Eftirlaunasjóðir einstaklinga
Mánudaginn 29. janúar 1990


     Flm. (Guðni Ágústsson):
    Hæstv. forseti. Ég þakka þær umræður sem hér fóru fram um þetta mál. Það er fyrsta skrefið að ræða málin. Auðvitað er ég missáttur við þær ræður sem voru fluttar og mér finnst að hugmyndin hafi hvergi verið hrakin af vegi. Hér komu ákveðnir menn sem jafnan reyna, þegar eitthvað nýtt kemur upp, að slá menn út af laginu með útúrsnúningi eða reyna að gera þá hjákátlega.
    Hér reið á vaðið hv. 10. þm. Reykn. Hún ræddi þetta málefnalega og henni skildist að þetta hentaði kannski vel fyrir það fólk sem færi fljótt út í lífið að starfa en verr fyrir hitt. Ég gat þess í framsöguræðu minni að það hefði komið mér mest á óvart hvað mér sýndist að væri mikill jöfnuður einmitt með þessum aðilum, þeim sem fara fljótt út á vinnumarkaðinn og eru á lægri launum út starfsævina og hinum sem fara í langskólanám og eru þá oft á hærri launum. Ég er ekki með þá útreikninga hér hjá mér en þetta atriði hef ég einmitt skoðað og sýnist jöfnuður þar.
    Hv. 11. þm. Reykv. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir vill einn sameiginlegan lífeyrissjóð. Þess hafa fleiri getið hér í dag, að þeir vilji einn sameiginlegan lífeyrissjóð og hafa sumir nefnt gegnumstreymissjóð. Mér sýnist að sú leið, að ná því í gegn að stofna einn lífeyrissjóð, hafi verið torsótt. Það hefur síðasti áratugur sýnt, og lengri tími reyndar, að það er erfitt. Þess vegna kemur þessi hugmynd fram, að finna nýja leið til að ná árangri í þessum frumskógi lífeyrissjóðanna.
    Hvað gegnumstreymissjóð varðar hafa lífeyrissjóðsmenn sjálfir sagt mér að hann gangi ekki upp af ýmsum ástæðum. Hann gangi ekki upp vegna þess að hann verði eins og gott keðjubréf sem fer í gang. Þeir sem fyrstir fá úr honum fái mikið en síðan verði það annaðhvort að minnka eða að þyngja gjaldið á þeim ungu sem á vinnumarkaðinum verða. Sú einfalda ástæða ræður því sem ég gat um
hér áðan að aldursskipting þjóðarinnar á eftir að breytast mikið á næstu 20--30 árum. Það verða margir sem njóta eftirlauna en tiltölulega fáir á vinnumarkaðinum. Þeir hafa sagt mér að það kerfi gangi ekki upp og vilja halda fast í söfnunarkerfi.
    Ég undraðist málflutning hv. 14. þm. Reykv., ég get ekki annað sagt. Bæði þótti mér hann heyra illa málflutning minn hér úr ræðustólnum og bresta þá sýn eða víðsýni til þess að tala um þessa tillögu eins og raunverulega tillögu. Hefur hv. þm. ekki hitt fólkið hér á götunum í Reykjavík? Hefur hann ekkert rætt þetta mál við kjósendur sína, hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson? Ég þarf aldrei að minnast á þetta mál þar sem ég fer á fundi, fólkið gerir það sjálft því það hefur trú á að þarna sé opnuð hugmynd eða leið sem muni bæta kjör þess. Ég verð líka var við það þegar ég er á göngu hér í Reykjavík, að til mín ganga bláókunnugir menn sem vilja ræða þessa hugmynd og taka undir hana. Ég sé líka það sem stendur í blöðunum um þetta mál. Ég heyri líka fjallað um það í Þjóðarsálinni með jákvæðum hætti, þannig að ég

undraðist málflutning hv. þm. Guðmundar H. Garðarssonar. Hann sagði að ég hefði talað niður til verkalýðsforingja. Hvar talaði ég niður til verkalýðsforingja? Ég notaði mjög hógvær orð. Ég sagði að sumir stjórnmálamenn og sumir verkalýðsforingjar væru mjög andvígir þessu máli. Ég notaði ekki önnur orð. Hún sáir efasemdum þessi tillaga, sagði hv. þm. Af hverju sáir hún efasemdum, af hverju sá góðar hugmyndir efasemdum? Það eru efasemdir í gangi í dag eins og ég rakti hér. Fleiri hafa komið inn á og staðfest það sem ég hélt hér fram, að 15--20% af starfandi fólki í samfélaginu hafi horfið út úr lífeyrissjóðunum eða aldrei komið inn í þá. Hvers vegna? Vegna þess að þeir trúa ekki á þá.
