Útgerð Andra BA
Fimmtudaginn 25. janúar 1990


     Skúli Alexandersson:
    Virðulegi forseti. Á undanförnum vikum hafa verið að berast fréttir af íslensku skipi sem statt er einhvers staðar á Kyrrahafi við strendur Alaska. Skip þetta heitir Andri og er skráð eins og fiskiskip með einkennisstafina BA 190, að mig minnir. Sagt er að skip þetta sé þarna statt í þeim erindagerðum að um borð í því skuli vinnast fiskur, allt að 30 þúsund tonn, sem fenginn skuli frá fiskiskipum á þessum slóðum. Bakgrunnur þess að þessa afla sé von sé samningur sem íslensk stjórnvöld eiga að hafa gert við Bandaríkin um leyfi til slíkra veiða og vinnslu íslenskra aðila við strendur Alaska. Samkvæmt fréttum og þeirri staðreynd að enn hefur enginn fiskur fengist til vinnslu í Andra virðast stjórnvöld í Bandaríkjunum ekki viðurkenna að hafa veitt íslenskum aðilum veiðileyfi, hvorki með samningsgerð milli ríkisstjórna né á annan hátt. Ekki verður þó sagt að íslensk stjórnvöld og hv. Alþingi hafi ekki tengst þessu máli. Virðulegur forseti hefur nú veitt mér hér tækifæri til að óska eftir svörum frá ráðherrum um hlut íslenskra stjórnvalda í málinu.
    Þá leyfi ég mér að snúa mér að hæstv. samgrh. Hinn 11. apríl sl. mælti nefndur hæstv. ráðherra fyrir frv. í Ed. um heimild fyrir Íslenska útgerðarfélagið hf. til að kaupa erlendis eldra skip en 12 ára til þessa verkefnis sem hér um ræðir. Þá sagði hæstv. ráðherra m.a.:
    ,,Þannig háttar til að skipaútgerð þessi, ef af verður, er ætluð til að nýta veiðiheimldir`` --- ég undirstrika, veiðiheimildir --- ,,sem Íslendingar hafa skv. samningi við Bandaríkjamenn.``
    Og síðar í umræðunni, eftir að m.a. sá sem hér stendur efaðist svolítið um ágæti þessa frv., sagði hæstv. ráðherra og fjallaði þá sérstaklega um 4. gr.: ,,Varðandi 4. gr. hef ég ekki miklu við það að bæta sem ég sagði þar í upphafi annað en því að þannig háttar til að skilyrði þess að heimildir okkar til fiskveiði og fiskvinnslu í bandarísku fiskveiðilögsögunni á grundvelli
áðurnefnds samnings eru að skipin séu skrásett á Íslandi og sigli undir íslenskum fána. Það er beinlínis sett í þann samning til þess að ekkert sé reynt að fara í kringum hann. Það er því alveg ljóst að við munum aldrei geta nýtt okkur þessi heimildarákvæði og þennan samning nema með skipum sem bæði eru skráð hér og sigla undir íslenskum fána.`` Það var sem sagt lögð mikil áhersla á það hér að Alþingi samþykkti lög til að af því gæti orðið að þessi útgerð gæti keypt sér skip til að nýta þessar veiðiheimildir sem fengnar höfðu verið í milliríkjasamningi milli Íslands og Bandaríkjanna.
    Svipuð ummæli endurtók hæstv. ráðherra í Nd. Ég leyfi mér að spyrja hæstv. samgrh.: Á hverju byggði hæstv. ráðherra þessi ummæli sín um veiðiheimildir?
    Þá leyfi ég mér að snúa máli mínu til hæstv. utanrrh. Skv. fréttum, t.d. Ríkisútvarpsins 15. og 17. þessa mánaðar, hafa embættismenn ráðuneytisins verið sendir til Bandaríkjanna sérstaklega til að sinna þessu

máli til aðstoðar við sendiráð okkar í Washington. Greinilegt er því að ráðuneytið hefur einhverjar áhyggjur af framvindu þessa máls. Hver er skýring hæstv. utanrrh. á samningnum við Bandaríkin sem gerður var 1984? Er hann öðruvísi en haldið hefur verið fram?
    Og þá í lokin, hæstv. ráðherrar. Telur ríkisvaldið sig bera ábyrgð á kaupum og útgerð Andra BA í tengslum við það að kaupin á skipinu og útgerð þess virðist byggjast alfarið á fullyrðingum ráðherra um að gerður hafi verið samningur um veiðiheimildir fyrir íslensk skip við strendur Alaska þar sem Andri BA er nú og bíður árangurs stjórnvalda?