum banka, t.d. þannig að vaxtatímabil verði lengri en einn mánuður.
Með þeirri skipan sem hér er lögð til ætti lánamálum fiskeldis að vera betur fyrir komið en nú er. Kerfið verður einfaldara og samskipti við bankakerfið, sem er mjög mikilvægt atriði, ættu að verða auðveldari. Ég tel rétt að taka það fram að í undirbúningi þessa frv. fóru fram viðræður við starfsmenn banka sem umfangsmiklir eru á þessu sviði og margar mikilvægar ráðleggingar komu fram frá þessum starfsmönnum við undirbúning frv. Ég vænti þess því að verði
þetta frv. samþykkt eigi það að geta greitt mjög fyrir samskiptum fiskeldisfyrirtækja við viðskiptabankana.
Með því að afnema kvöðina um veitingu láns frá banka fyrir 37,5% af eldisstofni er búið í haginn fyrir lífvænleg fyrirtæki --- og ég legg áherslu á það --- lífvænleg fyrirtæki sem nú standa utan bankaviðskipta og þau geti þannig komist inn í kerfið, en sum þessara fyrirtækja eru það vel stæð að þau þurfa ekki 75% lánafyrirgreiðslu.
Ljóst er að hafbeit lýtur á margan hátt öðrum lögmálum en eiginlegt fiskeldi og fjármögnunarþarfir hafbeitar eru aðrar. Þrátt fyrir þetta er veitt almenn heimild í frv. til þess að hafbeitarfyrirtæki geti fengið sjálfskuldarábyrgðir deildarinnar fyrir lánveitingum banka- og lánastofnana. Skilyrði þess er m.a. að fyrirtækin uppfylli skilyrði um bankafyrirgreiðslu sem krefst þess að bankarnir hanni einhvers konar
samningsbundið eldislánakerfi fyrir hafbeit. Áður en til veitingar sjálfskuldarábyrgða fyrir lántökum hafbeitarfyrirtækja kemur er gert ráð fyrir að stjórnarnefnd deildarinnar móti reglur um veitingu slíkra sjálfskuldarábyrgða sem samþykkist af fjmrh. í formi reglugerðar. Ákvæðið um hafbeit er heimildarákvæði, en felur ekki í sér kvöð. Hvort þetta ákvæði verður notað mun m.a. byggja á mati stjórnarnefndarinnar skv. 6. gr. þess frv. sem hér er til umfjöllunar.
Til að komast hjá því að fiskeldisfyrirtækin festist til frambúðar í kerfi ríkisábyrgða er ákvæði um að ríkisábyrgð sé að hámarki veitt í sex ár fyrir hvert fyrirtæki, þar af hámark þrjú ár með 37,5% ábyrgð sem síðan fari lækkandi uns hún hverfur alveg að sex árum liðnum. Miðað við allar fyrirliggjandi rekstraráætlanir fiskeldisfyrirtækja sem á annað borð eru arðvænleg er hér um rúman tíma að ræða. Tryggt er að fyrirtækin fái fjármögnun á erfiðasta hjallanum. Eftir það eiga lífvænleg fiskeldisfyrirtæki auðveldlega að geta fjármagnað sig með 37,5% eldislánum frá almennum viðskiptabanka fyrirtækisins eða þá af eigin tekjum. Þessi þáttur er mjög mikilvægur í þessu frv. Hann sýnir að hér er ekki verið að koma á varanlegu ríkisábyrgðarkerfi heldur fyrst og fremst vegna eðlis fiskeldisins verið að greiða fyrir úrlausn lánamála fiskeldisfyrirtækja á erfiðasta tíma í uppbyggingu fyrirtækjanna. Að þessum tíma loknum eigi fyrirtækin og viðskiptabankarnir að geta staðið sjálf undir þessu kerfi til frambúðar.
Gert er ráð fyrir því að sjálfskuldarábyrgðir Framkvæmdasjóðs falli niður samhliða því að ábyrgðadeild fiskeldislána veiti fiskeldisfyrirtækjum sjálfskuldarábyrgðir.
Þá er einnig gert ráð fyrir því að innheimt verði árlegt iðgjald fyrir veitingu sjálfskuldarábyrgða á svipaðan hátt og nú er gert. Iðgjaldið verði ákveðið af fjmrh., að fenginni tillögu stjórnarnefndar. Hins vegar verður hið svokallaða ,,eftirlifendagjald`` í núgildandi lögum fellt niður.
Þar sem hér er gerð tillaga um að ábyrgðadeild fiskeldislána veiti sjálfskuldarábyrgðir fyrir lánum er óhjákvæmilegt í samræmi við þær venjur sem gilt hafa í Stjórnarráði Íslands og almenna stjórnskipan að ábyrgðadeild fiskeldislána verði vistuð í Ríkisábyrgðasjóði. Ríkisábyrgðir má ekki veita nema samkvæmt lögum og venja er að fjmrh. sé ákvörðunaraðili um notkun þeirra á grundvelli laga. Ekki er vitað um neitt fordæmi þess að öðrum ráðuneytum en fjmrn. sé falið ákvörðunarvald um veitingu sjálfskuldarábyrgða ríkissjóðs með þessum hætti, enda má segja að það væri á ýmsan hátt mjög hættulegt og erfitt fordæmi ef einstökum öðrum ráðuneytum væri veitt bein heimild til þess að ákveða ríkisábyrgð.
Stjórnarnefndin, sem tillaga er gerð um í þessu frv., gegnir mikilvægu hlutverki þar sem gert er ráð fyrir að hún samþykki fyrirtækin inn í kerfið á grundvelli ítarlegs, faglegs, rekstrarlegs mats á stöðu fyrirtækisins á rekstraröryggi þess og á því hvort
fyrirtækið hafi rekstrargrundvöll til lengri tíma litið.
Ég vil leggja á það ríka áherslu hér að það er höfuðatriði, nánast forsenda þess að kerfi af þessu tagi geti reynst árangursríkt og traustvekjandi, að sú regla myndist strax í upphafi að ákvörðun stjórnarnefndarinnar, þ.e. niðurstöðu hennar af hinu faglega og rekstrarlega mati, verði ekki hnekkt af ráðherra eða ríkisstjórn. Á þetta vil ég leggja sérstaka áherslu svo tryggt sé algjörlega frá upphafi að ekki komi til stjórnmálalegra afskipta af mati hinnar sérfróðu nefndar á rekstrargrundvelli eða framtíðarmöguleikum hvers fyrirtækis fyrir sig. Með þessu móti er auk þess dregið úr áhættu ríkissjóðs og almennings í landinu af því kerfi sem hér er fjallað um.
Til að tryggja enn frekar að ekki verði um varanlega ríkisábyrgð á fiskeldi að ræða er gert ráð fyrir því að þessi lög falli úr gildi í árslok 1999. Þetta er í samræmi við þá almennu stefnumörkun að nauðsynlegt sé að draga úr ríkisábyrgðum í atvinnulífinu. Æskilegt er að fyrir þann tíma verði búið að leysa rekstrarfjármögnunarvanda fiskeldisins til frambúðar.
Virðulegi forseti. Ég legg til að að lokinni 1. umr. verði þessu frv. vísað til hv. fjh.- og viðskn. þessarar virðulegu deildar.