    Ég hef aldrei haldið því fram og hélt því ekki hér fram að það væri almenn óreiða hjá öllum lífeyrissjóðum. En hugsið aðeins aftur í tímann. Hafið þið ekki heyrt talað um hverja óreiðuna á fætur annarri? Það hefur kannski ekki verið nema hjá fimm eða tíu sjóðum á síðustu fimm árum en það er ærið. Auðvitað eru hlutirnir í góðu lagi hjá mörgum lífeyrissjóðum sem betur fer. Þó hygg ég að það sé nokkuð almennt, eftir mínum upplýsingum, að ársskýrslur liggi ekki fyrir fyrr en seint.
    Guðmundur H. Garðarsson sagði að ég hefði talað um að opinberir starfsmenn væru óánægðir með sín kjör. Ég viðhafði aldrei þau orð en ég sagði: Þeir taka undir þessar hugmyndir og telja þetta betri kost en það öryggi sem þeir þó búa við. Ýmsir þeirra hafa sagt við mig: Ég er að pína mig í vinnu sem ég er löngu orðinn hundleiður á og langar að skipta en ég hef ekki efni á því fjölskyldu minnar vegna. Ég verð að vinna mér inn prikin áfram þangað til ég er kominn á fullan rétt. Þetta kerfi gerir menn frjálsari að skipta um starf og þeim sýnist fljótt á litið eins og mér að margt gott sé í þessum hugmyndum.
    Nú munu vextirnir hækka, segir Guðmundur H. Garðarsson. Það hefur verið sagt að lífeyrissjóðirnir hafi spennt upp vextina í landinu á síðustu árum. Ég hef séð stjórnmálamenn skrifa um það, ég hef séð menn taka það út og telja það fullsannað. En þetta kerfi gæti lækkað vexti. Við skulum hugsa okkur unga manninn sem er búinn að starfa í 10 ár úti í atvinnulífinu og fer þá að stofna fjölskyldu og byggja. Hann á orðið glettilega góða innistæðu í bankanum sínum.
Er ekki líklegt að bankakerfið mundi taka öðruvísi á málefnum einstaklinganna eftir að svona hugmyndir væru komnar í gegn og segja: Nú höfum við trygginguna hér á bak við þig sem er bókin góða. Nú getum við lánað þér til 10 ára. Kannski getum við sparað á mörgum sviðum öðrum hjá ríkinu á eftir, lagt niður Húsnæðisstofnun og fleiri liði. En aðalatriðið er auðvitað að fjalla um þetta og sjá þær umsagnir sem þetta mál fær.
    Eitt nefna menn mjög til að hræða með. Þeir segja: Hvað er maðurinn að tala um? Hann er að gagnrýna að til eru 100 lífeyrissjóðir á Íslandi. Sjálfur vill hann stofna 150 þúsund sjóði. Þetta gengur kannski í augun á einhverjum. En fólkið er ekki alveg blint. Það veit

að þegar laun eru reiknuð út í fyrirtækjum fara greiðslur hingað og þangað og þetta gerist nánast sjálfvirkt í tölvu. Þetta yrði því mjög vandalítið. Ég hef rætt við ýmsa forstjóra fyrirtækja sem segja að það mundi engu breyta í þeirra skrifstofuhaldi hvor leiðin yrði farin, þessi leið eða sú sem nú er, því að vissulega er það svo á mörgum vinnustöðum að fólkið er í mörgum lífeyrissjóðum.
    Ég þakka hv. þm. Ásgeiri Hannesi Eiríkssyni sem tók undir þessar hugmyndir og hv. 6. þm. Norðurl. e. Stefáni Valgeirssyni sem hélt hér góða ræðu í þessu máli þar sem hann sýndi að hann býr yfir víðsýni og telur ekkert að því í sjálfu sér að kanna svona leið. Þetta er nú fyrst og fremst hugmynd. Það er rétt hjá honum. En hann taldi að þetta væri ekki leið til að jafna á milli. Ég hef farið yfir það. Hann ræddi síðan um að útreikningar mínir væru kannski ekki alls kostar réttir eða hann tryði þeim ekki. Ég var nákvæmlega sömu skoðunar og Stefán Valgeirsson áður en ég fór að reikna. Mér þótti ótrúlegt að maður sem legði fyrir 7 þús. kr. á mánuði með 5% vöxum ætti orðið 13--14 millj. eftir 40--45 ár. En ég lét reikna það hvað eftir annað að þetta var staðreyndin. En það skiptir í sjálfu sér ekki höfuðmáli.
