Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
    Borist hefur eftirfarandi bréf:

    ,,Hreggviður Jónsson, 11. þm. Reykn., hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður minn, Kolbrún Jónsdóttir skrifstofumaður, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.``

    Undir bréfið ritar Árni Gunnarsson, forseti Nd.
    Kolbrún Jónsdóttir hefur áður setið á Alþingi á þessu kjörtímabili og er því boðin velkomin til starfa.