Orkuskattur og kjarasamningar
Þriðjudaginn 30. janúar 1990


     Guðmundur H. Garðarsson:
    Virðulegi forseti. Án þess að gera athugasemd við það sem virðulegur forseti sagði áðan vil ég vekja athygli á því að fyrir viku var þess krafist af hv. þm. í þessari deild að þeir afgreiddu það mál strax sem hér er nr. 2 á dagskrá, þ.e. um skattskyldu orkufyrirtækja. Þá var mættur hér hæstv. fjmrh. og flutti ítarlega ræðu. Ráðherra var mjög stóryrtur svo að ekki sé meira sagt. Nú hefur það komið fram, m.a. í fjölmiðlum, að þessi ráðherra hyggst halda áfram þeirri, ég vil segja ruddalegu aðferð að leggja stóraukna skatta á þjóðina og þó alveg sérstaklega Reykvíkinga með þeim hætti sem fram kemur í því frv. sem ætti að vera til umræðu samkvæmt dagskrá. --- Ég sé að hv. 5. þm. Norðurl. e. Jóhannes Geir Sigurgeirsson glottir. Það er von. Það vill nú svo til, virðulegi þm., að það sem hæstv. ríkisstjórn er að gera snertir fólk svona almennt úti í þjóðlífinu. Þessi skattastefna, þessi skattníðsla, þessi ruddalega framkoma valdamanna og ráðherra í fjölmiðlum. Fólk er búið að fá nóg af þessu og það er ágætt fyrir hv. þm. að hafa það í huga áður en hann glottir hér og hlær að þeim sem eru í ræðustóli í Ed. Alþingis.
    Það getur vel verið að ýmsum valdamönnum líði vel á meðan hv. núv. stjórnarþm. hafa meirihlutavöld á Íslandi en þau eru ekki ljúf fyrir þolendur, þ.e. það fólk sem líður undan því og skammast sín fyrir það hvernig sumir hæstv. ráðherrar haga sér, bæði í orði og athöfnumn. Það getur vel verið að það hvernig þeir haga sér sé talið til virðingarvotts í flokki hv. þm., Framsfl., en það er ekki hjá venjulegu fólki.
    Virðulegi forseti. Undir þessari þingskapaumræðu óska ég eftir því að hæstv. fjmrh. verði boðaður inn í þessa deild vegna þess að það er boðað, m.a. í einu dagblaða í dag, DV, að nú ætli hæstv. ráðherra og ríkisstjórnin að láta fólkið borga sjálft fyrir þátttöku ríkisvaldsins í þeim samningum sem verið er að gera. Það segir m.a. í þeirri frétt sem ég með leyfi forseta ætla að vísa til að nú eigi lífeyrissjóðirnir að lána ríkinu 3--4 milljarða til að borga fyrir aðild ríkisins að þeim samningum sem verið er að gera. Ég óska eftir því, virðulegi forseti, m.a. með tilliti til þess dagskrárliðar sem ég hlýt að ætlast til að verði hér á dagskrá í dag, sem er skattlagning á orkufyrirtæki, að hæstv. fjmrh. mæti hér á fundi. Ég segi: Það er nóg komið í því hvernig hæstv. ríkisstjórn hagar sér. Það getur vel verið að þeir geti með kúnstum haldið völdum hér með þeim hætti sem hér er um að ræða, en það er þá eins gott að hv. þm. fái að tala við þessa hæstv. ráðherra sem eru að leiða íslensku þjóðina undir ánauð sem seint verður út úr komist ef ekki verður þegar spyrnt við fótum. Alþýðulýðveldið Ísland er skammt undan ef svo heldur áfram sem nú horfir.