Flm. (Danfríður Skarphéðinsdóttir):
Virðulegi forseti. Ég vil þakka þá jákvæðu umræðu sem fram hefur farið um þessa till. og þann stuðning sem hún hefur greinilega hér í þingsölum. Og ég vil þakka þeim hv. ræðumönnum sem hér tóku til máls fyrir ýmsar ábendingar sem þeir komu með sem ég minntist reyndar ekki á í máli mínu. Sérstaklega þakka ég ábendingar varðandi umhverfismálin og innflutning á matvælum og eldsneyti, svo og þessa stóru farþegabíla sem eru farnir að sjást hér á þjóðvegunum á sumrin sem koma með erlendum bílstjórum sem eru jafnframt fararstjórar.
Ég vil enn og aftur ítreka að ég tel það grundvallaratriði að við höldum þessum atvinnuvegi í okkar höndum og þess vegna, þó þetta sé aðeins lítið brot af þeirri heildarstefnu sem við þurfum að móta okkur í ferðamálunum, vil ég ítreka að ég tel mjög brýnt að þessi tillaga nái fram að ganga núna á þessu þingi.