Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. 17. þm. Reykv. fyrir að vekja athygli á þessu máli og einnig þakka ég hæstv. félmrh. fyrir hennar skýru svör. Vandi þessa máls er sá, eins og hann skýrði mér frá, að með úrskurði í svokölluðu Ölduselsskólamáli fór Jafnréttisráð inn á nýjar brautir í úrskurðum sínum í jafnréttismálum og neitaði að taka tillit til annarra aðstæðna, neitaði að taka tillit til annarra raka sem ráðið hafði þó gert áður. Ég hygg að ef menn lesa úrskurði Jafnréttisráðs, sem ég hef gert í þaula, m.a. vegna þess að ég var um langt skeið jafnréttis- og félmrh. og undirbjó þá löggjöf sem nú er í gildi í þessum efnum, ef menn lesa þessa úrskurði komast þeir fljótlega að því að þeir úrskurðir sem hér um ræðir og nefndir eru af hv. 17. þm. Reykv. eru ekki reistir á sömu meginforsendum og þeir úrskurðir voru áður sem ráðið felldi þegar m.a. var fjallað um atvinnurekendur eða ráðningaraðila í einkarekstri. Hér var með öðrum orðum um að ræða mjög sérkennilegan úrskurð að mínu mati.
Í öðru lagi vil ég segja í þessu efni að þegar Jafnréttisráð fjallar um mál eins og ráðningu einstaks skólastjóra eða yfirkennara á að líta á starfsstéttina í heild, skólastjóra grunnskóla, yfirkennara grunnskóla. Þar er staðan nú þannig að það er nokkurn veginn alveg sami fjöldi karla og kvenna í yfirkennarastöðum. Konum hefur mjög fjölgað í skólastjórastöðum á síðustu árum, m.a. þann tíma sem ég hef verið í menntmrn. þar sem fleiri konur en karlar hafa verið ráðnar til starfa sem skólastjórar. Gæti ég nefnt um það nýlegt dæmi þar sem menntmrh. ákveður að ráða konu sem skólastjóra til starfa þar sem karlmaðurinn hefði sennilega getað beitt fyrir sig ýmsum gildum lagarökum til þess að gagnrýna niðurstöðu menntmrh., eins og hv. 10. þm. Reykn. þekkir sem sveitarstjórnarmaður í tilteknu sveitarfélagi og hefði gjarnan mátt rekja hér í þessari umræðu.
Virðulegi forseti. Ég held að nauðsynlegt sé að þessi mál séu rædd mjög ítarlega. Ég hafði hins vegar hugsað mér að geyma það þangað til frv. til nýrra jafnréttislaga kæmi hér til meðferðar. Ég held að menn þurfi að gæta þess mjög vandlega að meðferð Jafnréttisráðs á málum af þessu tagi sé sjálfri sér samkvæm í einu og öllu, byggist á fullum, gildum og föstum rökum á hverjum tíma. Og ég held að það sé skynsamlegt að þessi mál fari til nefndar eins og gert er ráð fyrir í því frv. um jafnréttismál sem hæstv. félmrh. nefndi hér áðan, kærunefndar. Ég tel reyndar að það væri eðlilegast að hún væri eingöngu skipuð fulltrúum sem væru tilnefndir af Hæstarétti þannig að þar kæmu engir hagsmunaaðilar af neinu tagi við sögu.