    Menn hafa reynt að gera lítið úr málflutningi mínum og segja: Hann er að tala um að 41% iðgjaldanna fari í rekstur sjóðanna. Ég sagði: 4--41%. Bestu sjóðirnir taka ekki nema 4% í rekstrarkostnað en aðrir mun meira. Þetta hefur verið tekið út og liggur fyrir. En mjög algengt er að það sé á bilinu frá 10 og upp í 30%, mjög algengt milli 10 og 20. Ég er hér með úttekt á því máli um einstaka sjóði en veit ekki hvort ég á að fara að lesa hana hér upp. En þetta er nú mjög algengt og auðvitað er það mikill rekstrarkostnaður. Honum þyrfti að ná niður í 4%. Ég hef ekki sett alla undir einn hatt. Ég hef farið í lægstu töluna og bent á hvar þetta er mest og ekki einu sinni nefnt nöfn um það. Ég hygg að eftir því sem Guðmundur H. Garðarsson sagði hér hrökkvi sjóðfélagarnir ekkert við því að hann telur að þeir viti allt um sinn sjóð. Ég hygg að sjóðfélögum þeirra sjóða sem eru með þessi mál í góðu lagi bregði ekkert við því að þeir fá þá og hafa þær upplýsingar í sínum höndum.
    Ég hef farið þá leið að leggja fram þessa þáltill. ásamt félögum mínum því að ég er einu sinni þeirrar skoðunar, eins og segir í spakmælinu, að sú saga sem lýsir tilraunum manna til umbóta á heiminum skráir eina staðreynd stórum stöfum. Hún er sú að sé beitt þvingunum vekur það þrjósku og tilganginum verður ekki náð. Sú stefna sem hrósa á sigri verður að styðjast við siðferðilegar forsendur og skírskotun til mannlegrar skynsemi. Ég hygg og vænti þess að þessi hugmynd fái góða meðhöndlun í félmn. og ég efast ekkert um það. Ég treysti formanni þeirrar nefndar mjög vel til þess. Og ég vona að gerð verði virkileg úttekt eða alla vega fáist þær umsagnir í gegnum þingið að menn geti tekið afstöðu og lagt síðan til eða hafnað að fela ríkisstjórninni það sem við leggjum hér til.

    Það var rétt sem hv. þm. Stefán Valgeirsson sagði, að hér er ekki verið að tala um það að þeir sem eiga prikin í lífeyrissjóðunum eigi að tapa neinu. Lífeyrissjóðirnir eiga í dag 100 milljarða. Þetta er þekkt stærð og þess vegna hægt að reikna það út og hverfa frá kerfinu hægum en föstum skrefum. En mennirnir fá það greitt sem þar er ef breytt yrði um kerfi.
    Í sambandi við það atriði þegar bankabókin er búin, eins og þeir segja. Ég tel að ef hún geymi þessar upphæðir sem ég nefndi þá verði hún aldrei búin heldur muni hún nýtast fólki svo lengi sem það lifir. Ég lét t.d. athuga hversu margir Íslendingar í dag eru eldri en níræðir. Það eru 916 einstaklingar á Íslandi eldri en níræðir. Nú hef ég ekki kannað hve stór hluti þessa fólks er á sjúkrastofnunum, en ég hygg að hann sé ærið stór sá hópur þessa fólks sem þegar er kominn á framfæri ríkisins.
    Hitt sem ég minntist á, auðvitað gæti það vel komið til greina að taka upp einhverja tekjutryggingu þegar fólk hefur náð níræðisaldri og láta það halda tekjutryggingu út ævina.
    Ágætu þingmenn. Ég vænti þess að þetta mál fái umfjöllun og í rauninni er ég sannfærður um niðurstöðuna ef þjóðin væri spurð, t.d. í almennri skoðanakönnun hvaða kost hún vildi, hvort hún vildi skoða þessa leið. Þá mundi það blasa við að stór hluti þjóðarinnar mundi biðja um þessa leið í staðinn fyrir það kerfi sem við búum því miður við eins og ástatt er í mörgum lífeyrissjóðum. En við skulum líka gera okkur grein fyrir því að lífeyrissjóðirnir hafa bent stjórnmálamönnum á að það þurfi að gera ýmislegt til að mæta þeim vanda sem ég
er hér að tala um. Hvað biðja þeir um í dag? Þeir biðja um í dag að hækka gjaldtökuna af launum úr 10 í 16--18% til að mæta þeim vanda sem er fyrir hendi. Við skulum taka sjómennina. Þeir greiða í lífeyrissjóð af öllum sínum launum hvort sem það er aflahlutur eða tímakaup.
    Ég vænti þess að þetta mál fái þá umfjöllun á næstu vikum og mánuðum sem því ber því að ég er sannfærður um að hér er virðingarverðri hugmynd komið á framfæri sem Alþingi hlýtur að vilja að þjóðin fái að segja sína skoðun á og fjalla um. Ég treysti að vísu best á hinn almenna mann í landinu að hann geri þetta mál að sínu máli og leiði það til lykta. Ég er sannfærður um að hér er hreyft stórmáli sem er miklu öruggari og vænlegri leið fyrir þjóðarheildina en sú óvissa sem við því miður búum við í dag.