Friðjón Þórðarson:
Virðulegi forseti. Þessi þáltill. er að sjálfsögðu allra góðra gjalda verð. En hún er auðvitað aðeins einn þáttur af ferðamálunum sem nú er verið að athuga og þurfa að vera í stöðugri athugun vegna þess að ferðaþjónustan er mikilvæg atvinnugrein.
Nú um þessar mundir og að undanförnu hefur starfað nefnd á vegum samgrn. að mótun ferðamálastefnu. Hún hefur starfað af miklum krafti undir forustu hv. 2. þm. Austurl. Fyrir ári eða árum var samþykkt tillaga um akstur utan vega sem hv. 3. þm. Norðurl. e., sem hér lauk máli sínu, er að vinna úr í nefnd. Ég á sæti í báðum þessum nefndum og tel mikilvægt að formenn þeirra herði á róðrinum þannig að þessar tvær nefndir ljúki störfum sem fyrst því það er mikilvægur þáttur í því að þoka þessum málum áleiðis. Og eins og bent hefur verið á er rík þörf á að ræða þessi mál, það er þörf á að móta um þau góðar og gagnlegar reglur til að sinna þessum mikilvæga þætti í atvinnumálum okkar.