Útgerð Andra BA
Fimmtudaginn 25. janúar 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti hlýtur að þessu gefna tilefni hér áðan að minna menn á að gera sér ekki fyrir fram hugmyndir um það sem menn kunni að segja hér í ræðustól og bera þeim á brýn orð sem ekki hafa verið sögð hér. (Gripið fram í.) Já, ég held að menn verði að hafa hjá sér það sem þeir telja sig eiga von á.