Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Fimmtudaginn 25. janúar 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Borist hefur svohljóðandi bréf, dags. 25. jan. 1990:

    ,,Sighvatur Björgvinsson, 5. þm. Vestf., hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem ég er á förum utan í opinberum erindagjörðum og get ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Alþfl. í Vestfjarðakjördæmi, Björn Gíslason, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.
Geir H. Haarde,

forseti Nd.``


    Björn Gíslason hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og ég býð hann velkominn til starfa.